Dagur - 20.03.1986, Side 2
2 - DAGUR - 20. mars 1986
viðtal dagsins.
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi),
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík), YNGVI KJARTANSSON,
KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari.______________________________
Vald og valddreifing
Nokkrir þingmenn Framsóknarflokksins hafa
lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar,
þar sem lagt er til að ríkisstjórninni verði falið
að láta fara fram könnun á valdi í íslensku
þjóðfélagi. Könnunin skal vera fólgin í því að
rannsaka og greina hvernig háttað er völdum
og valdahlutföllum stofnana og samtaka,
bæði opinberra og óopinberra. Gert er ráð fyr-
ir að könnun þessari verði lokið innan þriggja
ára og niðurstöður hennar kynntar á Alþingi.
í greinargerð með tillögunni segir m.a.:
„Á undanförnum árum hafa orðið allmiklar
umræður um hvernig háttað er beitingu valds
hér á landi. Þær umræður hafa einkum snúist
um hvernig valddreifingu er varið, þ.e. hvern-
ig tengsl hins opinbera, ríkisins, og einstakra
sveitarfélaga, byggðarlaga og landshluta eru.
Einnig hefur talsvert verið rætt um innbyrðis
afstöðu valdastofnana ríkisins og hvort æski-
legt sé að breyta stjórnkerfinu að einhverju
leyti til þess að breyta valdahlutföllum í land-
inu. Enda þótt þessar umræður hafi oft á tíð-
um verið hinar fróðlegustu, hefur nokkuð
skort á að þær hafi verið markvissar og stund-
um hafa hugtök verið lítt skýrð eða ekki. Sjálft
hugtakið vald er margþætt og engin ein skil-
greining fullnægjandi til að lýsa eðli þess og
áhrifum eða birtingarformum. “
Það er ljóst að könnun á valdi og valddreif-
ingu í þjóðfélaginu yrði viðamikil og seinleg
en jafnframt mjög gagnleg. Hvað hið opin-
bera áhrærir kæmi sannleikurinn í ljós um
hvernig vald þess dreifist. Á síðustu árum
hefur verið talað um að svokallað stofnana-
vald ráði æ meiru í þjóðfélaginu. í mörgum
málum hafa ríkisstofnanir í raun tekið sér það
vald sem á að vera á Alþingi. Það er vissulega
þörf á að rannsaka á hlutlausan hátt hvernig
valddreifingunni í þjóðfélaginu er háttað. Hin
síaukna miðstýring sem er í þessu þjóðfélagi
veldur mörgum áhyggjum. Talað er um að
„Reykjavíkurvaldið“ eflist dag frá degi og
margar þýðingarmiklar ákvarðanir um
málefni landsbyggðarinnar eru teknar í stofn-
unum í Reykjavík. Öllum er kunnugt um þá
andstöðu sem er ríkjandi hjá ráðamönnum
gegn því að flytja einstaka ríkisstofnanir út á
land. Menn þekkja mátt stofnanavaldsins og
vilja ef til vill ekki missa einhvern hluta þess
úr höfuðborginni.
Rannsókn sem þessi yrði þarft innlegg í
stjórnarskrárumræðuna og gæti hjálpað til við
að ákveða hvort þörf er á að breyta stjórnkerfi
þessa lands að meira eða minna leyti. BB.
„Guð hefur áhuga
á fleiru en trúmálum"
- segir séra Hjálmar Jónsson í viðfali dagsins um
söngvakeppni sjónvarpsins, fermingaro.fi.
Það var áberandi, þegar upp-
lýst var hverjir voru höfundar
laganna sem komust í úrslit í
söngvakeppni sjónvarpsins,
hve margir þeirra voru þekktir
atvinnumenn á sviði dægur-
lagatónlistar. Þó leyndust
nokkur ný nöfn innan um, þar
á meðal var sóknarpresturinn
og prófasturinn á Sauðárkróki,
Hjálmar Jónsson. Hann átti
texta við lag eftir Geirmund
Valtýsson, gamalreyndan
poppara. En hvernig stóð á því
að prófasturinn átti þennan
texta í sönglagakeppninni?
„Það kom til af því að Geir-
mundur Valtýsson hringdi til
mín, tveimur eða þremur dögum
áður en skilafrestur rann út og
hann vantaði tilfinnanlega texta
við lag sem hann hafði verið að
semja. Ég tók illa í þetta vegna
þess að ég hafði annað að gera,
átti að mæta á fund Sálmabókar-
nefndar í Laufási en svo hringir
séra Bolli til mín og segir mér að
það sé orðið ófært. Þá hafði ég
lausa stund og settist niður við að
semja þennan texta. Ég setti sál-
artetrið í rómantískar stellingar
og teiknaði þetta svona upp á til-
tölulega stuttum tíma.
Ég hef gaman af popptónlist og
mér fannst líka gott að geta tekið
þátt í þessu, ekki síst til að þakka
tónlistarmönnunum sem lögðu
kirkjunni lið með hjálparlaginu.
Þar réttu þeir okkur hjálparhönd
og ég hcf haft það í huga að
undanförnu að svona samskipti
kirkjunnar við aðra séu af hinu
góða. Ég tel líka að guð hafi
áhuga á fleiru en trúmálum."
- Hefur þú áður fengist við
smíði dægurlagatexta?
„Já, eitthvað svolítið en ekkert
af því hefur birst opinberlega. Ég
sem skal ég segja þér meira af
sálmum. Ég gerði þetta nú aðal-
lega fyrir hann Geirmund.“
- Hefurðu samið mikið af
sálmum?
„Ég hef samið þá nokkra, já.
Þeir verða helst þannig til að ég
sit við að semja ræðu og þá er
einhver sérstakur flötur sem
kemur upp sem maður fer síðan
að hugsa meira um og ef maður
dvelur áfram við það þá endar
það stundum með því að maður
setur saman sálm um þetta til-
tekna efni. Mér finnst það miklu
áhugaverðara og mikilvægara en
svona dægurlagatexti sem maður
semur nú hugsunarlítið."
- Hvaðan kemur þér skáld-
skapargáfan? Nú hef ég fyrir satt
að þú berir nafn Bólu-Hjálmars,
forföður þíns og alnafna. Er gáf-
an frá honum komin?
„Ja, það er þá orðið býsna
útþynnt því ég er sjötti liður frá
honum. En það er áhugi fyrir
kveðskap í ættinni. Ég hef stund-
um sagt að afi minn hafi kennt
mér að bera virðingu fyrir skáld-
skapnum. Hann hélt stíft að mér
skáldskapnum og ég á ekki erfitt
með að koma saman vísu.“
- Þú ert þá ekki að reyna sér-
staklega að standa undir nafni?
„Nei. Ég hef gaman af þessu
það var t.d. gaman að koma sam-
an þessum texta sem fór í keppn-
ina. Hins vegar finnst mér gert
allt of mikið úr þessari keppni.
Mér finnst alvcg ástæðulaust að
þjóðin standi vikum saman á
öndinni yfir því hvaða dægurlag
vinni. Mér finnst margt svo
miklu, miklu merkilegra og
nauðsynlegra að tala um og fjalla
í blöðum, útvarpi og sjónvarpi en
þetta.“
- Nú langar mig að víkja að
öðru af því að ég er að tala við
prest og fermingarnar eru í nánd.
Hvað fermir þú mörg börn í vor?
„Ég fermi um 45 börn.“
- Hvernig finnst þér viðhorf
barnanna vera gagnvart ferming-
unni?
„Ég held að þau séu afskaplega
laus við auglýsingamennskuna.
Kirkjan biður alls ekki um öll
þessi læti og skrum í kring um
sínar athafnir og hátíðir. Sama
gildir um jólin. Kirkjan vill að
menn gangi hugsandi að þessu
öllu saman en ekki að það sé ver-
ið að stýra þeim með einhverjum
markaðslögmálum."
- Það er þá líklega ekki í takt.
við þínar hugmyndir að prestar
komi fram og taki þátt í auglýs-
ingum á fermingargjöfum?
„Nei, þetta er alveg fráleitt og
ég held að það þurfi að vinna
dálítið ákveðnar gegn svona lög-
uðu. Ég útbýti t.d. aldrei pönt-
unarlistum meðal fermingar-
barna þar sem boðið er upp á
gyllingu á sálmabókum, hanska,
servíettur og ég veit ekki hvað. Ég
vil að þessu öllu sé haldið í lág-
marki. Mér heyrist líka á ferm-
ingarbörnunum að þau vilji ekki
nein læti eða skrum í kring um
þetta.
Reyndar má segja það verslun-
arstéttinni til réttlætingar að
hún svarar þarna ákveðinni þörf
sem ég þykist vita að sé fyrir
hendi. Ég býst við að það séu
ýmsir sem vilja hafa þetta svona
og verslunarmenn eru auðvitað
fljótir að tikka með. En þetta
dregur athyglina frá því sem
mestu máli skiptir, sjálfri ferm-
ingunni. Auðvitað eru skiptar
skoðanir um ferminguna og ýmis-
legt sem er gagnrýnt. Það sem ég
gagnrýni helst er það þegar fjöl-
miðlar eru að tala við börnin sjálf
og spyrja þau að því hvers vegna
þau fermist þá kemur það oft
fram að það er eins og blaðamað-
urinn vilji að barnið svari: Vegna
gjafanna. Ég held ég geti fullyrt
það að það sé alveg undantekn-
ing að fermingarbarn hugsi um
gjafirnar sérstaklega, fyrr en þau
fá þær í hendurnár. Krakkar í
dag hafa flestir allt til alls og jóla-
gjafir og aðrar gjafir eru vegleg-
ar. Fermingargjafirnar eru oft
gagnlegir hlutir og ég held að það
sé börnunum ekki svo mikið til-
hlökkunarefni nú orðið að fá
fermingargjafir að trúarathöfnin
sjálf falli alveg í skuggann. Hins
vegar hafa börnin mikinn áhuga á
æskulýðsstarfsemi sem þeim er
boðið upp á eftir ferminguna og
taka mörg þátt í henni af heilum
hug.“
-yk.