Dagur - 20.03.1986, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 20. mars 1986
Alveg ofboðslega sexy.
Stuðmenn.
Sigríður Kristjánsdóttir og Guðrún Birl
Á Listahátið Menntaskólans á Akureyri sem stóð yfir dagana 10.-20. mars voru Stuðmenn
fengnir til þess að halda tónleika í íþróttahöllinni á Akureyri.
Stuðmenn eru, eins og flestir eða allir vita, ein af vinsælustu hljómsveitum íslands og eiga
aðdáendur á öllum aldri. Ég veit til dæmis um eina konu á sjötugsaldri sem á allar plöturnar
þeirra. Ástæðan fyrir þessu (vinsældum þeirra) er líklega sú að þeir hafa verið mjög lengi í
bransanum, lengur en flestar aðrar hljómsveitir á íslandi.
Svo eru þeir að fara til Kína. Þá bætast allar kínversku „gellurnar“ í aðdáendahóp þeirra en
það er nú enginn smá fjöldi.
Vinsældir einstakra manna í hljómsveitinni eru líka miklar. Egill var til dæmis kosinn eftir-
sóknarverðasti karlmaður landsins (þá kaus að sjálfsögðu kvenfólkið).
Það voru nú ekkert allt of margir í Höllinni þegar við mættum þangað á föstudagskvöldið en
það rættist úr því þegar fréttist af blaðamönnum Dags á staðnum (bara grín!).
Við ákváðum að byrja á því að tala við nokkra tónleikagesti svona til að tékka á því hvort það
borgaði sig að vera að reyna þetta eitthvað frekar. Við töluðum við fjórar hressar stelpur sem
voru allar sammála um ágæti Stuðmanna.
Látum þetta bara flakka....
Fyrst rákumst við á tvær menntaskólasnótir sem voru alveg til í viðtal.
Egill ofboðslega sexy
Berghildur Erla Bernharðs-
dóttir og Hildur Loftsdóttir:
- Hvernig fílið þið Stuðmenn?
„Bara vel, þeir eru ofsalega
góðir.“
- Hvernig finnst ykkur þessir
tónleikar hjá þeim?
„Það eru allt of fáir - hefðu
þurft að vera miklu fleiri."
- Af hverju fóruð þið á Stuð-
menn frekar en á hina tónlistar-
mennina sem eru að spila í
kvöld?
„Stuðmenn eru bara miklu
vinsælli og skemmtilegri,"
- Eigið þið margar plötur með
þeim?
„Já, nokkrar."
- Hafið þið áður farið á tón-
leika eða ball með stuðmönnum?
„Já, já oft. Alltaf í Atlavík og
svo á busaböllum í Sigtúni."
„Hvort finnst ykkur þeir
skemmtilegri á böllum eða tón-
leikum?
„Þeir eru bara til þess að spila
á böllum. Þetta er bara dans-
músík sem þeir eru með og það
er ekki hægt að sitja kyrr. Það
verður að dansa með.“
- Hvernig fannst ykkur þegar
Ragnhildur byrjaði með Stuð-
mönnum?
„Bara alveg frábært vegna
þess að okkur finnst Ragnhildur
besta söngkona landsins og
Stuðmenn eru besta hljómsveitin
á íslandi."
- Hafið þið fylgst eitthvað með
Stuðmönnum frá byrjun?
„Ja, bara með Spilverki þjóð-
anna þegar það var og svo þegar
Stuðmenn komu aftur fram á
sjónarsviðið. Við fylgdumst ekk-
ert með þeim þegar þeir byrjuðu
það er svo langt síðan.“
- Hvað finnst ykkur besta lag-
ið með þeim?
„Æi, við munum ekki hvað lag-
ið heitir en það byrjar svona; „Ör-
lög mín eru að vera söngvari",
eða eitthvað svoleiðis."
- En hver finnst ykkur
skemmtilegastur af Stuðmönn-
um?
„Ja, Egill Ólafsson er alveg
ofboðslega sexy en Valgeir er
líka mjög góður."
- Nú var Egill kosinn eftir-
sóknarverðasti karlmaður þjóð-
arinnar?
„Já, hann er það - fyrir utan
pabba okkar beggja. Annars er
ofsalega mikið af fallegum karl-
mönnum á íslandi. Samt var Egill
nú fallegri þegar hann var yngri."
- Finnst ykkur Stuðmenn
kannski vera orðnir gamlir?
„Þeir eru kannski farnir að eld-
ast en þeir eru alltaf jafn
skemmtilegir og standa fyrir
sínu. Við vonum bara að þeir
haldi áfram endalaust. Alla veg-
ana þangað til við verðum orðnar
fimmtíu ára kerlingar."
- Hvernig líst ykkur á að þeir
séu að fara til Kína?
„Bara vel. Þeir eiga örugglega
eftir að halda uppi heiðri þjóðar-
innar þar. - Þeir undirbúa sig vel
og það er mjög gott.“
- Eitthvað að lokum?
„Ja, ekkert annað en það að
Stuðmenn eru frábærir."
Og þá var kátt í Höllinni.