Dagur - 20.03.1986, Page 9
Texti: Helga Kristjánsdóttir og Helga Ingibjörg Kristjánsdóttir - Myndir: Gísli Tryggvason
Til aö hafa smá lýðræði í þessu
ákváðum við að tala líka við
verkmenntskælinga...
Stuðmenn frábærir
Guðrún Birkisdóttir og
Sigríður Kristjánsdóttir:
- Hvernig fílið þið Stuðmenn?
„Æðislega vel. Við erum búnar
að fara á mörg böll með þeim; í
Atlavtk og svo þegar þeir koma
hingað."
- Hvernig finnst ykkur þeir
vera á þessum tónleikum?
„Þeir eru góðir en stemmning-
in er alls ekki nógu góð, það eru
svo fáir. Annars standa Stuð-
menn náttúrlega alltaf fyrir sínu.
- Þessir menntskælingar kunna
bara ekki að dansa (hlátur).“
- Finnst ykkur að fólkið eigi að
dansa og djöflast?
„Já, það á að reyna að tjá sig
eitthvað en ekki standa bara og
glápa út í loftið.“
- Hver finnst ykkur flottastur í
hljómsveitinni?
„Ragnhildur, Egill og Valgeir."
- En hvað með þau þegar þau
eru sitt í hvoru lagi?
„Valgeir er ekki góður einn en
Egill er fínn og Ragnhildur er
náttúrlega alveg frábær. Það var
frábært þegar hún byrjaði í
hljómsveitinni með þeim. Hún
passar svo vel inn í og lífgar upp
á „grúppuna"."
- Nú eru Stuðmenn búnir að
spila í mörg ár. Hafið þið fylgst
með þeim lengi?
„Nei, ekki frá upphafi, við erum
ekki svo gamlar (meiri hlátur).“
- Hélduð þið kannski upp á
„Spilverkið" meðan það var upp
á sitt besta?
(isdóttir.
Berghildur Eria Bernharðsdóttir
og Hildur Loftsdóttir.
„Nei, við vorum svo litlar að við
munum ekki eftir þeirri hljóm-
sveit.“
- Finnst ykkur Stuðmenn
koma of sjaldan til Akureyrar?
„Ekkert sjaldnar en aðrir tón-
listarmenn. Annars eru hljóm-
sveitirnar farnar að koma oftar.
Það er bara verst að þær koma
alltaf allar í einu og maður veit
ekkert á hverja er best að
hlusta."
- Hvers vegna fóruð þið að
hlusta á Stuðmenn frekar en hina
sem voru að spila í kvöld?
„Bara af því að okkur langaði
meira að hlusta á þá og þeir eru
líka bestir af því sem boðið er
upp á í kvöld.“
- Eitthvað að lokum?
„Ja, Stuðmenn eru frábærir,
en það er voðalega dauft yfir lið-
inu, allt of fáir hérna.“
STUÐMENN
Valgeir Guðjónsson
Stuðmenn voru svo aftur með
tónleika á sunnudagskvöldið í
Sjallanum, það var eftir þá tón-
leika sem við ræddum við Valgeir
Guðjónsson en af mikilli hjarta-
gæsku sinni veitti hann okkur
örstutt viðtal fyrir hönd Stuð-
manna.
- Hvernig finnst ykkur að spila
fyrir Akureyringa?
„Það er gott, þeir fara alltaf
batnandi."
- Hafið þið hugsað ykkur að
fara eitthvað í tónleikaferð um
landið á næstunni?
„Já mögulega - kannski frekar
í sumar. Annars fer það eftir
ýmsu."
- Ég frétti að þið hefðuð verið
úti í London, hvað voruð þið að
gera þar?
„Já, við vorum að taka upp
plötu."
- Og hvernig gekk?
„Bara nokkuð vel.“
-- Hvenær býst þú við að hún
komi út?
„Ég veit það ekki - bara ein-
hvern tímann."
- Eruð þið ekki á leiðinni til
Kína?
„Jú, mikið rétt.“
- Hvernig kom það til?
„Ja, fyrst báðum við stjórnina
um að fá að koma. Þeir sögðu
nei, en svo snérist þeim hugur.“
- Verðið þið lengi?
„Já, við verðum í þrjár vikur
sem gestir Alþýðulýðveldisins og
komum svo hugsanlega við í
öðrum löndum líka.“
- Nú eigið þið aðdáendur á
nærri öllum aldri. Fyrir hvaða
aldurshóp er best að spila?
„Gamalt fólk. Annars fer það
bara eftir því hvort fólkið er í
góðu skapi og hvernig stemmning-
in er. - Þetta fer eftir fólkinu."
- Veist þú hvort þið verðið í
Atlavík næsta haust?
„Nei, ég hugsa bara ekki, ann-
ars veit ég það ekki fyrir víst.“
- Af hverju stafa vinsældir
Stuðmanna?
„Bara af því að við erum svo
skemmtilegir og spilum tónlist
sem fólkinu líkar.“
- Hvernig er það að lenda í
því að spila fyrir tómu húsi. Hefur
það komið fyrir ykkur?
„Já, já, við höfum lent í því. -
Það er nú frekar leiðinlegt en við
spilum yfirleitt best þegar það eru
fáir.“
- Hvernig stendur á því?
„Ég veit það ekki, ég skil það
ekki sjálfur - það myndast bara
einhver önnur stemmning.“
- Hvernig fannst ykkur útsetn-
ingarnar á lögunum ykkar í
söngvakeppninni?
„Þær hefðu getað verið betri
en við sættum okkur alveg við
þetta. - Það þýðir ekkert að tala
neitt um það.“
- Hafið þið hugsað ykkur að
fara eitthvað meira út í gerð kvik-
mynda?
„Já, já einhvern tímann á næst-
unni. En þær yrðu í allt öðruvísi
stíl en hinar fyrri.“
- Hvernig fannst ykkur síð-
ustu plötunni ykkar vera tekið?
„Bara nokkuð vel.“
- Fannst ykkur hún fá réttláta
dóma?
„Já, við erum bara hætt að fá
góða dóma, það er búiö með þá
hvað sem við gerurn."
20. mars 1986 - DAGUR - 9
spurning vikunnac
Hvað ætlar þu að
gera um páskana?
Hallgrímur Valdimarsson.
Ef veður leyfir vonast ég til að
komast í skíðagöngu með
nokkrum félögum mínum á
Þeistareyki.
Annars ætla ég að vera
heima, er vanur því og hef
stundum verið við vinnu um
páska. Hef ekki farið í nein
páskaferðalög, en stundum í
sumarbústaðinn minn sem er
að Halldórsstöðum í Laxárdal.
Örn Jensson:
Ég ætla að vera heima á
páskadag. Það getur vel verið
aö við skreppum til Akureyrar
eða í sumarbústaðinn, það höf-
um við oft gert. Lengri ferðalög
eru ekkert á döfinni.
En sem sagt ég ætla að vera
heima og ef til vill heilsa eitt-
hvað upp á vini og kunningja.
Kristbjörn Óskarsson:
ig verð í Reykjavík um næstu
lelgi, en um páskana verð ég
eima. Ég ætla að fara f ferm-
ingarveislu, svo ætla ég að
slappa af og hafa það fínt og
hvíla mig.
Asa Jónsdóttir:
Ég ætla að fara í fermingarveisl-
ur og hafa það gott. Ég verð
heima, er ekki vön að ferðast um
páskana. Núna ætla ég sem sagt
að stunda veislur, slappa af og
svo ætla ég í kirkju.
Arnar Björnsson:
Vinna, hef svo margt á minni ■
könnu sem ég þarf að klára,
bæði fyrir mitt fyrirtæki og verk-
efni vegna kennslu í skólanum.
Svo ætla ég að lesa eina góða
bók, ég á margar góðar bækur
ólesnar.
Ég er nauðbeygðurtil að fara I
fermingarveislu, það eru hund-
leiðinleg mannamót. Hitt er ann-
að mál að maður hefur taugar til
krakkanna sem á að ferma, ég
kenni þeim og var að segja að
það yrði að vera skemmtilegt í
síðasta tímanum fyrir fermingu
því á eftir yrðu þau komin í krist-
inna manna tölu, uppstríluð og
glórulaus.
IM