Dagur - 20.03.1986, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - 20. mars 1986
Laugardaginn 22. mars frumsýnir Leikfélag Blöndu-
óss gamanleikinn Vígsluvottoröiö eftir Efraim Kishon
í þýðingu Árna Bergmann. Leikurinn gerist í ísrael og
fjallar um fjölskyldu Brozowsky pípu-
lagningarmeistara og þau vandræði sem því fylgja að
tilvonandi tengdamóðir dótturinnar á heimilinu
heimtar að fá vígsluvottorð Brozowsky hjónanna áður
en af brúðkaupinu verður. En eins og gefur að skilja
getur vafíst fyrir fólki að finna slíkan pappírssnepil eft-
ir 25 ára hjónaband, nema. . .?
Leikarar ásamt leikstjóra Ijósamanni og sviðsmanni,
Leikfélag Blönduóss:
Vígsluvotto rðið
Sturla Þórðarson leikur Daníel
Brozowsky.
- Hvernig karl er þessi
Daníel, Sturla?
„Petta er besta skinn dálítið
ráðríkur og er vanur að vera
húsbóndi á sínu heimili, en það
koma upp óvænt vandamál þeg-
ar frúin neitar að giftast honurn
sem hann er þó búinn að vera
giftur í 25 ár.“
- Er herra Brozowsky karl-
remba?
„Ætli hann væri ekki kallaður
það, en hvað er karlremba?
Petta er reyndar hugtak sem
kvenfólkið fann upp svo það
veröa að skýra það. En þó að
þetta sé gamanleikur og
kannski dálítið ýktur þá er þetta
náttúrlega það sem víða er
svona daglega lífið hjá fólki."
Guðrún Pálsdóttir (Gugga)
leikur Ellu konu Daníels.
- Hvernig líkar þér við Ellu?
„Mér líkar hún ágætlega, hún
er að vísu ekki nógu ákveðin þó
að hún sé að reyna það blessun-
in, en hún fer sínu fram þegar
karlinn er ekki heima, hún er
t.d. að sauma á nágrannakon-
una þó að hún viti að hann sé
lítið hrifinn af svoleiðis nú og
svo stelst hún á tónleika. En
þrátt fyrir að hún láti karlinn
lieyra það óþvegið á meðan leit-
in að vígsluvottorðinu stendúr
yfir held ég að hún yrði fegnust
ef allt yrði eins og áður. Þaö er
gaman að leika í þessu bæði
félagslega og svo að fást við
eitthvað og að láta það takast.“
Jenný Gunnbjörnsdóttir er
Vicky dóttir Brozowsky hjón-
anna.
- Nú er þetta í fyrsta skipti
sem þú leikur Jenný, hvernig
líkar þér?
„Mér finnst þetta gaman, fínt
fólk og svona en þetta er búið
að vera tímafrekara en ég átti
von á en reyndar vissi ég ekkert
hvernig þetta yrði, dembdi mér
bara í það en þetta er búið að
Sturla Þórðarson.
vera gaman. Jú ég kvíði kannski
pínulítið fyrir sýningunum."
- Hvað finnst þér um Vicky?
„Vicky er hress, hún er að
læra barnasálfræði og vill kom-
ast áfram í lífinu og ein leiðin til
þess er að giftast Róbert því þá
kemst hún ofar í þjóðfélags-
stiganum."
Guðrún Pálsdóttir.
- Myndirðu vilja leika aftur
ef þér byðist það?
„Ég hugsa að ef manni byðist
annað tækifæri þá segði ég
kannski já, af því að þetta er
búið að vera svo skemmtilegt.“
Róbert Knoll er leikinn af
Jóni Pétri Líndal. Róbert er
svolítið tvöfaldur sennilega hef-
ur hann alist upp við fullmikið
ofríki móðurinnar en hann er
dálítið að þroskast og að losa
sig undan ráðríki móður
sinnar,“ segir Jón Pétur.
Jenný Gunnbjörnsdóttir.
- Gætu þessir hlutir verið að
gerast á okkar tímum?
„Já þetta gæti sjálfsagt verið
að gerast á þessum slóðum í dag
þ.e. í ísrael, mér finnst ekkert
svo erfitt að setja mig í sporin
hans. Annars er þetta nokkuð
gott leikrit útfærslan er kannski
svolítið öðruvísi en ætlast hefur
verið til þegar það var skrifað,
en þetta er bara þó nokkuð
skemmtilegt en þó er svolítið vit
í því.“
Þorleifur Óskarsson leikur
Bunky frá samyrkjubúinu
Einot.
Þorleifur Óskarsson.
- Hvernig náungi er þessi
Bunky, Leifi?
„Hann er ágætur svolítið
ánægður með sig en annars er
þetta nokkuð góð persóna,
hann þykist meiri en hann er en
svo kemur hann nú niður á
jörðina þegar líður á verkið.
Jú ég þarf að breyta mér tals-
vert til að ná þessari týpu en
Jón Pétur Líndal.
kannske er maður stundum í
líkingu við þetta í raunveru-
leikanum.“
- Er erfitt að standa í þessu?
„Þetta er erfitt meðan á
æfingum stendur en svo fær
maður laun erfiðisins þegar sýn-
ingarnar byrja, þá er maður
mjög ánægður yfir að hafa feng-
ið að vera með.“
Rósa M. Sigursteinsdóttir fer
Rósa M. Sigursteinsdóttir.
með hlutverk Rósu Húper, ná-
grannakonunnar sem er ekkja.
- Hvað segirðu um hana
nöfnu þína Rósa?
„Hún er mjög ánægð með
sjálfa sig og smjaðrar fyrir ná-
grannakonunni vegna þess að
hún er hrifin af eiginmanninum
og þegar hún kemst að því að
þau eru kannski ekki gift og auk
þess ósamkomulag á heimilinu
þá fer hún að gera hosur sínar
grænar fyrir herra Brozowsky.
Hún er gjörólík mér ég á ekkert
sameiginlegt með henni að
mínu mati.“
- Nú er þetta þitt fyrsta
hlutverk, hvernig finnst þér?
„Þetta er svolítið erfitt sem
fyrsta hlutverk ég hefði gjarnan
kosið rólegra hlutverk í byrjun,
en ég vona bara að ég komi því
sómasamlega til skila.