Dagur - 20.03.1986, Blaðsíða 11
20. mars 1986 - DAGUR - 11
Minning:
Ý Hjalti Pálmason
Grindavík
F. 12. desember 1966 D. 14. janúar 1986.
Kallið er komið
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn hinsta blund.
V. Briem.
Hjalti Pálmason frændi okkar er
látinn, langt um aldur fram að-
eins 19 ára gamall. Pað er mikið
búið að skrifa um hann, þó lang-
ar mig að setja nokkur kveðjuorð
á blað.
Þeir deyja ungir sem guðirnir
elska, segir aldagömul kenning.
Fyrst kynntist ég þessum litla
dreng 2ja ára gömlum, þegar
mamma hans kom með þá bræð-
urna báða til okkar í Hrísey, og
dvaldi með þá að sumarlagi, þá
var Jón litli ekki nema 8 mánaða,
en þeir voru mjög efnilegir eins
og börn á þessum aldri eru séu
þau heilbrigð. Alltaf get ég dáðst
að því hvað Björg var mikil móð-
ir, þó ung væri.
Hjalti dafnaði vel og varð strax
augasteinn allra, ekki síst ömmu
og afa að Heiðarhrauni 41, enda
heimagangur þar eins og þeir
bræður báðir.
Hjalti var á fiskvinnslubraut í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja svo
var ljósmyndun mikið áhugamál
hans og langt var hann kominn í
tölvufræði, en mestan hug hans
átti Björgunarsveitin Þorbjörn í
Grindavík, og hann fórst við
æfingu á köfun í hraungjá.
Slysin eru alltaf hörmuleg, en
ég held að við verðum að hafa' þá
trú að okkur sé ætlaður viss tími
hér á jörð. Hjalti var laus við allt,
sem glepur mörg ungmenni og
fer stundum illa með þau. Hann
var ekki allra en vinur vina sinna,
hann var trúmaður og efaðist
ekki um líf eftir dauðann. Ég veit
að hann verður fljótur að komst
áfram á nýjum slóðum.
Síðast hittumst við 3. ágúst
1982 þá var hann bílstjóri hjá
ömmu og afa í norðurferð.
Alltaf er vinátta mikils virði í
lífinu, ekki síst þegar svona svip-
leg slys verða, Grindvíkingar,
þar með talinn ungi presturinn
þeirra, reyndust þeim svo vel að
það er leitun að öðru eins og
verður aldrei fullþakkað.
Þrátt fyrir allt birtir él upp um
síðir, og lífið verður að halda
áfram, þótt daprir séu dagar nú.
Björg og Óli eiga þrjú myndar-
börn eftir til að lifa fyrir.
Við kveðjum kæran frænda og
vin og biðjum þann sem öllu ræð-
ur að gefa ættingjum ha og vin-
um huggun og styrk. Þes.
Skipast veður á skammri stund
er skinið breytist í myrkur
og lífið verður sem logsár und
og lítill mannanna styrkur.
I Grindavík helfregn hjörtun slær
og hryggð er í bæ og ranni
þín vegna falla tárin tær
trúfasti drengur sanni.
Hér kveðja þig amma og afi þinn
einnig pabbi og mamma
með dýrlega minning um drenginn sinn
er dvaldi hér ævi skamma.
Léttir þó samt þá sorgartíð
og sárin á alla vegu
að minningin vakir björt og blíð
um brosin þín yndislegu.
K.B.
Ý Nanna Tuliníus
F. 13. desember 1911 - D. 12. mars 1986
Kveðja frá KA félögum
Lífsbókinni er lokið hjá glað-
værri, listelskri og góðri konu
sem naut þess að gleðjast með
glöðum. Ung að árum var hún í
fimleikaflokki KA, sem sýndi á
Alþingishátíðinni á Þingvöllum
1930 undir stjórn Hermanns Stef-
ánssonar, og þær létu sig ekki
muna um það stúlkurnar að
ganga 35 km leið frá Álafossi til
Þingvalla.
Menn hrifust af hæfni flokksins
og Steingrímur Matthíasson
læknir skrifaði í íslending um
eina sýninguna:
„Mér fannst ég sjá í álfhamar
inn. Álfameyjar stigu dans og
þreyttu leikfimi - limaburður og
hreyfingar allar, ýmist snöggar og
snarplegar eða stilltar og dún-
mjúkar. - Hér var leikfimi, dans
og söngur í senn hugðnæmt
samantvinnað. Ég sat sem í
leiðslu og horfði inn í annan
heim, og sá æsku, fegurð og
þroska, þar sem aldrei þarf
læknishjálpar við, heldur í hæsta
lagi læknisráða til verndar fjöri,
fegurð og heilsu. En snögglega
rankaði ég við mér. Hér voru
hvorki álfameyjar né englameyj-
ar né annar heimur. Því framan
við mig sat séra Friðrik Rafnar og
að baki mér Sveinn Bjarman.
Ungmeyjarnar, seni skemmtu
okkur, voru Akureyrardætur."
Já Nanna var ein þessara
Akureyrardætra og giftist árið
eftir Tómasi Steingrímssyni stór-
kaupmanni og fyrsta formanni
KA. Um Tómas sagði Jón Sig-
urgeirsson fyrsti ritari KA „að
hann hefði stýrt félaginu af eld-
legum áhuga og viljaþrótti,“ auk
þess að vera fjöihæfur íþrótta-
maður í fremstu röð. Það er því
ekki að undra, að þessi glæsilegu
hjón vektu áhuga afkomenda
sinna fyrir íþróttum bæði barna
og barnabarna. Enda hefur af-
reksfólkið til skamms tíma verið í
fremstu röð íslenskra íþrótta-
manna og barnabarnið Nanna
íþróttastarfið á Akureyri. En það
vill allt of oft gleymast, hver hlut-
ur og fórn eiginkonunnar er, þeg-
ar eiginmaðurinn vinnur öllum
stundum ólaunuð félagsstörf.
Það var verið að byggja brú til
betri heima, með því að efla
æsku Akureyrar til afreka. Þessa
brautryðjendastarfs frumherja
KA hafa þúsundir Akureyringa
notið í áranna rás. Við stöndum
öll í ómældri þakkarskuld og orð
mega sín lítils.
KA-menn þakka allar góðu
samverustundirnar og senda
Tómasi og fjölskyldu hans inni-
legar samúðarkveðjur.
Jón Arnþórsson.
Bjöm Sigurdsson, Baldursbrekku 7. Símar 41534 & 41666. Sérleyfisferðir. Hópfcrðir. Sætaferðir. Vöruflutningar
Húsavík - Akureyri - Húsavík
21. mars til 2. apríl.
Frá Húsavík Frá Akureyri
Föstudag 21. mars kl. 9.00 kl. 17.00
Föstudag 21. mars kl. 13.30 kl. 17.00
Laugardag 22. mars kl. 13.30 kl. 16.00
Sunnudag 23. mars kl. 18.00 kl.21.00
Mánudag 24. mars kl. 13.30 kl. 16.00
Þriðjudag 25. mars kl. 9.00 kl. 16.00
Miðvikudag 26. mars kl. 9.00 kl. 17.00
Laugardag 29. mars kl. 13.30 kl. 16.00
Mánudag 31. mars kl. 18.00 kl.21.00
Þriðjudag 1. apríl kl. 18.00 kl. 21.00
Miðvikudag 2. apríl kl. 9.00 kl. 16.00
Mývatn - Laugar - Akureyri.
Frá Reynihlíð Frá Laugum Frá Akureyri
Föstud. 21. mars kl. 8.00 kl. 9.00 kl. 17.00
Miðvikud. 26. mars kl. 8.00 kl. 9.00 kl. 17.00
Þriðjud. 1. apríl kl. 17.00 kl. 18.00
Síðan venjuleg vetraráætlun. Sérleyfishafar.
FRAMSOKN
TIL FRAMFARA
Ásgeir Arngrímsson útgerðartæknir er 3. á lista fram-
sóknarmanna til bæjarstjórnarkosninga í vor.
Hann verður til viðtals á skrifstofunni, Eiðsvallagötu 6 í
dag, 20. mars kl. 17-18.
Heitt á könnunni. Hittumst hress.
Framsóknarfélögin á Akureyri
bæði skíðadrottning íslands og
keppandi á síðustu Vetrar-OI-
ympíuleikum fyrir íslands hönd.
Arin liðu, en alltaf áttu KA-
menn sitt annað heimili hjá
Nönnu og Tómasi og fyrir það
skal nú þakkað sérstaklega að
leiðarlokum.
Á seinni árum átti Nanna við
veikindi að stríða, en mætti þeim
æðrulaus og kjarkmikil til hinstu
stundar.
Þetta áttu aðeins að vera fáein
kveðjuorð til að þakka þann þátt
sem Nanna átti í því að efla
Stakir jakkar, glæsilegt úrval,
tvðinepptir, einhnepptir, úr ullarefnum.
Ljósu samkvæmisjakkarnir komnir aftur.
Stakar buxur í úrvali (svartar með föllum nýkoinnar).
Karlmannaföt, þrjár síddir, tvær víddir og yfirstærðir.
Tvflmeppt föt frá Van Gfls úr grófti uílarefni
tekin upp í dag.
Smókingar, einhnepptir, tvflmepptir.
Skyrtur, peysur, bindi, nærföt og margt Oeira.
Smókingleiga
Klæðskeraþjónusta 0 If^ |f^ Q Ö U
M
Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708.