Dagur - 20.03.1986, Blaðsíða 16
ngar — Kjúkdngar — Kjúktingar — Kjuklinqar
\. CROWN J
" CHICKEN ‘
AKUREYRI
Skipagötn 12 - Sími 21464
Kjúkkngar
em gœðafœða
\ CROWN J
CHICKEN •
AKUREYRI
Skipagqtu 12 ■ Sími 21464
Kaupa Skagstrendingar Merkúr RE?
Nýja hliðarfærslan í Slippstöðinni hefur þegar sannað gildi sitt. Þessa dagana eru þrjú skip „á þurru“, þar á meðal
Snxfellið, sem verið er að gera sjóklárt að nýju, eftir vélarbilun. Mynd: - KGA.
„Þetta er nú svona álíka
merkilegt og það sem mann
dreymir,“ sagði Sveinn Ing-
ólfsson framkvæmdastjóri
Skagstrendings h.f. á Skaga-
strönd, er hann var spurður
hvað væri hæft í því að Skag-
strendingur hygðist kaupa
togarann Merkúr RE-800.
Togari þessi er 969 lestir að
stærð og var áður í eigu Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur og hét þá
Bjarni Benediktsson. BÚR seldi
togarann fyrir nokkrum mánuð-
um og kaupandi var útgerð-
arfyrirtækið Merkúr h.f. í
Reykjavík. Nýju eigendurnir
sendu skipið til Þýskalands í
klössun og þaðan til Noregs þar
sem verið er að breyta því í
frystiskip.
„Við erum alltaf að líta í kring-
um okkur eftir skipi,“ sagði
Sveinn „og við fengum að vita
hvað Merkúr átti að kosta. Það
eru hins vegar engar líkur á því
að við verðum inni í því dæmi,
Melrakki byggir nýja fóðurstöö á Sauðárkróki:
Þetta er mikið mannvirki"
55
„Við erum að byrja, það er
engin spurning. Annað hvort
er að halda áfram loðdýrarækt
á þessu svæði, eða ekki. For-
sendan er sú að þeir sem eru
að byrja loðdýrarækt og þeir
sem eru þar fyrir, fái fóður fyr-
ir dýrin. Bændur þurfa því að
eiga birgðir af loðdýrafóðri
sem öðru fóðri handa skepnum
sem þeir eiga,“ sagði Reynir
Barðdal loðdýrabóndi á Sauð-
árkróki. Nú er verið að und-
irbúa byggingu nýrrar fóð-
urstöðvar á staðnum.
Fyrirtækið Melrakki h/f hefur
rekið fóðurstöð á Sauðákróki að
undanförnu. Mikil þörf hefur
verið fyrir slíka stöð og fram-
leiðslan farið til loðdýrabænda í
Skagafirði og Húnavatnssýslum.
Allir loðdýrabændur á þessu
svæði eru hlutahafar í Melrakka
h/f.
Svartfugl fær
vínveitingaleyfi
- „Fiðlarinn“ verður opnaður í næsta mánuði
„Þá er þetta loksins frágengið
mál og vínveitingaleyfið er
komið,“ sagði Friðjón Árna-
son veitingamaður Svartfugls
h/f í Alþýðuhúsinu nýja og
veifaði vínveitingaleyfí frá
dómsmálaráðuney tinu.
Eins og komið hefur fram stóð
nokkurt þref um það hvort veita
ætti Svartfugli vínveitingaleyfi.
Áfcngisvarnanefnd Akureyrar
sagðist ekki geta mælt með leyf-
inu vegna eðlis og starfssviðs
nefndarinnar.
Svokölluð húsnefnd dóms-
málaráðuneytisins, sem sér um
eftirlit með vínveitingastöðum,
kom til Akureyrar í janúar sl. og
skoðaði aðstæður í Alþýðuhús-
inu og mælti með leyfisveitingu ef
vissar breytingar yrðu gerðar á
húsnæðinu samkvæmt reglugerð-
um um veitingahús. Unnið hefur
verið að þessum breytingum
undanfarna mánuði og er þeim
nú að Ijúka. Er reiknað með því
að Fiðlarinn, nýi veitingastaður-
inn á efstu hæð Alþýðuhússins
verði opnaður í apríl.
„Þetta þýðir fyrir okkur að við
höfum viðurkenningu fyrir því að
við rekum fullgilt vínveitingahús
með vínveitingaleyfi til matar-
gesta og sérstakra samkomu-
gesta. Samkvæmt okkar leigu-
samningi er ekki heimilt að halda
almenna dansleiki í húsinu, enda
viljum við það ekki sjálfir,“ sagði
Friðjón Árnason veitingamaður.
gej-
„Þetta er mikið mannvirki sem
verið er að fara út í. Hugmyndin
er að byggja fóðurstöðina í 2
áföngum. 1 fyrri áfanga verður
byggður frystir undir unnið fóður
og óunnið hráefni sem færi til
vinnslu síðar,“ sagði Reynir.
Hann sagði að gamla verksmiðj-
an þjónaði vel sínu hlutverki og
áframhald á nýju byggingunni
færi eftir þeirri þróun sem ætti sér
stað í loðdýraræktinni. „Ef fer
sem horfir eigum við að geta unn-
ið í gömlu stöðinni næstu 2 árin.
Á þessu ári eru það 35 loðdýra-
bændur sem fá fóður frá Mel-
rakka h/f og stendur öllum opið
að ganga í félagið sem ætla sér í
loðdýrarækt í framtíðinni," sagði
Reynir.
Reiknað er með því að fóður-
stöð Melrakka h/f framleiði 2600
tonn á þessu ári og 3500 tonn á
næsta ári. Hráefni til fóðurgerðar
er fengið hjá fiksvinnslustöðvum
og sláturhúsum. Aðal uppistaðan
Nú ættu allir skagfirskir rctir að geta
orðið saddir.
eru fiskbein og sláturúrgangur.
Það sem við ætlum að gera með
þessari byggingu og þessum stóra
frysti, er að koma upp birgðum af
fóðri, sem er forsenda fyrir því
að þessi atvinnugrein geti
blómstrað,“ sagði Reynir
Barðdal. gej-
því verðið sem sett er upp er
langt fyrir ofan það sem við get-
um hugsað um. Við erum aðal-
lega að hugsa um rækjúSkip þessa
stundina, það er helst það sem
okkur vantar hérna núna. En við
ætlum okkur auðvitað að fylgjast
vel með öllum hreyfingum á
markaðinum.“ BB.
Hætta að
reykja
Nýlega hófust námskeið á
Raufarhöfn og Kópaskeri fyrir
reykingamenn sem vilja hætta
að reykja. Tveim fundum er
lokið af sjö sem fyrirhugaðir
eru á næstu vikum. Á Kópa-
skeri eru þátttakendur á nám-
skeiðinu 23 og má það telja
mikinn áhuga í tvö hundruð
manna byggðarlagi en á Rauf-
arhöfn eru þeir fjórir.
Fyrsti fundurinn var undirbún-
ingsfundur en á öðrum fundinum
hætti fólkið að reykja. „Það er
ekki komið í ljós hvernig fólkið
hefur staðið sig og kemur ekki í
ljós fyrr en eftir nokkra mánuði
hver árangurinn verður,“ sagði
Sigurður Halldórsson læknir sem
stendur fyrir námskeiðinu og
leiðbeinir ásamt Ingunni Svavars-
dóttur sálfræðingi. „Margir segja
að þetta sé stærsta einstaka
heilsufarsvandamálið og þetta
námskeiðahald er tilraun sem
okkur hefur langað til að gera.“
IM
„Eg er bundinn
átthagafjötmm"
- segír Gunnar Haraldsson, sem hyggst
opna bílasölu á Akureyri
„Þetta mál er að mestu frá-
gengið,“ sagði Ingi Þór
Jóhannsson stjórnarformaður
Bílasölunnar h/f á Akureyri.
Gunnar Haraldsson sem lengi
rak Bílasalann h/f á Akureyri
hcfur keypt gamla verkstæðis-
hús B.S.A. og ætlað að stofna
þar bílasölu í samvinnu við
Bflasöluna h/f.
Bílaverkstæði B.S.A. mun
flytja starfsemi sína í Skála við
Kaldbaksgötu, þar sem Birgir
Stefánsson hefur starfrækt bif-
reiðaverkstæði. Hann mun síðan
flytja sína starfsemi í gömlu
smurstöðina norðan B.S.A.
verkstæðisins.
„Ég og fjölskyldan vorum
ákveðin í því að flytja suður, en
það gekk ekkert að selja þær
eignir sem við áttum hér og ekki
fer ég að gefa ævistarf mitt,“
sagði Gunnar Haraldsson sem nú
er búinn að kaupa húsnæði
B.S.A. verkstæðisins og hyggst
setja þar upp bílasölu. Samvinna
verður með Gunnari og Bílasöl-
unni h/f og mun hann annast sölu
á þeim bílum sem Bílasalan hefur
umboð fyrir.
Nokkrar breytingar þarf að
gera á húsinu áður en bílasala
getur hafist þar og sagðist Gunn-
ar reikna með því að opna í
næsta mánuði. Húsnæðið er 530
fermetrar að stærð og hentar vel
til þessarar starfsemi. „Annars
var ég búinn að opna bílasölu í
Reykjavík, en gat ekki selt eignir
mínar hér, eins og ég sagði, svo
það var ekki hægt að fara. Maður
er bundinn átthagafjötrum hér,“
sagði Gunnar Haraldsson bíla-
sali. gej-
„Verðið er
allt of hátt“
- segir Sveinn Ingólfsson, framkvæmdastjóri