Dagur - 23.12.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 23. desember 1986 243. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Aðalskipulag samþykkt
Fundur var haldinn í bæjar-
stjórn Húsavíkur á timmtudag-
inn. Ákveðið er að Húsavíkur-
bær bjóði bæjarbúum til
nýársfagnaðar, eins og gert
hefur verið síðastliðin ár.
A fundinum var samþykkt
aðalskipulag Húsavíkur 1985-
2005. Athugasemdir við tillögu
um nýja aðalskipulagið höfðu
aðeins borist frá einum manni,
Sigurði P. Björnssyni en bygg-
inganefnd taldi ekki ástæðu til að
gera breytingar á skipulaginu og
; var athugasemdum Sigurðar
svarað bréflega. Talsvert miklar
umræður urðu um skipulagsmál-
in á fundi bæjarstjórnar og ekki
voru allir bæjarfulltrúar sáttir við
fyrirhugaða brúarsmíði yfir Búð-
ará en að lokum var skipulagið
samþykkt með sjö atkvæðum,
einn bæjarfulltrúi greiddi atkvæði
á móti og annar sat hjá. Aðal-
skipulagið verður nú sent skipu-
lagsstjóra ríkisins til staðfesting-
ar.
Ákveðið er að Húsavíkurbær
kaupi Tún, húseign Jóhanns
Skaptasonar sem hann ánafn^ði
Safnahúsinu. Kaupverð hússins
er byggt á brunabótamatsverði
en fyrirhugað er að nota húsið í
tengslum við uppbyggingu skóla-
halds á Húsavík.
Aðalfundur Hótel Húsavíkur
var haldinn 17. des. Akveðið er
að eignaraðilar annist áfram
rekstur hótelsins, en þeir tóku
við rekstrinum af Samvinnuferð-
um í haust. Nú er lokið fjárhags-
legri endurskipulagningu og á
aðalfundinum var ákveðið að
auka hlutafé um 8 milljónir
króna.
Kosningar um hvort heimila
eigi opnun áfengisútsölu á Húsa-
vík verða haldnar laugardaginn
3. jan. n.k., 1698 manns eru á
kjörskrá, þeir bæjarbúar sem eru
18 ára eða eldri á kjördegi.
Áfengisvarnanefnd Húsavíkur
hefur boðað til almenns borgara-
fundar sunnudaginn 28. des.,
óskar nefndin eftir að flokkarnir
sendi fulltrúa á fundinn og geri
grein fyrir afstöðu sinni til
málsins. IM
„BylgjaiT
komin
norður
„Leyfið er fengið og við byrj-
um annað hvort í kvöld eða á
morgun,“ sagði Einar Sigurðs-
son útvarpsstjóri Bylgjunnar
er Dagur ræddi við hann í gær
um sendingar stöðvarinnar til
Akureyrar.
„Þetta leggst vel í mig enda er
ég fæddur og uppalinn á Akur-
eyri,“ sagði Einar. Þess má geta
að Bylgjan sendir út á FM-98,9
og er útvarpað allan sólarhring-
inn. gk-.
Umhleypingar
um hátíðina
Samkvæmt upplýsingum frá
Veðurstofu Islands verður
nokkuð umhleypingasamt á
Norðurlandi um jólin.
Á morgun er spáð suðvestanátt
með rigningu eða slydduéljum. Á
aðfangadag er spáð slydduéljum
með kólnandi veðri, þó ekki
frosti, einkum vestan til. Ekki er
gott að segja til um vindátt á
jóladag en spáð er éljagangi og
kólnandi veðri þann dag. Á ann-
an í jólum er líklegt að norðanátt
verði ríkjandi og einhver
úrkoma.__
Eining
mótmælir
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á stjórnarfundi hjá
Verkalýðsfélaginu Einingu 18.
desember sl.
„Stjórn Verkalýðsfélagsins
Einingar leyfir sér að láta í Ijós
undrun sína yfir þeirri ákvörðun
Bæjarstjórnar Dalvíkur að bjóða
til sölu eignarhluta sína í Útgerð-
arfélagi Dalvíkinga og Söltunar-
félagi Dalvíkur.
Það er Ijóst, að atvinnulíf Dal-
víkurbæjar hefur öðru fremur
grundvallast á rekstri þessara
tveggja fyrirtækja og þeirri
útgerð sem þau hafa haft með
höndum. Því hlýtur það að vera
höfuðnauðsyn að tryggt sé, að
þau starfi áfram á Dalvík og ekki
dragi úr starfsemi þeirra frá því
sem verið hefur. Með því að selja
hlut bæjarins í fyrirtækjunum,
jafnvel þótt til heimamanna væri,
verður ekki séð fyrir hver fram-
tíðin verður. Heimamenn geta
selt öðrum og heimamenn geta
flutt burtu eða flutt reksturinn að
hluta til annarra staða. Besta
tryggingin fyrir öruggum rekstri
fyrirtækjanna og góðu gengi fyrir
atvinnulíf staðarins lilýtur að
vera að bæjarfélagið hafi þar
hönd í bagga og úrslitaáhrif, þeg-
ar breytingar koma á dagskrá.
Stjórn Verkalýðstelagsins Ein-
ingar leyfir sér að vona, að bæjar-
stjórnin taki umrædda ákvörðun
sína til endurskoðunar en beiti
sér hér eftir sem hingað til fyrir
sem öflugustum rekstri þessara
fyrirtækja."