Dagur - 23.12.1986, Blaðsíða 20
Jólabækurnar renna út:
„Alíslensk fyndni“
selst mest
Að sögn bóksala hefur salan
gengið vel, jafnvel geysilega
vel að mati flestra. Þeir standa
í ströngu við að panta bækur
því sumar hverjar seljast fljótt
upp. Skv. upplýsingum frá
bókaverslunum á Akureyri,
Húsavík og Sauðárkróki í gær
eru þetta söluhæstu bækurnar:
1. Alíslensk fyndni - Magnús
Óskarsson tók saman.
2. Svarti riddarinn - Alistair
MacLean.
3. Líf mitt og gleði - Puríður
Pálsd./Jónína Michaelsdóttir.
4. Grámosinn glóir - Thor Vil-
hjálmsson.
5. Saman í hring - Guðrún
Helgadóttir.
6. Minningar Huldu Á. Stef-
ánsdóttur, æska.
7. Enga stæla! - Andrés Ind-
riðason.
8. Öldin okkar - Gils Guð-
mundsson skráði.
9. Aldnir hafa orðið - Erlingur
Davíðsson.
10. Purpuraliturinn - Alice
Walker. SS
Talsvert hefur veríð um umferðaróhöpp á Akureyri að undanförnu. Hér
skall hurð nærri hælum á Spítalavegi í gær, en þó sluppu menn með
skrekkinn. Mynd: rþb
Varaflugvöllur á Sauðárkróki:
Náttúruvemdarráð gegn lengingu
Náttúruverndarráð hefur lagst
gegn því að varaflugvöllur
verði gerður á Sauðárkróki, ef
lengja á flugbrautina til
suðurs. Þetta kemur fram í til-
kynningu frá ráðinu sem búið
er að birta.
Áætlanir um lengingu flug-
brautarinnar á Sauðárkróki hafa
frá upphafi verið miðaðar við
lengingu til suðurs. Það sem
Náttúruverndarráð sér athuga-
vert við þessa lengingu er að á
því svæði er mikið andavarp.
Eins er það svæði friðað sam-
kvæmt náttúruverndarlögum.
Náttúruverndarráð lét á síð-
asta ári kanna fugialíf á þessu
svæði. Ævar Petersen fugla-
fræðingur vann þessa könnun fyr-
ir ráðið. Hann segir að varpland-
ið á þessum stað sé eitt hið merk-
asta á landinu. Sá hluti sem vænt-
anlega færi undir flugbrautina, er
talinn mikilvægasti hluti varp-
landsins.
Gísli Gíslason framkvæmda-
stjóri Náttúruverndarráðs segir
að staða Náttúruverndarráðs sé
nokkuð sterk í málinu vegna
náttúruverndarlaganna.
Lenging brautarinnar til
norðurs er ekki talin hentug, þar
sem þá þurfi að fara út í sjó og
ekki sé mögulegt að Jengja braut-
ina nema upp í 2300 metra, í stað
2500-3000 metra sem er talin
nauðsynleg lengd varaflugvallar.
Einnig er talið að brautarendinn
og ýmiss aðflugsbúnaður verði í
hættu vegna brims.
Haukur Hauksson varaflug-
málastjóri sagði að aðrir staðir
komi til greina, svo sem Akur-
eyri, Aðaldalur og Egilsstaðir.
Hjá samgönguráðuneytinu er
verið að kanna fleiri kosti en
Sauðárkrók. „P;.
Sauðárkrókur:
Góð
sala hjá
Hegranesinu
Hegranesið kom í gærmorgun
til heimahafnar á Sauðárkróki
að lokinni góðri söluferð til
Þýskalands. Skipið seldi í Cux-
haven í síðustu viku 184 tonn,
mestmegnis karfa og var með-
alverðið 63,17 krónur á kílóið.
Þetta var besta sala hjá
íslensku skipi í Þýskalandi í
jólamánuðinum og varð
hásetahluturinn í túrnum um
157 þúsund að orlofi með-
töldu. .
Skafti kom inn á föstudag með
43 tonn eftir tveggja sólarhringa
útiveru. Pakkning hafði bilað í
spilröri, hélt skipið til veiða um
kvöldið og von var á því til
löndunar í morgun. Drangey
kom í gærmorgun með 80 tonn
eftir viku veiðiferð. Togarar ÚS
verða við bryggju yfir jólin og
verða sjómennirnir örugglega
hvíldinni fegnir eftir stirða tíð á
miðunum undanfarnar vikur.
Næg vinna hefur verið í frystihús-
um við Skagafjörð undanfarna
daga og sýnt þykir að vinna verði
hjá fiskvinnslufólki milli jóla og
nýárs. -þá