Dagur - 23.12.1986, Síða 4
4 - DAGUR - 23. desember 1986
Eldridansaklúbburinn
Dansleikur verður í Lóni, Hrísalundi 1, laugardaginn 27.
des. kl. 22.00. til 03.00.
Góð hljómsveit. Allir velkomnir. Stjórnin.
Gteðiíy jóC
ogfarscét konurndi ár
Þökkum viðskiptin
*
M
\.
S JAKALINN s/f
Grenivöllum 16
\
n
X
Óskum viðskiptavinum svo
og öllum landsmönnum
gíeðiíegra jó(a og
farscddar á ttýju ári.
Þökkum viðskiptin.
Hjólbarðaþjónustan
Hvannavöllum 14b, Akureyri,
sími 22840.
Pólaris umboðið á íslandi.
dP
/F2
.0 I-
J
X
Óskum viðskiptavinum okkar
gíeðilegra jóía og
forsceís komondi árs.
Þökkum viðskiptin á árinu.
BILVIRKI
Fjölnisgötu 6.
-\M'/ -
X
Gíeðiíeg jóC
og farsceít kotnandi ár
Þökkum viðskiptin.
Bókaverslunin
Eddal
m
Hafnarstræti 100. simi 24334
*
,vM//-
Öldrunarráð Akureyrar
óskar öldruðum á Akureyri,
heimilisfólki Dvalarheimilanna,
starfsfólki sínu öllu
og viðskiptavinum
gíeðiíegra jóía
og farsceís árs.
Erlingur Pálmason yfírlögregluþjónn að draga út nöfn vcrðlaunahafa í jólagetraun barnanna
J ® 1 li rjr-r: ^rn fawwiíui.aiÍ' 1 er~ •r
H £j I P
— ' " .
„í jólaumferðinni“:
Verðlaunin verða aflient á morgun
Eins og undanfarin ár gangast
skóiar, lögregla og Umferðar:
ráð fyrir getraun sem heitir „I
jóiaumferðinni“ og er hún fyr-
ir skólabörn 6-12 ára.
Börnin á Akureyri hafa nú
skilað inn úrlausnum sínum og
var dregið úr réttum lausnum á
lögreglustöðinni þann 19. des-
ember.
Að þessu sinni er það Kaupfé-
lag Eyfirðinga sem gefur verð-
launin en þáð er í tilefni af 100
ára afmæli kaupfélagsins.
Verðlaunin eru leikföng m.a.
vörubíllinn Dúi frá leikfanga-
gerðinni Öldu á Þingeyri, og
einnig eru fallegir dúkkuvagnar
frá sama fyrirtæki.
Á aðfangadag verður síðan
verðlaununum ekið heim til
þeirra heppnu og eru það lög-
reglumenn sem sjá um það.
„ER ÞAÐ
EINLEIKIГ
- Afmælissýning Þráins á Akureyri
Á annan dag jóla og þann þriðja
verður Þráinn Karlsson leikari
með sýningar í leikhúsinu á
Akureyri. Þar verða á ferðinni
tveir einþáttungar, sem í heild
sinni kallast, „Er það einleikið?"
Þættirnir heita Varnarræða
mannkynslausnara og Gamli mað-
urinn og kvenmannsleysið. Þetta
eru einleikir (monodrama) og
Þráinn Karlsson leikari flytur þá
báða. Sýningin er haldin að frum-
kvæði Þráins sem á 30 ára leik-
afmæli um þessar mundir.
Þráinn hefur lengst af starfað
hjá Leikfélagi Akureyrar og var
í hópi þeirra leikara sem ráðnir
voru þegar það var gert að
atvinnuleikhúsi árið 1973.
Böðvar Guðmundsson,
höfundur verksins, er löngu
kunnur fyrir kvæði, ballöður,
smásögur, söng og leikrit.
Efni fyrri þáttarins verður best
lýst með nafninu, Varnarræða
mannkynslausnara. Þó hverjum sé
í sjálfsvald sett hvaða merkingu
hann leggur í lausnir og vörn
„lausnarans“ og viðbrögð sam-
félagsins við honum. Hinn síðari,
Gamli maðurinn og kvenmanns-
leysið, sver sig meira f ætt við
Ipðabókina Vatnaskil sem Böðv-
ar sendi frá sér fyrr á árinu en
mörgum, sem fylgst hafa með
Böðvari fannst þar kveða við nýj-
an tón.
í þessum þætti segir miðaldra
maður ævi sína, allt frá bernsku-C
dögum í sveitinni, þaðan sem
leiðin liggur út í heim og endar á
olíuborpalli í Norðursjónum. Á
ytra borði er þetta saga sveita-
pilts og sveitunga hans, saga
heimabyggðar og gamla
mannsins, sveitarhöfðingjans,
saga blómlegrar byggðar sem ól
merka syni uns hagur versnar og
sveitin fer í eyði. En sé betur að
gáð er þetta margslungið uppgjör
Böðvars við fortíð og nútíð,
landið, þjóðina og heiminn, hug-
Þráinn Karlsson.
sjónir og glötuð markmið. Frá-
sögnin er í senn mild og ljóðræn,
dapurleg og skopleg.
Leikstjóri er Þórhildur Þorleifs-
dótir, leikmynd er eftir Jón Þóris-
son.
Vegna þrengsla í leikhúsinu
verða aðeins þessar 2 sýningar á
verkinu „Er það einleikið?"
Glerárkirkja:
Sjálfboða vi nna um hátíðimar
Að undanförnu hefur mikið verið
unnið í sjálfboðavinnu í Glerár-
kirkju og ætíð rösklega tekið til
hendi. í suðurálmu og anddyri
(þeim hluta sem áformað er að
taka fyrst í notkun) er grunnmál-
un að mestu lokið. Er nú komið
að margs konar innréttingavinnu
svo sem smíði innveggja, málun
veggja og glugga, frágangi eld-
húss og snyrtinga auk margs
annars.
Margir hafa látið í ljós áhuga
að koma og vinna milli jóla og
nýárs þar sem sú ákvörðun hefur
víða verið tekin í stofnunum og
fyrirtækjum að loka þá daga og
jafnvel allt fram til 5. janúar.
Hefur Byggingarnefnd því
ákveðið að gangast fyrir sjálf-
boðavinnu í kirkjunni sem hér
segir:
Laugardaginn 27. desember.
Mánudaginn 29. desember.
Þriðjudaginn 30. desember.
Föstudaginn 2. janúar.
Laugardaginn 3. janúar.
Eru allir sem leggja vilja hönd
á plóginn, bæði konur og karlar,
hjartanlega velkomnir til starfa,
og stuðla þannig að því að koma
fyrsta hluta kirkjunnar í notkun
og gera þar með langþráðan
draum að veruleika.