Dagur - 23.12.1986, Side 8
8 - DAGUR - 23. desember 1986
Kristján Tryggvason
Akureyri:
„Jólin eru í
föstum
skorðum“
„Jólaundirbúningur á mínu
heimili er í föstum skorðum frá
gamalli tíð. Maður tók þetta upp
eftir foreldrum sínum. Pað má
búast við því að nýir jólasiðir hafi
komið inn þegar konan mín kom
til sögunnar. Annars féllu okkar
jólasiðir mikið saman. Við vor-
um mjög innstillt á gamla siði svo
sem að gera laufabrauð, eins og
reyndar flestir hér fyrir norðan.
Hangikjötið var sjálfsagður hlut-
ur í jólahaldinu og var ævinlega
borðað á jóladag. Síðustu ár hef-
ur Iéttreyktur lambahryggur ver-
ið á borðum á aðfangadag, en
slíkt var ekki komið fram á sjón-
arsviðið áður fyrr. Meðan konan
mín var á lífi voru oft rjúpur í
matinn, en slíku hafði ég ekki
vanist af Svalbarðsströndinni,
þaðan sem ég er upprunninn.
Hangikjötið var allsráðandi í
minni æsku. Eins man ég vel eftir
því að reyktir bringukollar voru
mikið borðaðir. Þetta sést varla í
dag og sýnir hvernig siðir breyt-
ast með tímanum.
Ég fer lítið til kirkju á jólum,
en fjölskylduboð eru algeng og
hafa verið í gegnum árin. Auðvit-
að eru nýir siðir að ryðja sér til
rúms í dag. Jólaglöggið er gott
dæmi um það. Slíkt var ekki til
og virðist vera innflutt. Jólasvein-
ana þekktum við og voru það þá
íslensku jólasveinarnir. Bók
Jóhannesar úr Kötlum um jóla-
sveinana kom út þegar ég var
barn og þær þulur og jólasveinar
virðast vera ljóslifandi fyrir
mönnum enn í dag, þrátt fyrir
þann rauðklædda."
Ema Gunnarsdóttir:
„Hlakka allt-
aí jafiimikið
tíl jólanna“
„Helgina fyrir jólin er ég að
vinna fyrir sunnan, eins og aðr-
ar helgar, en síðan er ég komin
í frí. Það er reyndar ball þann
27. des. en ég ræð hvort ég I
syng þá og ég er ekki búin að
ákveða það,“ sagði Erna
Gunnarsdóttir, er hún var
spurð hvernig hennar jól yrðu.
Erna er söngkona og kennari.
Syngur með hljómsveit Magn-
úsar Kjartanssonar á Hótel
Sögu og kennir við Verk-
menntaskólann. Það er því
nóg að gera hjá Ernu og hún er
stöðugt á ferðinni milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur. En
áfram með jólin.
„Á Þorláksmessu fer ég alltaf í
bæinn, hvort sem ég þarf að
versla eitthvað eða ekki, þetta er
bara föst venja. Á aðfangadag er
jólagjöfum komið til réttra aðila
og urn kvöldið borðum við hjá
pabba mínum og mömmu eða
hjá tengdaforeldrum mínum sem
búa í Fnjóskadal. Á jóladag er
síðan borðað á þeim stað sem við
vorum ekki á aðfangadagskvöld.
Á 2. í jólum eru það svo jólaboð-
in, alltaf nóg af þeim.“
- En áramótin?
„Það er nú ekki alveg ákveðið
hvernig þau verða, en mér þykir
líklegast að við borðum heima
hjá okkur, við erum nýflut.t,
keyptum okkur nýlega raðhús-
íbúð og erum að koma henni í
stand. Við bjóðum þá einhverj-
um til okkar í mat, líklega for-
eldrum okkar beggja og eyðum
áramótum hér heima í rólegheit-
unum.“
- Hvernig er með matarvenj-
ur, eru þær fastar?
„Já, hjá minni fjölskyldu eru
það rjúpur á aðfangadag og mér
finnst jólin ekki koma fyrr en ég
finn rjúpnalyktina. En því miður
finnst manninum mínum rjúpur
ekki góðar og það er orðið svolít-
ið vandamál. Það er svínakjöt
heinia hjá foreldrum hans á
aðfangadag. Á 2. í jólum er svo
alltaf hangikjöt og yfirleitt svína-
bógur á gamlárskvöld og ég ætla
ekki að breyta út af þeirri venju
nú.“
- Hlakkar þú til jólanna?
„Já, hvort ég geri, mér þykir
þetta alltaf jafn gaman. Nei, nei,
mér finnst þetta ekki bara hátíð
barnanna, en auðvitað er spenn-
ingurinn öðruvísi en þegar maður
var krakki.“
- Nú færð þú ágætis frí um
jólin, hvernig á að eyða frídögun-
um?
„Það er nú alveg á hreinu, það
er verið að sauma gardínur,
hengja upp myndir og koma
hverjum hlut á sinn stað í nýju
íbúðinni og frídagarnir fara vænt-
anlega flestir í það.“
Jón Baldvin Halldórsson
Reykjavík:
„Jól í dalnum
voru
skenuntileg“
„Mín jól koma til með að breyt-
ast mikið, því jólin hafa alltaf
verið haldin í dalnum kæra, -
Svarfaðardal. Nú er ekki auðvelt
að hlaupa þangað, þar sem fjöl-
skyldan er flutt þaðan. Allt stefn-
ir í að ég haldi mín jól á Akur-
eyri. Auk þess er ég að halda mín
fyrstu jól með eigin fjölskyldu,
svo það er mikil breyting frá því
sem áður var. Stóra spurningin er
sú, hvort ég komist norður á
aðfangadag. Ég verð að reikna
með því að komast á síðustu
stundu vegna vinnu. Ef ekki, fæ
ég hvorki að eta né drekka, því
enginn undirbúningur er hjá okk-
ur hér í Reykjavík.
Jólin mín í dalnum voru
skemmtileg. Aðfangadagur var
notaður í að fara milli bæja með
jólapóstinn. Það var farið
snemma í fjósið og reynt að klára
þar snemma, svo menn kæmust í
jólasteikina á skikkanlegum
tíma. Það var vinsælt að fara í
fjósið á aðfangadag. Það þurfti
að eyða deginum hvort eð var,
svo það var ekki verra að eyða
honum með kúnum. Þær fengu
sérstaklega vel gefið þennan dag.
En hjá okkur fólkinu var lamba-
hryggur á aðfangadag, svo lengi
sem ég man eftir mér, en rjúpur
hafa aldrei verið á mínu heimili.
Hangikjötið var alltaf á jóladag.11
Saga Jónsdóttir:
„Víl halda í
gamlar venjur“
„Ég byrja á því að setja aðventu-
ljós í gluggann og hengja upp
jólagardínurnar fyrir eldhúsið.
Laufabrauðið og smákökurnar
eru með seinni skipunum, því
annars klárast þær bara fyrir jól.
Annars er ég búin að baka 9 sort-
ir af smákökum, en það má eng-
inn vita af því. Ég er alltaf með
svínahamborgarhrygg og rækju-
forrétt á aðfangadag. Það er allt-
af Þorláksmessuskata hjá okkur.
Við skreytum alltaf eftir miðnætti
á Þorláksmessu og hefjum mál-
tíðina alltaf klukkan 6 á aðfanga-
dag. Sama er á gamlárskvöld.
Mér þykir gaman að halda í
eitthvað svona gamalt. Þetta tek
ég í arf frá mínum foreldrum.
Einnig er það mitt verk að
afhenda jólagjafirnar og fær eng-
inn að snerta þær á undan mér.
Síðan ég flutti suður hefur verið
lítið um fjölskylduboð. Eins hef
ég verið að vinna yfir jól við
leikhúsin, svo heimsóknir hafa
verið stopular."
Elín Karisdóttir
Raufarhöfn:
„Hangíkjötíð
alltivið
hendina“
„Það fer ekki mikiö tyrir undir-
búningi hjá mér, því ég er í vinnu
og nota frítímann til að baka og
laga til. Ég baka bara 5 smáköku-
sortir að þessu sinni, því tertur
eru vinsælli. Jólatréð og annað
innandyra er alltaf skreytt á Þor-
láksmessu. Jólamaturinn er rjúp-
ur á aðfangadagskvöld og er það
eini fasti punkturinn á mat-
seðlinum. Svínasteik og eftirrétt-
ur er á jóladag. Auðvitað er
hangikjötið alltaf við hendina og
menn ganga í það þegar þeir
vilja.
Það er mikið um að fólk fari til
Húsavíkur eða Akureyrar til að
versla, því vöruúrval er lítið hér.
Ef maður er ekki á staðnum þeg-
ar tekið er upp, þá er hætt við því
að maður fái ekkert. Þetta er
hlutur sem fólk skilur ekki sem
býr á stærri stöðum. Það er mjög
lítið um jólaskreytingar hér í
þorpinu. Það er aðeins í kaupfé-
laginu. Aðventuljós eru að vísu í
gluggum, en að öðru leyti er nán-
ast ekkert af skreytingum. Ég
vona að ég komist til Akureyrar,
þó ekki væri nema til að sjá
skreytingarnar, því þær koma
manni í jólaskap.
Fjölskylduboð eru hér hjá okk-
ur á jóladag. Að öðru leyti er
ekkert í föstum skorðum hvað(
það varðar. Okkur líður vel hér
og höldum okkar gleðilegu jól.“
Sigrún Jónsdóttir
Rangá í Köldukinn:
„Eitthvað gott
fyrir meiin
og dýr“
„Undirbúningurinn er geysimikill
í sveitinni. Aðventukransinn er
kominn á borðið og ljósið í
gluggann. Jólin eru mikil fjöl-
skylduhátíð hjá okkur. Til dæmis
hittist öll fjölskyldan við laufa-
brauðsgerð. Við bökum smákök-
ur saman. Þegar sonur okkar var
prestur hér, messaði hann á jóla-
dag. Eftir það var kvöldverður
hjá okkur. Þá var nú gaman að
hafa alla fjölskylduna í kringum
sig.
Við höfum alltaf haft læri á
aðfangadag og hafa börnin mín
haldið þessum sið, þrátt fyrir
miklar breytingar í þjóðfélaginu.
Að sjálfsögðu er möndlugrautur
á eftir og verðlaun fyrir möndl-
una. Á Þorláksmessu höfum við
alltaf hangikjöt. Það er síðan
borðað kalt á jóladag. Við förum
í leiki, bæði ungir og gamlir.
Unga fólkið leggur þrautir fyrir
það eldra og reynir að reka á gat.
Svo syngjum við auðvitað saman.
Við höfum haft það fyrir sið að
fara til Akureyrar fyrir jólin. Það
verður líka núna ef færðin verður
góð. Það er alltaf viss ljómi yfir
því að fara til Akureyrar í jóla-
ferð. Dýrin fá sín jól líka. Hestar
sem gengið hafa úti eru hýstir og
fá sérstaklega gott hey. Sama er
um féð. Það er því eitthvað gott,
bæði fyrir menn og dýr á jólun-
um.“
Ema Indriðadóttir
Akureyri:
/
„Utvarps-
messan er
ómissandi“
„Það eru fastar skorður á mínum
jólum og er það eitthvað sem
maður tekur í arf frá sínu
æskuheimili. Ýmislegt er það
sem mér þykir tilheyra Þorláks-
messu, aðfangadegi og jóladegi.
Lyktin af hangikjötinu og gren-
inu sem verið er að koma með
inn í húsið skapar vissa stemmn-
4ngu, að ógleymdum jólakveðj-
unum í útvarpinu, sem eru ómiss-
andi, Auk þess að fara í kirkju-
garðinn og setja eitthvað fallegt á