Dagur - 23.12.1986, Blaðsíða 9
23. desember 1986 - DAGUR - 9
leiðið hjá sínum nánustu sem
farnir eru eitthvað annað. Þetta
er nauðsynlegur hluti undirbún-
ingsins og gefur mér góða tilfinn-
ingu fyrir jólunum.
A aðfangadag er jólatréð
skreytt. Þegar ég var bam feng-
um við ekki fara inn í stofu til að
sjá jólatréð fyrr en klukkan var 6
á aðfangadag. Þá voru jólin líka
komin til okkar. Svo er það mess-
an í útvarpinu, hún er ómissandi.
mér þykja jólin ekki fullkomin ef
ég fæ ekki messuna. Þrátt fyrir
það fer ég ekki í kirkju og var
það ekki gert á mínu heimili. En
messan er ómissandi í útvarpinu.
Þegar ég var við nám í Svíþjóð
var engin messa og engar jóla-
:kveðjur og voru það mikil við-
brigði.
Eftir að ég fór sjálf að búa
höldum við jólaboð með minni
fjölskyldu á jóladag og kemur það
til vegna þess að ég á afmæli á
jóladag. Sem barni þótti mér ég
aldrei eiga afmæli og þótti það
mjög sorglegt. Vinkona mín sem
á afmæli á aðfangadag gerði sér
lítið fyrir og skipti við ömmu sína
á afmælisdögum. Þannig gat hún
haldið upp á afmælið sitt í ágúst
meðan amman tók afmælið sitt út
á aðfangadag. Hins vegar átti ég
ekki ömmu sem ég gat skipt við.
Einn fastur punktur þarf að
vera á jólunum hjá mér, þrátt
fyrir tiltölulega fastar skorður á
hlutunum, en það er að vera
heima hjá mér á aðfangadags-
kvöld. Það er nauðsynlegt og get
ég ekki hugsað mér að vera ann-
ars staðar.
Fleira er í föstum skorðum,
svo sem maturinn. Það er ævin-
lega hamborgarhryggur, spergil-
súpa og möndlugrautur á
aðfangadag og hangikjöt á jóla-t
dag. Jólakortin eru alltaf opnuð
á sama tíma og jólabækurnar eru
ómissandi. Það hefur verið hefð í
minni fjölskyldu að gefa bækur.
Ekki er það verra að geta kúrt í
rúminu fram eftir á morgnana,
með bók að lesa og smákökur á
diski. Þetta er alveg dásamlegt."
Bjöm Mikaelsson
Sauðárkróki:
„Mikflrýmum
á konfektinu4
„Ég hef yfirleitt verið mikið
bundinn í vinnu á jólum og ára-
mótum. Undirbúningur hefur
alltaf gengið sinn gang fyrir það.
Nú orðið eru dætur okkar orðnar
það stálpaðar að þær hjálpa mik-
ið til. Það þýðir ekki að ég taki
ekki þátt í undirbúningnum.
Hann byrjar snemma í desember
með laufabrauðsgerðinni. Svo
gerum við líka konfekt og fara í
þetta tveir dagar. Jólakortin eru
næst og pakkar sem þurfa að fara
til útlanda. Á aðfangadag eií
lambahryggur á mínum borðum.
Það er hefð frá mínu æsku-
heimili. En rjúpur vil ég ekki
borða. Þær eiga að vera hvítar.
Matur er klukkan 6 og þá eru jól-
in byrjuð. Skatan á Þorláksmessu
er ómissandi þáttur undirbún-
ingsins. Fleira er í föstum
skorðum, svo sem heimsóknir og
boð.
Konfektgerðin er sér kapítuli.
Ég tel mig vera konfektmeistara
fjölskyldunnar. Það er ekki víst
að ég búi til manna mest af kon-
fekti. Hins vegar borða ég manna
mest af konfekti. Þegar búið er
að gera konfektið er það geymt í
kaldri geymslu. Einhverra hluta
vegna vill það rýrna ansi mikið.
Enda er talað um að ég geri mér
óeðlilega margar ferðir í geymsl-
una. A síðasta ári þótti orðið
langt á milli bitanna í kössunum.
Ég taldi þetta vera eðlilega
rýrnun.
í sambandi við starfið gerum
við okkur dagamun um jólin. Við
skreytum lögreglustöðina fyrir
jólin. Um áramót höfum við opið
hús fyrir gesti og gangandi. Þá
sem endranær eru allir velkomnir
að líta inn og þiggja veitingar.
Þetta er skemmtilegt og gefur
samband við fólkið sem er á ferð-
inni á gamlárskvöld. Það koma
líka margir og bjóða gleðilegt ár,
þiggja veitingar. Þetta er mjög
gaman.“
AKUREYRARBÆR
Frá Ferliþjónustu
S.V.A.
Ferliþjónustan mun
hjólastólum um jól
akstur samdægurs.
Aöfangadagur frá kl. 9-12.
Jóladagur frá kl. 10-11.
Annar í jólum frá kl. 10-11.
Gamlársdagur frá kl. 9-12.
Forstöðumaður.
sjá um akstur fyrir fólk í
og áramót og skal panta
Sími 24929.
Sími 22485.
Sími22485.
sími 24929.
GLEÐILEG
JÓL
SúHáfófi oú&an íattdúmötutcirtt otíctm
yíe&tfayna 'jál#,.
EIMSKIP
...