Dagur - 23.12.1986, Blaðsíða 12
12 - DAGUR - 23. desember 1986
Marri á æfíngu í skalltennis fyrir nokkrum dögum. Gunnar Blöndal fylgist undrandi með tilburðunum en Marri er
einbeittur eins og sjá má.
„Gjörbylting í
gatnakerfinu“
vera með næst og það gerði ég, á
strigaskóm. Mína fyrstu fótbolta-
>skó eignaðist ég nokkrum árum
síðar, Iðunnarskó sem voru nú
ekki fullkomnari en það að þegar
maður var að keppa þurfti að
hafa áhöld við hliðarlínuna til
þess að slá naglana til baka sem
gengu upp úr botninum upp í ilj-
arnar á manni.“
- Komstu frá fátæku heimili?
„Pabbi var verkamaður og við
vorum fjögur systkinin. Það var
því oft erfitt en okkur skorti í
raun ekkert og manni datt ekki í
hug að vera með neina heimtu-
frekju, það kom bara ekki til
greina. Það er eitthvað annað en
í dag þegar allir hafa allt til alls
og heimtufrekjan gengur oft úr
hófi fram.
Ef til vill fæ ég útrás í því í dag
að geta veitt mér allan þann
útbúnað sem þarf í golfið, haft
allt til alls. Eins hef ég alltaf lagt
að krökkunum mínum þremur að
Ieggja rækt við íþróttirnar og
reynt að sjá til þess að þau hefðu
alltaf allt sem til þarf á þeim vett-
vangi.“
„Ætlaði að verða
bflstjóri“
En lífið er ekki bara leikur.
Eins og Marri sagði var hann 11
ára þegar hann fór út á vinnu-
markaðinn. Þar hefur ekkert lát á
orðið og vinnudagurinn oft verið
langur. En stóð aldrei til að ganga
menntaveginn?
„Nei, bara að taka gagnfræða-
prófið. Ég ætlaði mér alltaf að
verða atvinnubílstjóri og það
varð ég strax 17 ára. Fyrst keyrði
ég hjá bænum, svo hjá Sendibíla-
stöðinni og einnig á milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur. Ég var
líka einn af stofnendum Hóp-
ferða sf. og keyrði fólksflutn-
ingabifreið um tíma.“
- Og svo Iá leiðin til starfa hjá
Akureyrarbæ. Hvernig vildi það
til að þú varðst yfirverkstjóri
Akureyrarbæjar?
„Pabbi hafði unnið hjá Akur-
eyrarbæ í um 40 ár, var fyrst hef-
ilstjóri og síðan aðstoðarverk-
stjóri. Ég hafði lært að hefla hjá
honum þegar ég var strákur. Það
kom fyrir að það var kallað í mig
ef vantaði mann á hefil vegna
veikinda og svo fór að ég festist
þarna í starfi og varð vélamaður.
Pegar verkstjórinn féll frá asnað-
ist ég til þess að senda inn
umsókn um starfið og öllum að
óvörum fékk ég starfið. Ég varð
hissa sjálfur en ástæðan var sú að
pólitíkusarnir komu sér ekki
saman um neinn af umsækjend-
unum. Ég hef passað mig á því að
ekki sé hægt að kenna mig við
neinn stjórnmálaflokk, þótt það
hafi verið reynt. Og í þessu starfi
er ég búinn að vera í um 20 ár.“
- Var erfitt að taka við þessu
starfi?
„Já það var það og þetta er
erfitt og krefjandi starf þótt það
hafi breyst mjög mikið til batnað-
ar á síðustu árum. Þessu fylgir
mikil ábyrgð og það snýst mikið
um að skipuleggja hlutina vel svo
allt gangi upp. Oftast eru um 50
manns undir minni stjórn á vet-
urna en við erum svo um 100 á
sumrin þegar mest er um að
vera.
Hér áður fyrr þegar gatnakerfi
bæjarins var ekki orðið eins full-
komið og það er í dag var þetta
geysilega erfitt. Göturnar voru
ekki malbikaðar og sífelld vand-
ræði ef úrkoma var. Þá flæddi inn
í garða hjá fólki og jafnvel inn í
húsin, en eftir að göturnar voru
„teknar upp“ og allar lagnir sett-
ar þar í er þetta allt annað líf.
Það má segja að það hafi orðið
gjörbylting á öllu gatnakerfinu og
á öllum þeim leiðslum sem þar
eru undir.
Þeir þættir sem heyra undir
mitt starfsvið eru gatnagerð og
viðhald gatna, hreinsun þeirra,
sorphreinsun, holræsahreinsun
og öskuhaugarnir. Snjómokstur-
inn er stór þáttur í starfinu yfir
vetrarmánuðina og aðstaða okk-
ar til þess að leysa það starf vel af
hendi hefur batnað mjög mikið á
^ SAMBAND ÍSLENSKRA SAMVINNUFÉLAGA
Beta
heinisnieistarinn
- heitir bókin sem allir foreldrar
láta í jólapakkann.
Gleðileg jól!
Komið-heimilisútgáfa.
Geta skal...
Eitt blað kemur út milli jóla og nýárs.
Það kemur út þriðjudaginn 30. desember
og þurfa auglýsingar í það blað að berast
fyrir hádegi mánudaginn 29. desember.
Á nýju ári kemur fyrsta blað út þriðju-
daginn 6. janúar og þurfa auglýsingar í
það blað að vera komnar fyrir hádegi 5.
janúar á afgreiðslu auglýsingadeildar.
Gleðileg jól!
/r