Dagur - 23.12.1986, Blaðsíða 13
23. desember 1986 - DAGUR - 13
sama tíma og bærinn hefur
stækkað. Tækjakostur hefur auk-
ist mjög mikið og í dag erum við
með ákveðið kerfi sern við förum
eftir við moksturinn. Við erum
snemma á fótum og byrjum á því
að opna allar aðal leiðir, allar
helstu umferðargöturnar, og för-
um síðan aðra umferð á þær göt-
ur þegar mesta umferðin er búin,
þegar menn eru farnir til vinnu.
Síðan förum við út í hinar göt-
S
Vilhelm Agústsson:
,2Þá urrar hann
eins og tígrisdýru
„Marri er alveg sérstaklega
drenglyndur náungi sem má
ekkert aumt sjá. Hann er
einnig mjög samviskusamur
og ég veit að hann er með
hugann við starf sitt daga og
nætur. Það sést best á því
hversu vel hann fylgist með
veðri á veturna og lætur t.d.
gera göturnar klárar snemma
á morgnana ef snjókoma er,
þannig að þær eru orðnar
auðar þegar menn fara
almennt á stjá,“ sagði Vil-
helm Ágústsson er við spurð-
um hann álits á Marra Gísla.
„í leik er hann ákaflega
skemmtilegur. Mér finnst
skemmtilegast að vera mótherji
hans á æfingum þegar liann
berst til sigurs. Ef hann tapar á
hann til að urra eins og tígrisdýr
en sigri tekur hann skælbros-
andi og enginn er þá glaðari en
hann. Oft þegar hann er í sigur-
Vilhelm Ágústsson.
liði á æfingum þá vita fastagestir
í sundlauginni það strax morg-
uninn eftir og margir aðrir
bæjarbúar.
Eg vil að það komi skýrt fram
að það er með Marra eins og
marga fleiri Þórsara áð hann
telur alltaf vitlaust þegar hann
er að keppa. Og það er svo
skrítið að þessi vitlausa talning
er alltaf hans liði í hag,“ sagði
Vilhelm.
Guðni Jónsson:
„Einstakur
persónuleiki“
„Marri Gísla er alveg einstak-
ur persónuleiki,“ segir Guðni
Jónsson múrarameistari sem
hefur þekkt Marra lengi og
m.a. spilað með honum
knattspyrnu.
„Mér finnst það einkennandi
fyrir manninn að hann virðist
aldrei geta stoppað, hann þarf
alltaf að hafa eitthvað fyrir
stafni, vera á kafi í einhverju.
Þá er það ekki síður einkenn-
andi fyrir hann hversu góður
félagi hann er, ákaflega góð sál.
Það skeður líka alltaf eitt-
hvað skemmtilegt í kringum
hann og eina sögu get ég sagt
sem lýsir því vel hversu erfitt
hann á með að gefast upp. Við
ætluðum á æfingu einu sinni á
sunnudegi, en Marri hringdi og
sagðist ekki geta verið með
vegna þess að hann væri ákaf-
lega slæmur í bakinu. Svo fór
þó að konan hans keyrði hann á
æfinguna og Marri hálf skreið út
úr bílnum þegar hann kom. Nú
hittist svo á að við vorum alveg
passlega margir í tvö lið ef
Marri gæti verið með á æfing-
unni, en hann tók það ekki í
mál nema fenginn yrði maður til
að koma og leysa sig af.
Það var farið í símann og
maður fenginn til að koma.
Þegar hann kom voru búnar um
Guðni Jónsson.
20 mínútur af æfingunni og við
reiknuðum með að Marri yrði
hvíldinni feginn. En það var nú
eitthvað annað. Hann harðneit-
aði að hvíla sig þótt heilsan væri
ekki góð og sá sem hafði komið
til að hvíla hann skipti bara við
strákana í hinu liðinu. Þetta lýs-
ir keppnisskapinu hjá Marra
mjög vel að mínu mati,“ sagði
Guðni.
urnar. Við erum mjög sæmilega
búnir tækjum og reyndar hefur
orðið bylting á því sviði miðað
við það sem áður var.“
• - Marri Gísla. Hvers vegna
þetta gælunafn?
„Það hefur löngum verið vin-
sælt á Akureyri að uppnefna
menn. Þegar ég var strákur vor-
um við krakkarnir oft í þeim leik
sem kallaður var „húsbolt" en þá
var bolta kastað í vegg og nafn
einhvers í hópnum nefnt um leið
af þeim sem kastaði. Sá sem
nefndur var átti síðan að grípa
boltann áður en hann kæmi við
jörðina. Það var mjög vinsælt í
þessum leik að uppnefna þann
sem átti að grípa og þarna fékk
ég þetta nafn sem hefur fylgt mér
^ síðan.“
- Hvernig maður er Marri
Gísla?
„Ég held að ég sé glaðlyndur
og ég hef alltaf lagt á það áherslu
að reyna að vera sanngjarn. Sum-
ir segja reyndar að ég sé „stress-
aður“ og oft slæmur í skapi en ég
reyni að vera glaðlyndur og
sanngjarn. Ætli helsti ókostur
minn sé ekki sá að ég læt æsa mig
upp að óþörfu.“
Minning:
T Anna Jónína Snorradóttir
Fædd 29. nóvember 1971 - Dáin 17. desember 1986
Það er alltaf sorglegt þegar ungt
fólk deyr.
Og nú þegar Anna vinkona
mín og skólasystir er dáin þá
hugsar maður hvers vegna?
Hvers vegna þurfti hún að deyja
svona ung? En slíku getur maður
ekki svarað. Guð einn veit ástæð-
una fyrir því að hann kallaði
hana til sín.
Ég vil gera sálminn „Ó, þá náð
að eiga Jesú“ að mínum orðum
og biðja um blessun Guðs yfir
fjölskyldu hennar í framtíðinni,
og sendi þeim mínar innilegustu
samúðarkveðjur.
Ó þá náð að eiga Jesú
einkavin í hverri þraut.
Ó þá heill að halla mega
höfði sínu’ íDrottins skaut.
Ó það slys því hnossi’ að hafna
hvílíkt fár á þinni braut,
efþú blindur vilt ei varpa
von og sorg í Drottins skaut.
Eigir þú við böl að búa,
bíðir freistni, sorg og þraut
óttast ekki bænin ber oss
beina leið í Drottins skaut.
Hver á betri hjálp í nauðum?
Hver á slíkan vin á braut,
hjartans vin sem hjartað þekkir?
Höllum oss í Drottins skaut.
Ef vér berum harm í hjarta,
hryggilega dauðans þraut,
þá hvað helst er herrann Jesús
hjartans fró og líknar skaut.
Vilji bregðast vinir þínir,
verðirðu’ einn á kaldri braut,
flýt þérþá að halla’ og hneigja
höfuð þreytt í Drottins skaut.
J. Scriven.
Hanna Björk Bragadóttir.
Þrátt fyrir stórstígar framfarir í
tækni og vísindum m.a. læknavís-
indum, er margt sem mannlegur
máttur fær ekki við ráðið. Núna
mitt í jólaundirbúningi áður en
hátíð ljóssins gengur í garð hefur
sorgin knúið dyra. Lítið saklaust
blóm er hrifið burtu og eftir
stöndum við höggdofa.
Anna Jónína Snorradóttir,
frænka mín og fyrrum nemandi,
var rétt 15 ára, þegar hún andað-
ist 17. des. sl. á Fjórðungssjúkra-
húsinu.
Fyrir hugskotssjónum mínum
líður minning úr Barnaskóla
Akureyrar. Búið er að hringja
inn í tíma eftir hádegi, snjór er
úti, sem blotað hefur í. Börnin
ganga inn í röðum og við kennar-
arnir fylgjumst með. Allt í einu
er bankað létt í handlegginn á
mér með snjóugum vettlingi. Ég
lít við. Pínulítil hnáta stendur þar
og segir eilítið hikandi: „Veistu,
að þú ert frændi minn?“ Síðan er
hún horfin í röðina kankvís á
svip.
Þetta voru fyrstu kynni mín af
Önnu Jónínu sem nú er kvödd.
Foreldrum og öðrum aðstand-
endum votta ég mína dýpstu
samúð í þeirri miklu sorg.
Megi Guð styrkja þá.
Guðmundur Víöir Gunnlaugsson.
|5 Leikklúbburinn Saga
Pæld’í’ðí
Leikstjóri: Skúli Gautason.
Leikmynd: Arna Valsdóttir.
Lýsing: Arnar Kristinsson.
Frumsýning annan dag jóla kl. 20.30.
2. sýning 28. des. kl. 20.30.
3. sýning 30. des. kl. 20.30.
Miðasala í Dynheimum frá kl. 18.00 alla daga.
Miðaverð kr. 350,-.
Bókval sf.
ara
f tilefni þess veitum við 10%
staðgreiðsluafslátt dagana
milli jóla og nýárs.
★
Við óskum öllum viðskipta-
vinum nær og fjær
gleðilegra jóla og velfarnaðar
á komandi árum.
Þökkum ánægjuleg viðskipti á
liðnum 20 árum.
★
Nýir aðilar taka við rekstri
verslunarinnar frá næstu
áramótum og væntum við
áframhaldandi viðskipta þeim
til handa.