Dagur - 23.12.1986, Blaðsíða 17
23. desember 1986 - DAGUR - 17
„Jú, jú ég er á Nýja-Sjálandi,
það passar allt saman,“ segir
röddin í símanum eftir að búið
er að velja 11 stafa síinanúmer.
Það verður að segjast eins og
er að sambandið var furðu
gott. Klukkan var 14.00, eða 2
að degi til þegar slegið var á
þarna niður á hnöttinn og eng-
inn grunur um mjög mikinn
tímamismun, þegar spurt var
hvað klukkan væri á Nýja-Sjá-
landi.
„Ég er nýkominn upp í rúm og
var að fara að sofa. Að vísu er
klukkan 3 að nóttu til, en þetta er
allt í lagi þegar maður heyrir
rödd heiman frá íslandi," segir sá
sem er á hinum enda línunnar.
Það er Sigurður Björnsson
ungur Hríseyingur sem flutti
þangað niður eftir fyrir nokkrum
árum.
Siggi, - eins og hann er kallað-
ur, er einn af þeim sem var „fang-
aður“ af föngulegri stúlku frá
þessu fjarlæga landi, er hún var
við fiskvinnu í Hrísey. Þegar ást-
in er annars vegar skipta fjar-
lægðir og landamæri engu. Svo
var með Sigga og hann flutti með
sinni heittelskuðu til heimalands
hennar og býr nú í Oakland á
Nýja-Sjálandi. Þar starfar hann
við stórt byggingafyrirtæki og
segist hafa það mjög gott með
fjölskyldunni. En Siggi og kona
hans Shona Nickolson eiga eina
litla dóttur sem heitir Sara.
„Ég var að koma heim, því ég
þurfti að keyra vin minn út á
flugvöll. Þess vegna er ég nú
inn og er það um svipað leyti og
þið eruð að halda jólin hátíðleg-
ust á íslandi. Eftir að búið er að
taka upp pakkana, fara allir í
stuttbuxurnar og út á strönd. Þar
er deginum eytt í makindalíf og
þægilegheit. Að öðru leyti fer
ekki mikið fyrir jólunum. Að
vísu er eldaður góður matur óg
hann borðaður eftir jólagjafirn-
ar. Síðan er farið á ströndina.
Það er eins og jólin gleymist þeg-
ar búið er að taka upp pakkana."
- Eru þá jólin lítið annað en
jóladagsmorgun?
„Það fer ekki mikill tími í þetta
nema þann daginn. Hins vegar er
mikið um að haldnar séu jóla-
skemmtanir hjá fyrirtækjum. Við
hjónin erum nýlega búin að vera
í jólaveislu hjá fyrirtækinu þar
sem hún vinnur. Það var fenginn
bátur og siglt með allt liðið út í
litla eyju sem er klukkustundar-
siglingu frá höfninni hér. Þar var
slegið upp grillveislu með öllu til-
heyrandi og haft gaman fram á
kvöld. Síðan farið heim. Það er
mikið um svona veislur hjá fyrir-
tækjum og förum við eftir nokkra
daga í veislu hjá fyrirtækinu þar
sem ég vinn. Síðan fer ég með
dóttur okkar á jólaball. Þangað
kemur jólasveinn og gefur börn-
unum gjafir. Þetta er mjög gam-
an fyrir þau. Enda eru margir, -
bæði börn og fullorðnir spenntir
fyrir jólunum, en ég verð að
segja eins og er að ég finn mjög
lítið fyrir jólunum hérna syðra.
Sama er að segja um aðra íslend-
inga sem hér eru, en það eru um
8 manns. Við höldum hópinn og
Jól erlendis:
hann sat einn úti í garði með
hundinum sínum fram undir
morgun. Hann var ekki ánægður
með þessa svefnþörf manna á
þessum tímamótum og vildi hafa
þetta eins og heima á íslandi.“
- Hver er jólamaturinn?
„Það er svínakjöt og eitthvað
þess háttar sem menn matbúa hér
á jólunum."
- Það þýðir lítið að bjóða þér
- Hríseyingnum upp á rjúpur.
„Þú veist að við erum ekki
rjúpnaætur. Hins vegar hefur
okkur stundum áskotnast harð-
fiskur að heiman og þegar við
Islendingarnir komum saman
vaknar þjóðerniskenndin veru-
lega og menn háma í sig harðfisk
og smjör. Við sérstök tækifæri
hefur einhver lumaö á Hösku af
íslensku brennivíni og þykirgott.
Það var einn íslendingur að flytja
hingað fyrir stuttu og fékk bú-
slóðina í gámi á eftir sér. í gámn-
um voru 6 flöskur af brennivíni,
svo menn skála af og til í íslensku
brennivíni.“
- Skreyta menn híbýli sín eins
og hér á Islandi?
„Það er svolítið um það. Flest-
ir hafa jólatré. En það verður að
segjast að þau eru ræfilsleg mið-
að við okkar tré heima. Að vísu
eru þau nógu stór, en þau eru svo
gisin að það er engin mynd á
þessu. Að vísu er hægt að fá tré
núna í pottum, sem notuð eru ár
eftir ár. Þau eru pottablóm á milli
jóla. Það er því margt sem er
öðruvísi en heima,“
- Nú er víst komið nóg af tali
til Nýja-Sjálands. Að vísu var ég
„Þegar búið er að taka upp
pakkana er farið í sólbað!u
- Slegið á þráðinn til Sigurðar Bjömssonar sem býr á Nýja-Sjálandi
ennþá vakandi,"
- Hvernig er að halda jól hin-
um megin á hnettinum?
„Það er mjög frábrugðið því
sem ég á að venjast frá Hrísey,
því sumarið er að koma til okkar
núna og þar af leiðandi enginn
snjór sjáanlegur. Að vísu sjáum
við ekki snjó hér, nema til fjalla.
Það er í maí, júní og júlí sem
snjóar og þá fara menn á skíði.
Núna er sól og blíða alla daga og
menn flatmaga á baðströndum.
Annars er jólaundirbúningur hér
á fullu. Þó fer heldur lítið fyrir
honum miðað við það sem gerist
heima. Þetta snýst um einn dag,
sem er jóladagurinn. Jólagjafir
eru teknar upp strax um morgun-
hittumst um helgar og grillum og
tölum um ísland. Við ætlum að
koma saman og halda áramótin á
baðströnd hér niður frá. Þá för-
um við með tjöld og tjöldum á
tjaldstæðum við ströndina og
höfum það huggulegt með bjór í
hendi. Það var þrumustuö hjá
okkUr í fyrra. Eins og það gerist
best heima.“
- Voru flugeldar?
„Nei, það voru engir flugeldar,
því hér er haldið upp á Gay
Fawkes-day, sem er haldinn
hátíðlegur árlega. Það er í tengsl-
um við sprengjutilræði, þegar átti
að sprengja þinghúsið í London í
loft upp, en mistókst. Á þessum
degi skjóta menn upp flugeldum
hér. Þetta er í nóvember og allt
logar í flugeldum. Á gamlárs-
kvöld sérðu kannski eitt og eitt
blys sem frussar út í loftið. Svo
segja menn gleðilegt ár og fara að
sofa. Á síðasta gamlárskvöldi
vorum við á ströndinni og voru
flestir komnir í rúmið fljótt upp
úr miðnætti. Ég vildi nú þráast
við eins og sannur íslendingur og
halda áfram og tókst með herkj-
um að halda fólki vakandi fram
eftir nóttu. Ég talaði svo við
kunningja minn sem var heima
þetta kvöld og hafði gesti hjá sér.
Það fóru allir að sofa rétt upp úr
miðnættinu og var hann óhress
með það. Hann var sama sinnis
og ég og vildi þráast við að fara í
háttinn. Það endaði með því að
búinn að gleyma tímamismunin-
um á eyjunum tveimur, því gam-
an var að spjalla við Sigga
Björns. En hér látum við lokið
samtali við Sigga á Nýja Sjálandi
og vonum að hann og fjölskylda
hans hafi það gott yfir jólin og
reyndar ætíð í allri sólinni og í
hlýja sjónum hinum megin á
jarðarkúlunni. gej-