Dagur - 23.12.1986, Side 19
23. desember 1986 - DAGUR - 19
næstunni
Hlíðarfjall:
Nægur snjór
„Hér er miklu meira en nægur
snjór og færið alveg frábært,“'
sagði ívar Sigmundsson í Hlíö-
arfjalli er við ræddum við hann
í gær.
Ivar sagði að frá laug&iucgm-
um og fram til þriðjudags 30. des.
yrði opið á hverjum degi kl.
10.30-15.30. Auk þess sem allar
lyftur verða í fullum gangi verða
göngubrautir lagðar fyrir þá sem
vilja fremur vera á gönguskíðum.
Þá er nægur snjór í Kjarna-
skógi og þar eru brautir lagðar á
hverjum degi og því er allt til
reiðu fyrir skíðaáhugafólk á
á
Snjómokstur á
ýmsum leiðum
um jól og
áramót
nug um jól
/ ____X.4-
Flugleiðir og Flugteia
Norðurlands Iljúga margai
aukaferðir um jólin og áramót
in á öllum föstum áætlunar-
leiðum innanlands.
í dag verður flogið sjö sinnum
til Reykjavíkur frá Akureyri á
vegum Flugleiða og einu sinni á
vegum Flugfélags Norðurlands.
Á aðfangadag verða tvær ferðir
Ak.-Rvk. og fer seinni vélin kl.
14.20 frá Akureyri. Ekkert er
flogið á jóladag. Á annan í jólum
verða fjórar ferðir Ak.-Rvk. á
vegum Flugleiða og ein á vegum
Flugfélags Norðurlands. 27. des.
verður flogið á sama tíma og
venjulega. Þrjár ferðir verða til
Vestmannaeyja í dag og ein á
morgun. Til Egilsstaða verða
þrjár ferðir í dag og ein á
morgun, sama gildir um flug til
ísafjarðar.
Landsbanki Islands óskar
vióskiptavinum sinum gleöilegra jóla
og fársældar á komandi ári. Þökkum viðskiptin
. í eitthundrað ár.
f /f Landsbanki
I Islands
í |l Á Banki allra landsmanna
\ 1 p 1
■
Vegagerð ríkisins hefur áætlað
snjómokstursdaga á ýmsum
leiðum um jólin og áramótin.
Samkvæmt áætluninni verður
mokað eftirfarandi daga:
Dagana 22., 23., 27., 30. des-
ember og 2. og 3. janúar ’87:
Brú í Flrútafirði-Hólmavík,
Blönduós-Skagaströnd, Sauðár-
krókur-Siglufjörður.
Dagana 22., 23., 27., 29., des-
ember og 2. og 3. janúar ’87:
Akureyri-Dalvík, Akureyri-
Grenivík, Akureyri-Húsavík-
Þórshöfn, Húsavík-Mývatn.
Dagana 22., 27., 29. desember
og 2. janúar ’87:
Sauðárkrókur-Hólar, Varma-
hlíð-Reykir, Dalvík-Húsabakka-
skóli, Húsavík-Laugar, Þórs-
höfn-Bakkafjörður-Vopnafjörð-
ur.
Þá verður vegurinn frá Akur-
eyri til vegamóta Ólafsfjarðar-
vegar mokaður alla virka daga
nema laugardaga. Sama gildir um
veginn frá Sauðárkróki til
Varmahlíðar.