Dagur - 06.11.1987, Blaðsíða 3

Dagur - 06.11.1987, Blaðsíða 3
íslenskum fataiðnaði er nú ógnað af vaxandi innflutningi á ódýrum fatnaði frá löndum og heimshlutum þar sem starfskjör eru langt fyrir neðan það sem hér tíðkast. íslenskur fataiðnaður gerir allt sem í hans valdi stendur til að keppa við framleiðslu þessara láglaunasvæða. Það skiptir okkur öll verulegu máli, að við val og kaup á fatnaði, veiti ís- lenskir neytendur íslenskum fataiðnaði tækifæri til jafns við innflutning. Ef þú, neytandi góður, kynnir þér verð og gæði erum við sannfærð um, að í flestum tilfellum stenst íslensk fataframleiðsla samanburð við hvaða inn- flutta framleiðslu sem er. Leggðu okkur lið við að varðveita störf í íslenskum fataiðnaði. FÉLAG ÍSLENSKRAIÐNREKENDA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.