Dagur - 19.12.1987, Síða 19
Jón Jóhannsson við dyr
Sauðárkrókskirkju.
„Það var mikil liátíð þegar
kveikt var á kertunum“
- spjallað við Jón H. Jóhannsson meðhjálpara í Sauðárkrókskirkju
„Það var mikil hátíð þegar kveikt var á kertunum og
faðir minn hóf húslesturinn. Og gleðin og ánægjan sem
fylgdi því að eiga eitt kerti, hvað þá fleiri á jólunum í þá
daga var mikil. Ég hef alltaf fundið fyrir miklu öryggi
og þakka það húslestrum föður míns sem höfðu góð
áhrif á mig. Hef ég t.d. aldrei fundið fyrir myrkfælni á
ævinni. Enda hef ég oft sagt, eins og mér finnst, að ég
sé ekki einn á ferð,“ sagði Jón H. Jóhannsson með-
hjálpari við Sauðárkrókskirkju og fyrrverandi vöru-
flutningabílstjóri.
Jón er fæddur á Hofi í
Hjaltadal árið 1911 og flutt-
ist 2ja ára gamall ásamt for-
eldrum sínum í Brekkukot, sem
nú heitir Laufskálar. Þar var
hann fram yfir tvítugt er hann
yfirgaf föðurhúsin. Minningu frá
einum bernskujólum sínum í
Hjaltadalnum segir hann greypta
í huga sinn.
„Það var á jólaföstunni, þegar
ég var 7 eða 8 ára, að ég sá kind-
ur renna utan Ásinn. Ég vissi um
leið að þetta væru kindur frá
Efra-Ási sem sóttu stíft í afrétt-
ina og áttu það til að stinga sér
frameftir í góðri tíð. Ég þaut af
stað og náði að komast fyrir þær.
Var svo kominn með þær vel út
fyrir Brekkukot þegar ég mætti
Páli Stefánssyni bónda í Efra-
Ási. Páll var þakklátur stráksa
fyrir vikið og þegar hann kom
heim í Brekkukot rétt fyrir jólin
var hann með pakka meðferðis,
sem stóð upp úr breiðum brjóst-
vasanum á treyjunni. Þessi pakki
var til mín og fannst mér ég held-
ur en ekki ríkur þegar 6 kerti
komu í ljós. Að hugsa sér að eiga
sex kerti einn. Þetta var svo mik-
ill munaður þá, að manni fannst
gott að eiga eitt kerti hvað þá
sex.“
- Þú segist aldrei hafa verið
einn á ferð?
„Já, mér hefur fundist það og
öll árin 51 sem ég hafði aksturinn
að atvinnu voru áfallalaus. En ég
hætti akstrinum á síðasta ári og
seldi vörubílinn. Fyrstu árin var
ég í mjólkurflutningum í hérað-
inu og síðan í vöruflutningum
milli Sauðárkróks og Reykjavík-
ur. Þar á meðal keyrði ég að næt-
urlagi í 12 haust er sláturafurðir
voru fluttar kældar suður. Þá var
eftirsóknin eftir sauðfjárafurðum
það mikil að það var slegist um
þær.
Ég var svo eitt sinn á norður-
leið í myrkri og þungri færð þeg-
ar komið var fram í desember.
Var orðinn syfjaður og lagði mig
í bílnum um miðja nótt rétt hjá
sæluhúsinu, en margir trúðu að
þar væri reimt. Ég vaknaði svo
við að vasaljósi var beint inn í
bílinn. Þar er þá kominn bílstjóri
að austan sem ég kannaðist við.
Hann spurði mig hverju þetta
sætti. Hvernig ég þyrði eiginlega
að sofa í bílnum þarna. Ég sagði
honum að það væri allt í lagi, því
ég væri ekki einn á ferð. „Bölvað-
ur asni ertu, alltaf ertu eins,“
sagði hann þá.“
- Ertu búinn að vera lengi
meðhjálpari?
„í svona 10-12 ár. Öll áriri
Hjálmars og hluta af þeim tíma
sem séra Sigfús var hér. Þá tók ég
við af Birni Egilssyni og ég vona
að sá ágæti drengur Guðmundur
Guðmundsson, sem ráðinn var
mér til aðstoðar í sumar sem leið,
taki við af mér þegar ég hætti."
- Hefurðu alltaf sótt kirkju
mikið?
„Já, ég hef gert það og mér líð-
ur vel í kirkjunni. Það þótti gott
þegar útvarpið kom, að fá
útvarpsmessurnar, en mér finnst
ég ekki njóta þeirra, það er svo
margt sem truflar. Það jafnast
ekkert á við þann frið og hátíð-
leika sem ríkir í kirkjunni. Enda
er eftirtektarvert hvað kirkju-
sókn ungs fólks hefur aukist mik-
ið á síðari árum. Og það er ákaf-
lega ánægjulegt hvað kirkjan
rúmar vel kirkjugesti og sýnir
það vel fyrirhyggju þeirra manna
sém að byggingunni stóðu. Rúm-
ar hún leikandi 160-170 manns án
þess að þrengt sé að og ég hef tal-
ið mest liðlega 300 manns úr
ljósamessu í kirkjunni.
Það er mikið um að vera innan
veggja kirkjunnar allan ársins
hring. Varla líður sú helgi yfir
haust- og vetrartímann að ekki sé
messa, annað hvort almenn
messa eða barnaguðsþjónusta.
Giftingar í fyrra voru yfir 20 og
talsvert um barnaskírnir. Og á
þessu ári eru jarðarfarir orðnar
nær 30, eða fleiri en oftast áður.
Meðal annarra þurftum við að sjá
á eftir tveimur söngstjórum kirkj-
unnar, þeim mætu manneskjum
Guðrúnu Eyþórsdóttur og Jóni
Björnssyni." -þá
19. DESEMBER 1987 - DAGUR -
19
Sendum öllum viðskiptavinum
okkar svo og öllum
landsmönnum okkar bestu
jóía- og nýárskveðjur
Þökkum
viðskiptin.
AKUREYRI
Skipagötu 12
sími 21464
/
d/
\
Öldrunarráð Akureyrar
óskar öldruðum á Akureyri,
heimilisfólki dvalarheimilanna
staifsfólki sínu óllu
og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og farsœls árs
*
*
Oskum viðskiptavinum og
starfsfólki okkar
gleðilegra jóla og farsœldar
á komandi ári
K. Jónsson & Co hf.,
Niðursuðuverksmiðja Akureyri.
KAUPFÉLAG
SKAGFIRÐINGA
SENDIR FÉLAGSMÖNNUM SÍNUM,
STARFSFÓLKI, SVO OG ÖÐRUM
VIÐSKIPTAVINUM,
bestu óskir um gleðirík jól
og farsæld á komandi árí
Ij^imílSksSjEGíSjSBinm
SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍÐ - FLJÓTUM