Dagur - 22.01.1988, Page 1
Sigló hf.:
Lélegt skíðafæri í Ólafsfirði:
Kaupir 230 tonn
af frosinni rækju
„Liggjum á bæn og
biðjum um snjó“
- segir Björn Þór Ólafsson íþróttakennari
í gærkvöld kom til Siglufjarðar
færeyskur verksmiðjutogari
með um 230 tonn af frosinni
rækju sem Sigló hf. hefur fest
kaup á. Hráefnisskortur hefur
verið hjá verksmiðjunni að
undanförnu því aðeins hafa
borist 10-11 tonn það sem af er
árinu.
Að sögn Sigurðar Ingimars-
sonar fjármálastjóra Sigló hf. er
um að ræða blandaða stærð af
rækju og er hún veidd á Kanada-
miðum. Verð það sem greitt er
fyrir rækjuna er heldur lægra en
greitt hefur verið fyrir innlenda
rækju.
í dag verður skipið losað og á
mánudaginn hefst síðan vinnsla
rækjunnar. Gert er ráð fyrir að
hún taki 5-6 vikur. Aðspurður
hvað þá tæki við sagði Sigurður
að búið væri að ganga frá samn-
ingum við 2-3 loðnuskip og þau
ættu að vera komin á veiðar um
það leyti. Ef ekki, þá kæmi til
greina að gera frekari viðskipti
við erlend skip.
Hjá Sigló er nú verið að ljúka
við framleiðslu á þeim gaffalbit-
um sem samið hafði verið um.
Samningurinn, sem hljóðar upp á
4300 kassa, verður uppfylltur um
miðjan febrúar og þá fara vélarn-
ar til Hornafjarðar sem frægt er
orðið. ET
Kristinn Pálsson var önnum kafinn þegar ljósmyndari kom í smábátahöl'nina í Sandgerðisbót í gær.
Bakvaktir slökkviliðs felldar niður:
„Breyting til hins verra sem
óneitanlega minnkar öryggiö '
- segir Tómas Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri
„Við liggjum á bæn og biðjum
almættið um meiri snjó,“ sagði
Björn Þór Ólafsson íþrótta-
kennari um skíðafærið á Ólafs-
firði. Skíðasvæðið hefur nú
verið opið í rúmlega 10 daga
og hefur aðsóknin verið
þokkaleg. Hinsvegar vantar
tilfinnanlega meiri snjó til að
færið verði reglulega gott.
Skíðasvæðið er nú opið óreglu-
lega, en að sögn Björns er í ráði
að það verði opið a.m.k. 6 daga
vikunnar. Virka daga á að vera
opið frá klukkan 15.00 til 20.00,
en um helgar frá klukkan 13.00
til 18.00.
Nú er búið að opna göngu-
braut í bænum og vildi Björn
hvetja menn til að taka fram
gönguskíðin og notfæra sér
aðstöðuna.
Ólafur Harðarson frá Akureyri
starfar nú sem skíðaþjálfari á
Ólafsfirði og er mikill áhugi hjá
krökkunum að æfa. Nú eru milli
Að öllum líkindum verður
fljótlega farið að hljóðrita
bæjarstjórnarfundi á Sauðár-
króki. En slíkt mun tíðkast hjá
nokkrum öðrum bæjarafélög-
um á landinu s.s. Akranesi, og
að sjálfsögðu í háttvirtu
Alþingi.
„Að vísu er það ekki vegna
60 og 70 krakkar sem æfa reglu-
lega undir hans stjórn, þó svo að
snjóleysið hái starfseminni. AP
Um áramót kom til fram-
kvæmda sú „sparnaðarákvörð-
un“ bæjarstjórnar frá því í
sumar að fella niður allar bak-
vaktir á Slökkvistöð Akureyr-
Sauðárkrókur:
hljóðritananna í þinginu sem við
förum út í þetta. Þetta hefur
komið til tals áður þótt ekki hafi
orðið úr fyrr. í sannleika sagt er
aðeins í fundargerðum nú, greint
frá afgreiðslu einstakra mála,
bókunum ef þær eru einhverjar
og þeim sem til máls tóku, en
ekki frá umræðum um málin.
arbæjar. Eftir sem áður eru nú
þrír menn á vakt hverju sinni
en ef upp koma tvö útköll á
sama tíma getur komið upp
erflð staða við að sinna þeim.
Mönnum finnst rétt að eiga
umræðuna til staðar hljóðirtaða,
þannig að mögulegt sé að fara í
hana síðar og staðfesta þannig
ummæli einstakra ræðumanna.
Þetta ætti að skapa aðhald og
verða til þess að menn vandi sig
frekar," sagði Snorri Björn Sig-
urðsson bæjarstjóri vegna þessa.
Fram að áramótum var sá hátt-
ur hafður á, að væri hvorugur
slökkviliðsstjórinn á vakt, þá var
annar þeirra á bakvakt. Ef tveir
af þremur mönnum á vakt voru í
sjúkraútkalli og um leið kom
annað útkall, gat varðstjóri alltaf
náð í annan hvorn yfirmanninn
og fengið hann með í útkall. Á
meðan var lögreglan oftast fengin
til að vera á stöðinni. Fyrir því er
hins vegar engin trygging að þar
séu menn á lausu.
„Þetta er breyting til hins
verra, sem óneitanlega minnkar
öryggið. Eftir þetta má segja að
það sé aldrei tryggt að hægt sé að
ná í fleiri menn en þá sem eru á
vakt hverju sinni,“ sagði Tómas
Búi Böðvarsson slökkviliðsstjóri
í sanrtali við Dag. Sérstaklega
sagðist Tómas horfa með kvíða
til þeirra daga á árinu þegar
slökkviliðsmenn væru, rétt eins
og annað fólk, utanbæjar, til
dæmis yfir sumartímann. Á þetta
væri auðvitað ekki komin nein
reynsla.
Ef áðurnefnd staða með tveim-
ur útköllum kemur upp, þá getur
orðið um nokkra leit að ræða fyr-
ir varðstjóra að finna mann með
sér á sjúkrabílinn. Ef um er að
ræða neyðartilfelli, og sjúklingur
þarf á aðhlynningu að halda með-
an á flutningi stendur, þá gerir
einn maður ekki stóra hluti um
leið og hann ekur. Varðstjóri get-
ur því lent í þeirri óskemmtilegu
stöðu að þurfa að segja í símann:
„Bíddu við, ég ætla að athuga
hvort ég fæ einhvern mann með
mér.“
„Ég er ekki sáttur við þetta og
ef ekki kemur til fjölgun manna á
hverri vakt þá er þetta skref
afturábak,“ sagði Tómas. ET
Bæjarstjómarfundir hljóðritaðir