Dagur - 22.01.1988, Page 3
22. janúar 1988 - DAGUR - 3
Mjólkurvörur:
„Verið að draga úr
birgðasöfnun"
- segir Guðmundur Sigþórsson
Eins og fram er komið hefur
verið ákveðið að setja reglu-
gerð um fullvirðisrétt bænda
sem feiur í sér að bændur geta
ekki miðlað ónýttum fullvirðis-
rétti á milli sín. Með ákvæði
um að heimilt sé að flytja hluta
af ónýttum fullvirðisrétti milli
verðlagsára telur landbúnaðar-
ráðuneyti að tekið hafi verið
tillit til þess að sala á t.d.
mjólkurvörum hefur vaxið á
síðasta ári og því dragi þessi
reglugerð ekki eins mikið úr
Jón Laxdal starfsmaður í Mjólkur-
samlagi KEA við störf.
framleiðslu og ella.
„Þetta eru ekki beint hertar
reglur og þetta eru hlutir sem
bændur sjálfir hafa óskað eftir að
fá inn. Við óskuðum eftir að fá
inn þennan tilflutning á 5% milli
verðlagsára með tilliti til aukinn-
ar sölu á mjólkurvörum en hins
vegar voru mjólkurvörubirgðir
miklar í landinu þegar samningar
ríkis og bænda byrjuðu og við
teljum að það sé að ósekju þó á
þær gangi,“ sagði Guðmundur
Sigþórsson, skrifstofustjóri í
landbúnaðarráðuneytinu er hann
var spurður um hvort ekki væri
verið að herða framleiðslureglur
óeðlilega í ljósi þess að sala á
mjólkurvörum hefur aukist að
undanförnu.
Guðmundur sagði að birgða-
hald kostaði mjólkuriðnaðinn
mikið fé sem síðan hækkaði
vinnslu- og heildsölukostnað.
Slíkt birgðahald sé kostað með
afurðalánum og vöxtum af þeim
og jafnvel afurðalán séu dýr eins
og annar fjármagnskostnaður.
Með þessari ráðstöfunum sé ver-
ið að reyna að draga úr birgða-
söfnun og þar með kostnaði
vegna hennar. Aðgerðirnar miði
að því að meira jafnvægi sé milli
sölu og framleiðslu aukheldur að
veita bændum meira svigrúm
með fullvirðisrétt sinn. JÓH
Örvar á Skagaströnd:
Fiskaði fyrir
264 milliónir
Frystitogarinn Örvar frá Skaga-
strönd hefur verið mikið
happaskip og á s.l. ári skilaði
hann 264 milljónum í brúttó-
tekjur, á 258 úthaldsdögum.
Örvar er fyrsta frystiskip sem
Islendingar eignuðust og hefur
ávallt verið í hópi þeirra skipa
sem verðmætustum afla hafa
skilað á land.
í samtali við Dag sagði Sveinn
Ingólfsson framkvæmdastjóri
Skagstrendings hf. að Örvar væri
500 tonna skip og hefði hann lest-
arrými fyrir 220 til 230 tonn af
fullunnum fiski. Sagði Sveinn að
frysting um borð hefði reynst
hagkvæm. Hún hefði hreinlega
gert það kleift að reka svo dýrt
skip sem Örvar, með þeim fjár-
magnskostnaði sem því fylgdi.
Skip Skagstrendings, ísfisktogar-
inn Arnar og frystiskipið Örvar,
eru bæði á sóknarmarki en ekki
aflamarki.
Sveinn taldi ekki réttmætt að
bera rekstur skipanna á neinn
hátt saman, þar sem fjármagns-
kostnaður vegna Arnars væri
orðinn hverfandi lítill, skipið
væri orðið það gamalt. fh
Afli landsmanna 1987:
Heildaraflinn
minni en 1986
- en þorskaflinn meiri
Samkvæmt bráðabirgðatölum
frá Fiskifélagi íslands þá var
'heildar fiskafli landsmanna á
síðasta ári um 1.578 þúsund
lestir. Það er um 42 þúsund
lestum minna en á árinu 1986
og munar þar auðvitað mest
um að loðnuaflinn var á síðasta
ári rúmlega 807 þúsund lestir á
móti 899 þúsund lestum á árinu
1986. Á móti kemur talsverð
aukning á þorskafla togara og
báta og einnig á öðrum botn-
fiskafla togara.
Heildar þorskaflinn á síðasta
ári var 375.940 tonn á móti
347.748 tonnum árið áður. Togar-
ar veiddu af þessu um 190 þúsund
tonn en bátar 185 þúsund tonn.
Aukningin í þorskafla togara er
um 6% frá árinu áður en hjá bát-
unum er aukningin rúmlega
10%.
Heildarafli togara var á síðasta
ári 385.112 tonn á móti 357.188
tonnum árið 1986. Afli báta var á
síðasta ári 1.192.487 tonn á móti
1.262.936 árið áður. Parna mun-
ar sem fyrr segir mest um minni
loðnuafla á síðasta ári en árið
1986. ET
Einn hinna Ijónheppnu vinningshafa, við móttöku vinnings síns.
© ©.© GU/aiB iaa
Heimilispakkavinningur:
Goldstar hljómtækjastæða
Goldstar myndbandstæki
!0" Goldstar sjónvarpstæki
Goldstar ferðatæki
Mitsubishi farsími
Apple Macintosh tölv
Bftirtalin viimingsnúiiier komu upp í happdrætti
Flugbjörgimarsveitanna, 24. desember 1987
95066 - 109752
# Macintosh Plus
tölviir:
4861 - 7480 - 22893
26842 - 30482 - 65724
67049 - 77030 - 82398
87068 - 100964 -106049
114646 - 125503 156240
162231 - 163848
Hdmilispakkar:
17495 - 90704
111229 - 159148
A MITSUBISHI
farsímar:
6197 - 24629 - 28354'
36790 - 46168 - 69164
75445 - 81529 - 81827
90033 - 93646 - 126712
133864- 134052- 135455
148679 - 151204
GoldStcir GoldStcr
myiiclbaiiclslæki:
20" sjónvarpstæki:
5366 - 9135 - 14761
25450 - 28394 - 29327
36676 - 39297 - 39765
52383 - 94386 - 113575
139083 - 141160- 144731
148452 - 151138
4913 - 19780 - 30938
57136 - 70216 - 70830
75564 - 77165 - 85048
89567 - 92614 - 129631
130269- 147858- 150128
156342 - 159706
GoldStcir
liljómtækjastæóiir:
8122 - 11571 - 21115
29030 - 31339 - 53568
55644 - 62521 - 80195
84306 - 89104 - 124268
139129- 142216- 147672
150692 - 150998
GoldStcir
feróatæki:
13434 - 17595 - 19643
19863 - 36214 - 46077
58117 - 66907 - 68489
99818 - 113950- 122404
145110- 150524- 151924
159025 - 162771
(Birt án ábyrg&ar)
Vinninganna skal vitjað hjá Grími Laxdal í Radíóbúðinni hf., Skipholti 19, Rvk.
Flugbjörgunarsveitin Reykjavík
Flugbjörgunarsveitin Hellu
Flugbjörgunarsveitin Skógum
Flugbjörgunarsveitin V-Húnavatnssýslu
Flugbjörgunarsveitin Varmahlíö
Flugbjörgunarsveitin Akureyri
FLUGBJÖRGUNARSVEITIRNAR