Dagur - 22.01.1988, Page 13
22. janúar 1988 - DAGUR - 13
hvað er að gerast?
Fyrstu
Akureyri:
skíðamótin
Fyrstu skíðamót vetrarins
fara fram um helgina og
verður keppt í alpagreinum
í Hlíðarfjalli og í göngu í
Kjarnaskógi. í flokki full-
orðinna og 15-16 ára verður
keppt í stórsvigi Þórs á laug-
ardag óg í svigi KA á sunnu-
dag en bæði mótin eru öllum
opin. Mótið liefst kl. 11.30 á
laugardag en kl. 12 á sunnu-
dag.
Kjarnagangan fer fram í
Kjarnaskógi á laugardag og
hefst kl. 14 og eru allir
flokkar ræstir á sama tíma.
Einnig geta menn komið og
trimmað án tímatöku.
Um helgina fer fram opið
Bakaradagar
á Akureyri
Nú standa yfir svokallaðir
Bakaradagar á Akureyri og
í gær var opnuð í Skemm-
unni á Akureyri fagsýning
Landsambands Bakara-
meistara. Á sýningunni eru
sýndar vélar, tæki og hráefni
til köku- og brauðgerðar.
í>að eru 12 aðilar sem sýna,
en sýningin verður opin
almenningi á morgun, laug-
ardag. Akureyringar og
nærsveitamenn ættu að
bregða sér í Skemmuna og
forvitnast um hvernig afurð-
ir bakara verða til.
unglingamót í badminton á
vegum TBA og mæta kepp-
endur víðs vegar að af land-
inu til leiks. Keppni fer fram
í Höllinni á Akureyri og
hefst í dag kl. 18 en lýkur
seinni partinn á morgun
laugardag.
Keppni í I. deildinni í
handbolta hefst að nýju á
sunnudagskvöld og á Ákur-
eyri leika Þór og FH.
Leikurinn fer fram í Höll-
inni og hefst kl. 20. Á sama
tíma leika Stjarnan og KA í
Digranesi í Kópavogi.
Karla- og kvennalið KA í
blaki leika gegn ÍS fyrir
sunnan á morgum. Leikið
verður í Hagaskóla og hefst
kvennaleikurinn kl. 15.15
en karlaleikurinn kl. 16.30.
Leikfélag Akureyrar:
Góð aðsókn að
Pilti og stúlku
Sýningar Leikfélags Akur-
eyrar á Pilti og stúlku hafa
gengið ntjög vel og að sögn
Péturs Einarssonar leikhús-
stjóra var Samkomuhúsið
troðfullt um síðustu helgi.
Þrjár sýningar verða um
helgina og er sýningin á
sunnudaginn sú 14. í röð-
inni.
Á föstudags- og laugar-
dagskvöld hefjast sýningar
kl. 20:30, en á sunnudag er
sýning kl. 16, enda er Piltur
og stúlka fjölskylduleikrit
og tilvalið fyrir heilu fjöl-
skyldurnar að bregða sér á
sunnudagssýningu.
„Við höldum ótrauðir
áfrani meðan aðsóknin er
svona góð,“ sagði Pétur og
var bjartsýnn. Leikfélagið
hefur fengið mjög góða
aðsókn það sem af er þessu
leikári og enn er eftir að
sýna Horft af brúnni og
Fiðlarann á þakinu, þannig
að gott hljóð er í leikhús-
mönnum um þessar mundir.
Ráðgert er að frumsýna
hið magnaða verk Arthurs
Millers, Horft af brúnni, í
lok febrúar og síðan ætlar
Leikfélag Akureyrar að
klykkja út með söngleiknum
vinsæla, Fiðlararnum á þak-
inu, í leysingunum í vor.
Ingimar Eydal og
Laddi í Sallanum
Á föstudagskvöld skemmtir
Laddi f Sjallanum ásamt
þeim Skúla rafvirkja, Eiríki
Fjalar, Hallgrími Ormi og
Gulla litla. Stjörnur Ingi-
mars Eydal í 25 ár verða í
19. skipti á laugardagskvöld,
en næsta sýning á Stjörnum
Ingimars í Sjallanum eftir
þá sýningu verður föstudag-
inn 19. febrúar.
Boðið er upp á glæsilegan
þríréttaðan matseðil bæði
kvöldin. Hljómsveit Ingi-
mars Eydal heldur uppi fjör-
inu um helgina, en Hljóm-
sveit Finns Eydal ásamt
Helenu skemmtir með
blandaðri tónlist í Mánasal á
Ijósvakarýni
Skalli Omars vinsælt yrkisefni
Ómar Ragnarsson, hinn sivin-
sæli fréttamaður Ríkissjónvarps-
ins, hefur nokkra sérstöðu þar
sem hann á „FRÚ“ sem hann
getur ferðast á um loftin blá og
þannig komist á þá staði sem
sumir fréttamenn á jörðu niðri
koma ekki til með að sjá. Hann
hefur dálitla tilhneigingu til að
taka mál svo föstum tökum að
hann getur tönglast á þeim þar til
enginn nennir lengur að hlusta á
hann. Má þar nefna gróðurvernd-
armálin sem er mjög gott mál en
hefur farið fyrir ofan garð og neð-
an hjá mörgum vegna þess að
hlustendur Ríkissjónvarpsins
hafa verið ofmataðir á þessum
fróðleik.
Nú í vetur hefur Ómar haft
umsjón með þættinum „Spurt úr
spjörunum" sem hefur þótt vin-
sælt efni í sjónvarpinu. Nú eru
þeir mætu hagyrðingar sem
koma fram í þessum annars
ágæta þætti að detta í sömu
gryfju og Ómar gerði varðandi
gróðurmálin. Þeir virðast ekki
lengur finna annað yrkisefni, en
skallann á Ómari eða fegruð
Heiðar Óskar, sem sér um stiga-
gjöf hjá keppendum. Svo rammt
er farið aö kveða að þessu að
áhorfendur gætu farið að halda
að Ómar sé eini maðurinn, að
minnsta kosti norðan Alpafjalla,
með sæmilegan skalla. Eins
mætti halda að Heiður Ósk sé
eina fallega konan á íslandi, en
sem betur fer finnast þær nokkuð
margar.
Ýmsir mjög góðir hagyrðingar,
hafa komið fram í þáttunum og má
þar nefna þann sem kom fram
fyrir. Skaftfellinga, Reyni Hjartar-
son hagyrðing Eyfirðinga og síst
má gleyma allsherjargoöanum
Sveinbirni Beinteinssyni sem
kvað fyrir Mýramenn og Borgfirð-
inga. Sveinbjörn hafði þá sér-
stöðu að ekki var unnt að merkja
að hann skrifaði neitt niður þegar
hann var að yrkja. Fyrir áhorf-
endum virtist hann hreinlega
raða vísunum saman jafnóðum
og hann kastaöi þeim fram á öld-
um Ijósvakans.
Þáttur Ómars, „Stiklur," var eitt
vinsælasta efni Ríkissjónvarps-
ins á sínum tíma og munu margir
sem horfðu á þá þætti hafa orðið
mun fróðari um landið. Þar var
Gísli á Uppsölum gerður að þjóð-
sagnapersónu og átti hann það
vel skilið. Þarna voru einnig
sýndar myndir frá stöðum sem
fáir hafa komið á, svo sem úr
Héðinsfirði og Fjörðum. Þessir
staöir eru mjög áhugaverðir en
þangað koma fáir þar sem ekki
liggja neinir akveqir að þeim. fh
laugardagskvöldið, og hefur
sú nýbreytni mælst vel fyrir.
Stórsýningin „Allt vit-
laust“ frá Broadway verður
sýnd í Sjallanum dagana 5.
og 6. febrúar.
Sýningar Ingimars Eydal
hafa vakið mikla eftirtekt á
Akureyri og reyndar víða
um land, Stórsýningin „Allt
vitlaust" hefur einnig hlotið
hinar bestu undirtektir.
Dansleikur
að Jaðri
Annað kvöld verður haldinn
hörku dansleikur í golf-
skálanum að Jaðri á vegum
GA. Auk þess veröur spilað
bingó og þá verða ýmsar
óvæntar uppákomur.
Tvær mjög góðar hljóm-
sveitir leika fyrir dansi,
Stuðkompanýið og
Karlmenn. Dagskráin hefst
kl. 22 og eru allir kylfingar
hvattir til þess að mæta og
taka með sér gesti.
Þorrablót á Hótel KEA
Nú er sá tími runninn upp er
menn taka að blóta þorra að
fornum sið og þjóðlegum.
Af því tilefni heldur Hótel
KEÁ sitt árlega þorrablót
annað kvöld, þ.e. laugar-
dagskvöld. Ef að líkum læt-
ur mun glæsilegt þorrahlað-
borðið svigna undan kræs-
ingum á borð við sviðasultu,
hrútspunga, magál,
harðfisk, hangikjöt, hákarl
og hvað það nú heitir allt
lostætið sem þorranum
fylgir.
Á meðan borðhald stend-
ur yfir mun Jasstríó Krist-
jáns Guðmundssonar
skemmta gestum með Ijúf-
um þorrajassi.
Hljómsveitin Helena
fagra leikur síðan fyrir dansi
fram eftir nóttu. Tekið er á
móti borðapöntunum í síma
22200.