Dagur - 29.01.1988, Page 3
29. janúar 1988 - DAGUR - 3
Sauðárkrókur:
Unglingar sækjast
eftir vinnu með
náminu svokallaða
„Það hefur verið mikið um að
skólakrakkar á aldrinum 14-16
ára hafi sóst eftir vinnu með
náminu og við höfum tekið við
nokkrum þeirra. Þeir vinna
flestir svona 1-2 daga í viku,
Húsavík:
Innheimta bæjar-
gjalda gekk
verr 1987
- en árið áður
Innheimta bæjargjalda á
Húsavík gekk verr í fyrra en
árið þar áður. Um áramót var
innheimtuhlutfall útsvara og
aðstöðugjalda 89,67% en var
92,83% árið 1986. Innheimtu-
hlutfall fasteignagjalda var
96,61% en það var 98,02%
árið 1986.
Eftirstöðvar þessara bæjar-
gjalda voru rúmlega 11 milljónir í
árslok en í árslok árið áður voru
þær rúmlega 5 milljónir.
Útistandandi bæjargjöld, við-
skiptaskuldir og orkuskuldir voru
samtals í árslok tæplega 23 millj-
ónir en árið áður tæplega 15,7
milljónir. Lausaskuldir bæjar-
sjóðs og bæjarfyrirtækja voru um
20 milljónir króna um áramót.
IM
hluta af deginum,“ sagði Jón
Þorsteinsson verkstjóri í frysti-
húsinu Skildi á Sauðárkróki.
Samkvæmt eftirgrennslan á
stöðum hér norðanlands um
sókn skólaunglinga í vinnu með
námi, bendir allt til þess að Sauð-
árkrókur skeri sig þar úr með
mestu eftirspurnina. Einar
Svansson hjá Fiskiðjunni segir
greinilegt að áhugi unglinga á
vinnu með skólanum hafi aukist á
síðustu misserum og sérstaklega
sé það áberandi hjá stelpunum.
Enda væru ákaflega litlir mögu-
leikar á ígripavinnu fyrir strák-
ana og það vissu þeir líklega. Þá
mun einnig vera eitthvað um að
skólaunglingar á Króknum séu í
verslunarstörfum.
Um ástæður þessa er ekki gott
að vita. Ef til vill er auðveldara
fyrir unglinga á Sauðárkróki að
fá vinnu en jafnaldra þeirra í ná-
grenninu? Og kannski eru ungl-
ingar þar líka áfjáðari í vinnu og
byrja fyrr að vinna en unglingar á
öðrum stöðum. Það fullyrðir Jón
Þorsteinsson verkstjóri sem unn-
ið hefur víðs vegar um landið.
Hann sagði líka að í vetur hefðu
2 eða 3 unglingar hætt í skóla og
farið að vinna til þess að geta
keypt sér bíl. Það og mörg önnur
dæmi sýndu, að það væri rétt sem
mörgum hefði orðið tíðrætt um á
síðustu árum, að unglingarnir
hafi smitast af lífsgæðakapp-
hlaupi hinna fullorðnu. -þá
Mikilvægt er að fara með börnin reglulega til tannlæknis eftir að þau hafa náð þriggja ára aldri. Þannig má oft koma
í veg fyrir sársaukafullar heimsóknir síðar.
Tannverndan/ika
á Norðurlandi
í tilefni tannverndardags, föstu-
daginn 6. febrúar, munu heil-
brigðisráðuneytið, Heilsugæslu-
stöð Akureyrar og Tannlækna-
félag Norðurlands gangast fyrir
sameiginlegu átaki í tannvernd
fyrstu viku febrúarmánaðar. Að
þess sinni verður sérstök áhersla
lögð á aldurshópinn 2ja til 5 ára,
foreldra þessa aldurshóps og aðra
sem með þessi börn hafa að gera.
Til aðstoðar við þetta verkefni
verða tannfræðingarnir Katrín
Ólafsdóttir og Hulda Rósarsdótt-
ir. Þær Katrín og Hulda tnunu
m.a. heimsækja dagvistir á Akur-
eyri og halda fræðslufundi með
dagmæðrum, starfsfólki á leik-
völlum og foreldrum, en auk þess
munu þær heimsækja grunnskóla
og dagvistir í nágrenni Akureyr-
ar.
Þessu til viðbótar mun dag-
blaðið Dagur birta fræðslugrein-
ar um tannvernd og tannlækning-
ar alla daga vikunnar.
Foreldrar, dagmæður, fóstrur
og aðrir sem annast fyrrnefndan
aldurshóp eru eindregið hvattir
til að fylgjast með og taka þátt í
þessu tannverndarátaki.