Dagur - 29.01.1988, Qupperneq 15
29. janúar 1988 - DAGUR - 15
Góðan daginn, lesendur stórir og
smáir. Mér liggur að vanda ýmis-
legt á hjarta og ég hef býsna stórt
hjarta skal ég segja ykkur. Því
miður hef ég líka stóra kúlu á
enninu, ekki eftir kökukefli kon-
unnar því það hefur legið að
mestu ónotað í eldhússkúffu að
undanförnu. Nei, enda hef ég
hagað mér ósköp drengilega,
jafnvel gert handtak annað
slagið. Reyndar ætla ég að láta
það bíða dálítið að segja frá þess-
ari kúlu því síðast þegar ég átti
við ykkur orð var ég ær og örvita
af tannlæknaraunum og sá ekki
fram á að geta haldið upp á
afmæli mitt nema á mjög tak-
markaðan hátt. Sem betur fer
rættist úr og ég skellti mér suður
í Davíðsborg til að geta skemmt
mér án þess að allir Akureyringar
fengju vitneskju um það. Konan
vildi að vísu ekki hleypa mér í
fangið á yndisfögrum Reykjavík-
urdætrum og því skrölti hún
með.
Fyrst lá leiðin fram á flugvöll
þar sem hörmulegasti farkostur
allra tíma beið eftir okkur. Meira
en 30 ára Fokker Friendship,
dælduð, rispuð og ótraustvekj-
andi á allan hátt. Við þurftum að
bíða dágóða stund á meðan villu-
ráfandi flugvirkjar reyndu að
gera „vináttuna“ (Friendship) til-
búna til flugtaks. Þeir festu allt
það lauslega sem var að detta af
vélinni, til að koma í veg fyrir
slys á jörðu niðri. Einn festi að
vísu topplykilinn sinn en hann
var látinn vera. Mig minnir að
hann hafi síðan rotað hross í
Skagafirði, a.m.k. heyrði ég tor-
kennilegt hnegg á leiðinni.
Jæja, eftir að flugstjórinn, sem
ábyggilega var eitthvað við skál,
hafði gert ítrekaðar tilraunir til
að hrista vélina í sundur þá setti
hann allt í botn og virtist ætla að
sigla út Eyjafjörðinn. Á einhvern
óskiljanlegan hátt mjakaðist vél-
in þó upp á við, með braki og
brestum, stundum virtist hún
ætla að hrapa áftur, en eftir langa
mæðu og æluslettur, ýlfur og
vein, flugum við skýjum ofar.
Ekki vissi ég hvort ég væri lif-
andi eða dauður á þessari stundu.
Þó heyrði ég í gegnum meðvit-
undarleysið að tugir krakka öskr-
uðu hástöfum, flugfreyjan grenj-
aði móðursýkislega og loks fékk
ég hálfmelta sperðla yfir höfuðið
á mér frá bóndanum sem sat fyrir
aftan mig og fór með bænirnar
sínar. „Góðan dag, þetta er
flugstjórinn,“ glumdi allt í einu í
flugvélinni. „Við fljúgum nú í
15.000 feta hæð og ef Guð lofar
verðum við komin til Reykjavík-
ur eftir dúk og disk.“ Síðan tók
við eitthvert háfleygt röfl um veð-
ur og lífslíkur okkar, en tal flug-
stjórans kafnaði brátt í orgi og
uppköstum farþeganna.
Loks hleypti ég í mig kjarki,
þurrkaði mesta hroðann af
hnakkanum á mér og leit djarf-
lega til konu minnar. Blasti þá
við mér gömul, útgrátin kona
sem gat ekki verið konan sem ég
giftist. Eftir nánari eftirgrennslan
varð ég þó að sætta mig við það
að þetta var gripurinn, en bless-
unin eldist alltaf um mörg ár eftir
hverja flugferð með Fokker
Friendship og skal engan undra.
Við komumst við illan leik til
Reykjavíkur, vélin skall harka-
lega á flugbrautinni og öll hjólin
sprungu auk þess sem salernis-
kynnin þeyttust fram í farþega-
rými og dreifðist inníhaldið út um
allt. Við vorum loks komin.
Frá skemmtanabrölti mínu í
Davíðsborg segi ég ykkur ekk-
ert, velsæmisins vegna, auk þess
sem Akureyringar geta aldrei
þagað yfir nokkrum hlut. Þó
skal ég játa að ég sá mikið af
íturvöxnum Reykjavíkurdætr-
um, íklæddum djörfum fatnaði
og þær brugðu fyrir sig eggjandi
augnaráði. Arnarhvasst augna-
ráð konu minnar gat þó auðveld-
lega stuggað þeim í burtu. Sjálf-
sagt hafa margar ungar konur
farið grátandi heim af söknuði og
þrá eftir spengilegum Norðlend-
ingnum.
Skemmst er frá því að segja að
eftir að ég hafði hryggbrotið heil-
an haug af fegurðardísum og
kannað skemmtanahætti uppa-
kynslóðarinnar í musteri Mamm-
ons þá fórum við aftur á vit feigð-
arinnar, stigum upp í afgamla
Fokker vél og lentum í sömu
hrakningunum á leiðinni norður.
Það kyndugasta við þetta allt
saman er það að ég lenti heill á
húfi á Akureyrarflugvelli. Ekki
sást á mér hin minnsta skráma,
en andlega var ég hins vegar í
rúst.
Með þakkarorð á vörum reis
ég á fætur, sæll yfir því að vera
ennþá lifandi, en eins og allir vita
er það mikill galgopaháttur að
stíga upp í flugvél og alltaf jafn
tvísýnt hvernig því ferðalagi
lyktar. Ég heilsaði Akureyri,
steig út úr vélinni, hrasaði í
tröppunum og stakkst á höfuðið.
Þannig fékk ég nú þessa kúlu á
ennið, heilahristing og marbletti.
Segiði svo að maður sleppi
óskaddaður frá svona flugferð.
Nei, það er ekki mögulegt.
MYNDLISTASKOLINN
Á AKUREYRI
NÁMSKEIÐ
Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri
3. febrúar til 18. maí.
Teiknun og málun fyrir börn.
1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku.
2 fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku.
3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku.
4. fl. 10-11 ára. Einu sinni í viku.
5. fl. 12-13 ára. Einu sinni í viku.
Málun og litameðferð fyrir unglinga.
Byrjendanámskeið. Einu sinni í viku.
Framhaldsnámskeiö. Einu sinni í viku.
Teiknun og málun fyrir fullorðna.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Myndlistadeild. Tvisvar í viku.
Auglýsingagerð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Byggingalist.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Grafík.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Málun og litameðferð.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Módelteiknun.
Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku.
Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku.
Allar nánari upplýsingar og innritun í síma 24958
virka daga kl. 13.00-17.00.
Skólastjóri.
YEXTIR A
VERÐBRÉFAMARKAÐI
^||Vikan 24.-30. januar 1988.
Tegund skuldnbréfs
Vextir umfrain Vextir
verðtryggingu % Alls%
Spariskírt. ríkissjóðs
lægst
hæst
7,2% 37,7%
8,5% 39.3%
IjjSkuldabréi' banka og sparisjóða
]
tægst ’ 9,3% 40,4%
hæst 10,3% 41,6%
Skuldabréf stórra fyrirtækja
Lýsing hf. 10,8% 42,3%
Lind hf. 11,0% 42,6%
Glitnirhf. 11,1% 42,7%
Sldturfélag Suðurlands 11,2% 42,8%
1 Verðtryggð verðskuldabréf
lægst 12,0% 43,8%
hæst 15,0% 47,7%
(Einingabréf
Einingabréf 1 29.01.'88 2.621,- 12,3% 44,2%
Einingabréf 2 1.527,- 8,2% 39,0%
Einingabréf 3 1.630,- 12,6% 44,6%
Ltfeyrisbréf 1.318,- 12,3% 44,2%
Fjárvarsla Kaupþings Norðurlands hf. mismundandi eftir sam-
setningu verðbréfaeignar.
Heildarvextir annarra skuldabréfa en ciningabréfa eru reiknað-
ir út frá hækkun lánskjaravísitölu síðastliðna 3 mánuði. Raun-
og nafnávöxtun Einingabréfa og Lífeyrisbréfa er sýnd miðaö
við hækkun þeirra síðastliðna 3 mánuði.
Flest skuldabréf er hægt að endurselja með litluni íyrirvara.
Einingabréf er innleyst santdægurs gegn 2% innlausnargjaldi.
Spariskírteini eru seld á 2-3 dögum og flest önnur skuldabréf
innan tveggja vikna. Fé í Fjárvörslu Kaupþings Norðurlands er
oftast hægt að losa innan viku.
ATH! Hægt er aö greiða keypt verðbréf nteð gíróseðli og fá
þau síðan send í ábyrgðarpósti.
KAUPÞING
NORÐURLANDS HF
Ráðhústorg 5 Akureyri Sími 96-24700