Dagur - 13.07.1988, Page 3
13. júlí 1988 — DAGUR — 3
Grasvöllur í Ólafsfirði:
Framkvæmdir að heíjast
Eitt tilboð barst í fyrri hluta
framkvæmda við grasvöll í
Ólafsfirði. Verkinu á að Ijúka
fyrir haustið og næsta sumar
verður svo lokið við völlinn.
Það sem nú hefur verið gert á
fyrirhuguðu vallarstæði er ekki
annað en að grafnir hafa verið
skurðir til að þurrka landið.
Verkið sem nú hefur verið samið
um felur í sér jöfnun á vallar-
stæðinu og keyrslu á efni í undir-
lag, auk frágangs á frárennslislögn-
um. Næsta sumar verður svæðið
endanlega jafnað og völlurinn
tyrfður.
Tilboðið var frá Tréveri hf. og
Árna Helgasyni á Ólafsfirði. Það
er eins og kostnaðaráætlunin á
bilinu 4,4-4,5 milljónir. Samning-
ar hafa tekist og eru framkvæmd-
ir í þann veginn að hefjast. Þeim
á að ljúka á átta vikum. ET
Ámælisverður
fréttaflutningur
- segir Jóhann á Ytra-Hvarfi
Jóhann Ólafsson, bóndi á
Ytra-Hvarfi í Svarfaðardal,
sagði í gær að verið væri að
vinna í málinu vegna dauða
kýrinnar í landareign hans fyrir
skömmu, en Jóhann hefur iýst
því yfir að hann telji bæjar-
stjórn Dalvíkur ábyrga fyrir
því atviki.
Eins og áður hefur komið fram
þá íhugaði Jóhann að kæra kýr-
dauðann og hefur hann krafist
skaðabóta. Því erindi var svarað
neikvætt. Jóhann sagði að
bæjarráð ætti eftir að fjalla ítar-
legar um málið og væri lítið um
það að segja í bili.
Jóhann er óánægður með
fréttaflutning Ríkisútvarpsins af
þessum málum í síðustu viku og
af almenningi sé sá fréttaflutning-
ur talinn jafngilda árás á hann
persónulega. „Þessi fréttaflutn-
ingur var ámælisverður að því
leyti að ekki var haft samband
við alla málsaðila. Það er full
ástæða til að gagnrýna það hvern-
ig útvarpið hélt á þessu,“ sagði
hann.
Jóhann sagði að það hefði ekki
verið fyrr en fleiri fjölmiðlar
hefðu farið að flytja fréttir af kýr-
dauðanum að almenningur fór að
sjá hans hlið á málum. EHB
Hópurinn að „siá upp“ mótum fyrir gangstéttagerð. Frá vinstri: Unnar
Elísson vcrkstjóri, Kristleifur Björnsson, Aðalbjörn Sigurðsson, Hörður
Guðmundsson. Mynd: ET
Unglingavinnan
á Egilsstöðum:
„Ekki bara
spuming um
peninga“
Unnar Elísson er flokksstjóri
í vinnuskólanum á Egilsstöö-
um sitt annað sumar. Hann
var ásamt „þrælum“ sínum
aö slá upp og gera klárt fyrir
steypu á gangstétt.
Unnar segir það áberandi að
krakkar á Egilsstöðum hafi ekki
jafn mikla peninga á milli hand-
anna og jafnaldrar þeirra niðri á
fjörðunum. „Þetta er láglauna-
svæði,“ segir hann.
Þó svo að tímakaupið í ungl-
ingavinnunni á Egilsstöðum sé
hærra en víðast hvar annars
staðar þá eru tekjurnar mun
minni en í fiskvinnslunni þar
sem mikla vinnu er að fá. „Þetta
er hins vegar ekki bara spurning
um peninga því krakkarnir læra
mikið af þessu,“ sagði Unnar.
ET
„Þráuðumst við að hafa nokkur net í sjó,“ sögðu þeir Gunnar Gunnarsson
og Jón Árnason sem stunda grásleppuveiðar sem aukabúgrein. Mynd: mþþ
„Grasleppan er óút-
reiknanlegur fiskur“
- spjallað við grásleppukarla í Ólafsfirði
„Við erum að hreinsa netin,
það hefur verið svo leiðinlegt
veður undanfarið að því hefur
verið frestað æ ofan í æ,“
sögðu þeir Gunnar Gunnars-
son og Jón Árnason sem í óða
önn voru að taka sama grá-
sleppunet úr Hafeyju frá
Ólafsflrði. Ekki létu þeir vel af
vertíðinni, sögðu hana með
endemum lélega.
Félagarnir sögðust hafa fengið
um 17 tunnur, en þeir voru með
50 net í sjó. „Við bættum lítið við
úthaldið frá í fyrra, en afrakstur-
inn er ekki þriðjungur á við þá,“
sögðu Gunnar og Jón. Sögðu þeir
elstu menn þó muna eftir svo
lélegri vertíð. „Grásleppan er
óútreiknanlegur fiskur. Það er
aldrei að vita hvar hún heldur sig.
Hún virðist alveg hafa sleppt
Norðurlandi í ár. Það var aldrei
neinn kraftur í veiðunum hér um
slóðir.“ Vertíðinni lauk þann 20.
júní, en Gunnar og Jón voru að
mestu hættir veiðum þá, „við
vorum að þráast við að hafa
nokkur net í sjó, en árangurinn
var ekki mikill,“ sögðu þeir.
Grásleppuveiðina kváðu þeir
vera aukabúgrein. Gunnar er
olíusölumaður og Jón bóndi, en
grásleppuveiðina hafa þeir stund-
að í hjáverkum til fjölda ára.
Gunnar fór fyrst á grásleppu árið
1966 og Jón sagðist ekki muna
gjörla hvenær hann hefði byrjað
að veiða grásleppu.
Þrátt fyrir lélega vertíð ætluðu
þeir félagar ekki að gefast upp.
„Maður verður að vera
bjartsýnn, þó að ekki gangi alltaf
vel. Við gefumst ekkert upp á
þessu,“ sögðu þeir glaðbeittir.
mþþ
'