Dagur - 13.07.1988, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - 13. júlí 1988
í blíðskaparveðri á föstudag-
inn var slógu fóstrur og börn á
barnaheimilinu Iðavelli á
Akureyri upp heilmikilli grill-
veislu. En það var ekki bara
grillað, börnin buðu líka upp á
ýmis skemmtiatriði og var ekki
annað að sjá en allir hefðu
gaman af. Búið var að skreyta
svæðið og koma blöðrum fyrir-
hér og þar á svæðinu.
Það var sól og blíða þegar
Dagsmenn komu við á Iðavelii
um hádegi á föstudaginn og mikil
stemmning yfir öllum. Krakkarn-
ir höfðu klætt sig upp á í tilefni
dagsins. Ekki nóg með það held-
ur voru þeir og skrautlega málað-
ir í framan, svo helst leit út fyrir
að væri annar í öskudegi. Ekki
spillti fyrir að mömmu og pabba
var boðið að koma og taka þátt í
skemmtuninni.
Þar sem krakkarnir á Iðavelli’
eru býsna margir þurfti að
skipta þeim niður í tvo hópa, og
var þeim skipt niður eftir því
hvort þau eru í vistun fyrir eða
eftir hádegi. Það þurfti því að
standa í ströngu við grillið, enda
tekur maginn lengi við þegar
grillaðar pylsur eru annars vegar.
Hver pylsupakkinn á fætur öðr-
um hvarf á grillið. Á meðan þess
var beðið að pylsurnar yrðu til-
búnar máluðu krakkarnir allra
handa listaverk úti undir berum
himni og sporðrenndu pylsum
milli þess sem málað var.
Þær eru góðar grilluðu pylsurnar. Myndir: gb
Það var mikil steinmning í grillveislunni á Iðavelli, enda lék veðrið við hvurn sinn fingur.
BREMSAÐU!!!
Eru bremsuborðamir í lagi?
Vönduð vara=aukið öryggi
Þín vegna
Véladeild KEA
Óseyri • ® 21400 & 22997
Loksins
er hún komin
kotasælan
með lauk ,
::: Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400
Njóttu ferðarinnar!j^2>^
Aktu eins og þú vilt að aðrir dklirvr
Góðaferð! llX™1