Dagur - 13.07.1988, Qupperneq 6
6 - DAGUR - 13. júlí 1988
Börnin í röð á hestinum: Hanna Björg 10 ára, Jóhanna Björg 10 ára, Börkur
8 ára, Guðný 8 ára og Ásthildur 11 ára. Vedís Bjarnadóttir, leiðbeinandi.
Húsavík:
Böm á
reiðnámskeiði
Reiðnámskeið fyrir börn
stendur yfir á Húsavík. Nám-
skeiðið er haldið á vegum
hestamannafélaganna Grana og
Þjálfa og æskulýðs- og íþrótta-
nefndar Húsavíkur. Leiðbein-
andi er Vedís Bjarnadóttir en
hún hefur sótt námskeið á veg-
um Landssambands hestamanna
og öðlast réttindi til að leið-
beina byrjendum í hesta-
mennsku. Dagur skrapp upp
að hesthúsunum þar sem Vedís
var með hóp barna á aldrinum
8 til 11 ára og virtust þau una
sér hið besta innan um hest-
ana. Vedís var spurð hvort
svona námskeið hefðu verið
haldin áður.
„Ég hef tvisvar sinnum áður
verið með námskeið fyrir byrj-
endur en einnig hafa komið
kennarar að og verið með nám-
skeið fyrir þá sem lengra eru
komnir.“
- Er mikil aðsókn að nám-
skeiðinu?
„Ég er með 24 nemendur sem
skiptast í þrjá hópa sem eru á tíu
daga námskeiðum. Það er yfir-
fullt og ég gat því miður ekki tek-
ið alla sem langaði að vera með
þó að námskeiðið væri ekki mikið
auglýst. Okkur vantaði fleiri
hesta, þó fengum við bæði hesta
hér úr bænum og úr sveitunum
frá eigendum sem voru fegnir að
fá hreyfingu fyrir hrossin sín.“
- Þýðir svona mikil aðsókn á
námskeiðið að áhugi fyrir hesta-
mennsku sé að aukast?
„Það hefur sýnt sig að alls stað-
ar þar sem boðið er upp á svona
námskeið er yfirfullt. Börnin
þyrpast á námskeiðin svo það er
ekki vafi á að þau eru vinsæl. Það
er gott fyrir börnin að sækja
svona námskeið til að læra með-
ferðina á skepnunum og ég vildi
að sem flest bæjar- og sveitarfé-
lög gætu boðið upp á slík nám-
skeið þar sem börnin gætu fengið
að kynnast þessum undur-
skemmtilegu dýrum. Hver einasti
einstaklingur hefur gott af að fá
að komast í snertingu við dýrin
og náttúruna."
- Hvað er kennt á námskeið-
unum?
„Ég segi þeim það helsta um
hestana og reiðtygin, hvernig eigi
að leggja reiðtygin við hestinn,
kemba honum, bursta og snyrta.
Kenni þeim ásetu og hvernig þau
eiga að bera sig á hestinum og
stjórna honum. Og svo leyfi ég
þeim sem mest að njóta samvist-
anna við hestinn.“
- Finnst þér gaman að leið-
beina börnunum?
„Það er alltaf gaman að vera
með ungu fólki. Börnin eru svo
yndisleg."
- Hefur eitthvað eftirminni-
legt komið fyrir hjá ykkur?
„Mér leist ekkert á í gær þegar
áburðarflugvélin flaug tvisvar
sinnum rétt ofan við kollana á
okkur, sem betur fer kom ekkert
fyrir en ég varð skelkuð." IM
í nýrri rannsóknastöð Hafna-
málastofnunar er ætlunin að
gera iíkanatilraunir með tvær
hafnir á ári hverju. Fyrsta
sveitarfélagið sem nýtur góðs
af þessari frábæru aðstöðu
verður Grímsey og þegar stöð-
in var tekin í notkun á dögun-
um gaf á að líta nákvæmt líkan
af höfninni þar á bæ. Á hafnar-
bakkanum stóðu þeir Gísli
Viggósson forstöðumaður
rannsóknadeildar Hafnamála-
stofnunar og Sigurður Sigurð-
arson dcildarverkfræðingur,
auk tveggja sveitarstjórnar-
manna úr Grímsey þeirra Þor-
láks Sigurðssonar oddvita og
Sigfúsar Jóhannessonar.
Hið nákvæma líkan er árangur
langrar undirbúningsvinnu sem
einkum felst í öldumælingum.
Öldumælingarnar fyrir Grímsey
hófust haustið 1985. Öldumæl-
ingarduflum var komið fyrir inni
í höfninni og 300 metrum sunnan
hennar og hið þriðja var síðan
staðsett á Grímseyjarsundi. Þetta
þriðja dufl var einnig notað sem
viðmiðunardufl við mælingar sem
gerðar hafa verið fyrir hafnirnar
á Sauðárkróki, Siglufirði, Ólafs-
firði, Hrísey, Árskógssandi og
Grenivík. Auk þessara öldumæl-
inga voru gerðar sjávarfallarann-
sóknir, botnmælingar, landmæl-
ingar og dýptarmælingar.
Alltaf eitthvað
sem kemur á óvart
Út frá niðurstöðum þessara rann-
sókna og mælinga var reiknuð
ölduhæð og öldustefna á rúmsjó.
Á grundvelli þeirra útreikninga
var meðal annars tekin ákvörðun
um staðsetningu líkansins í rann-
sóknastöðinni og um heppilega
stærð þess.
Nú kunna einhverjir að spyrja
sig hvort ekki sé einfaldara að
nota tölvulíkan við tilraunir sem
þessar á tölvuöld. „Ennþá er
þetta svo flókið að tölvuforrit
ráða ekki við þetta. Það er alltaf
eitthvað sem kemur manni á
óvart í þessu og slíkt sjáum við
best í svona líkani,“ svarar Gísli
Viggósson.
Samvinna við heimamenn er
stór þáttur í undirbúningi jafn
umfangsmikilla og mikilvægra
framkvæmda og þeirra sem
standa fyrir dyrum í Grímsey.
Þeir Sigfús og Þorlákur voru
þarna staddir til þess að staðfesta
að áhrif og ágangur sjávarfall-
anna í líkaninu gæfi rétta mynd
af því sem þeir þekkja svo vel úr
raunveruleikanum.
„Þetta er nauðsynlegt til að koma
í veg fyrir þá slæmu tilfinningu að
maður sé að gera einhverja bölv-
aða vitleysu,“ segir Gísli.
Knýjandi þörf á úrbótum
„Mér líst vel á þetta og þetta er
stórvirðingarvert átak sem hér
hefur verið gert,“ sagði Þorlákur
Sigurðsson oddviti í samtali við
blaðamann. Aðspurður sagðist
hann kannast vel við alla stað-
hætti á líkaninu og hér hefði
greinilega verið vandað til hlut-
anna. „Ef fjárveitingavaldið sýnir
því jafn mikinn áhuga og þessir
menn hafa gert, að bæta hafnar-
aðstöðu í Grímsey, þá þurfum
við engu að kvíða. Þetta erum
við hins vegar ekki farnir að sjá
ennþá,“ sagði Þorlákur.
í sama streng tók Sigfús
Jóhannesson. „Það er orðið svo
knýjandi að gera úrbætur að það
er farið að standa öllu öðru fyrir
þrifum. Á síðustu tveimur árum
hafa verið að koma heim einir sjö
átta ungir menn og þeir eygja
enga möguleika á að hefja útgerð
nema úr verði bætt. Ef menn geta
ekki verið þarna með bát þá hafa
Frá Grímsey.
þeir ekkert þarna að gera. Það er
heila málið,“ sagði hann.
Ometanlegt lán í óláni
Líkanið er byggt í mælikvarðan-
um 1:60, þ.e.a.s. einn metri á lík-
aninu stendur fyrir 60 metra í
raunveruleikanum. Tímakvarð-
inn er hins vegar þannig að einn
klukkutími í náttúrunni verður
rúmar sjö mínútur í líkaninu og
massakvarðinn gerir eitt tonn í
náttúrunni að 4,6 grömmum í lík-
aninu. Til þess að mæla hreyfing-
ar skipa sem koma til með að
liggja við bryggju í Grímsey eru
notuð skipalíkön og til að allt sé
örugglega nákvæmlega eins og í
raunveruleikanum verða fengnir
skipstjórar til að binda skipin við
litlu bryggjuna.
Líkanið af Grímseyjarhöfn er
eins og áður segir mjög nákvæmt
og erfitt að standast þá freistingu
að vaða út í og ganga í barndóm,
í skipaleik. „Maður verður aldrei
fullorðinn hérna,“ segir Gísli.
Með því að slá inn upplýsingar
um ölduhæð og -hraða er hægt að
kalla fram hvert það veður sem
menn vilja og með einum takka
má á örskotsstundu gera úfinn
sjó spegilsléttan.
Síðastliðið ár var að sögn Gísla
alveg einstakt því þá kom í tví-
gang eitthvert versta veður sem
menn muna. Ofviðri 31. mars olli
miklu tjóni víða norðanlands og
9. október var veður einnig mjög
slæmt á svipuðum slóðum.
Veður eins og þá geisaði kemur á
nokkurra áratuga fresti. Það
gekk talsvert mikið á þegar öldu-
vélarnar mynduðu sjógang eins
og þann sem lék Norðlendinga
svo grátt á síðasta ári. í raun-
veruleikanum fór ölduhæðin
þann 9. október í rúma fjóra og
hálfan metra.
„Það er ómetanlegt lán í óláni
að fá þessi veður bæði á sama
árinu. Þetta gerir okkur kleift að
skoða nákvæmlega þær aðstæður
sem að öllu jöfnu koma ekki
nema á tuttugu ára fresti að með-
altali," sagði Gísli. ET