Dagur - 22.04.1989, Page 4

Dagur - 22.04.1989, Page 4
4 - DAGUR - Laugardagur 22. apríl 1989 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 900 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 80 KR. GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 595 KR. RITSTJÓRI: BRAGI V. BERGMANN (ÁBM.) FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON UMSJÓNARMAÐUR HELGARBLAÐS: STEFÁN SÆMUNDSSON BLAÐAMENN: ANDRÉS PÉTURSSON (íþróttir), BJÖRN JÓHANN BJÖRNSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960), EGILL H. BRAGASON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585), JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON (Reykjavlk vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík), ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR, LJÓSMYNDARI: TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. SÍMFAX: 96-27639 Kaupfélag Skag- firðinga 100 ára Kaupfélag Skagfirðinga er 100 ára á morgun, 23. apríl. Heil öld er þá liðin síðan 11 bændur úr Skaga- firði og einn bóndi úr A-Húnavatnssýslu komu sam- an á Sauðárkróki í þeim eðla tilgangi að stofna kaupfélag. Kaupfélag Skagfirðinga er þriðja elsta kaupfélag landsins, aðeins Kaupfélag Þingeyinga og Kaupfélag Eyfirðinga eru eldri. Mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því stofnfundurinn var haldinn. Þá voru þjóðfélagsaðstæður allt aðrar en nú, ísland var danskt yfirráðasvæði og meginþorri fólks bjó í sveitum. Síðan hefur stökkbreyting átt sér stað á öllum sviðum þjóðlífsins og hefur Samvinnuhreyf- ingin með kaupfélögin í broddi fylkingar verið mjög virk í þeirri framfarasókn. Kaupfélag Skagfirðinga ber aldurinn vel og hefur eflst og dafnað í áranna rás. Með samvinnuhugsjónina að leiðarljósi hefur félagsmönnum þess auðnast að ná flestum þeim háleitu markmiðum sem hinir framsýnu stofnendur þess settu félaginu í upphafi og látið sig varða atvinnu- og félagslega uppbyggingu á flestum svið- um þjóðlífsins. Óhætt er að fullyrða að starfsemi Kaupfélags Skagfirðinga hefur orðið byggðarlaginu í heild til stórkostlegra hagsbóta. Á þessum tímamótum í sögu samvinnustarfs á íslandi er þó vert að minnast þess að samvinnu- hreyfingin og þar með kaupfélögin öll hafa átt mjög undir högg að sækja síðustu misserin. Það sama gildir um allan undirstöðuatvinnurekstur lands- manna. í þeirri staðreynd er skýringin reyndar fólgin, því kaupfélögin eiga það sammerkt að umsvif þeirra í útgerð, fiskvinnslu og landbúnaði eru mikil. Þau eru öll burðarásar atvinnulífs í sínu byggðarlagi. Þegar við bætist að verslunarrekstur í dreifbýli á við erfiðleika að stríða, er ekki að sökum að spyrja. Styrkur þeirra hefur löngum legið í fjöl- breyttum rekstri og þegar tap hefur verið á einu rekstrarsviði hefur gjarnan verið hagnaður á öðru. Þannig hefur samvinnumönnum tekist að vinna sig út úr tímabundnum erfiðleikum og jafna árstíða- bundnar sveiflur. En rekstrarumhverfið er kaupfé- lögunum fjandsamlegra nú en nokkru sinni fyrr og því miður bendir fátt til þess að betri tíð sé á næsta leiti. Kaupfélag Skagfirðinga, eins og nær öll hin kaupfélögin, hefur búið við verulegan taprekstur síðustu tvö árin og nemur tapið tugum milljóna. Þetta hefur gerst þrátt fyrir að stjórnendur félags- ins hafi gætt ýtrustu hagkvæmni og aðhalds í rekstrinum. Sú staðreynd varpar vissulega skugga á annars stórkostlega stund. Afmælisins á morgun verður minnst með ýmsum hætti og reyndar hófst undirbúningur þess fyrir ein- um fimm árum. Ljóst er að mikið verður um dýrðir á Sauðárkróki á morgun enda tilefni til fagnaðar ærið. Dagur sendir félagsmönnum Kaupfélags Skagfirð- inga og samvinnumönnum öllum hugheilar árnað- aróskir á þessum merku tímamótum. Megi Kaupfé- lag Skagfirðinga dafna um ókomna tíð, félagsmönn- um sínum og byggðarlaginu öllu til farsældar. BB. myndbondorýni / Lestar- ræningiiin Phil Collins Videoland: Buster Útgcfandi: JB-heildverslun Leikstjóri: David Green Aðalhlutvcrk: Phil Collins og Julie Walt- ers Sýningartími: 96 mínútur Ekkert aldurstakmark Popparar hafa gert það býsna gott í kvikmyndum og má þar t.d. nefna Sting, David Bowie, Bob Geldof (The Wall), Madonnu og Kenny Rogers. Nú er Phil Collins, trommuleikari og söngvari Genesis og þúsund- þjalasmiður á tónlistarsviðinu, kominn á hvíta tjaldið. Eftir- væntingin var mikil þegar ég skellti Buster í tækið því ég hafði fylgst spenntur með fréttum af framleiðslu myndarinnar, enda gamall og gróinn Collins-aðdá- andi. Pví miður brást myndin að nokkru leyti vonum mínum. Vissulega er Buster skemmtileg mynd en þó ekki nema tveggja stjörnu. Ég bjóst við meiru af Phil Collins. Þessi litli naggur með háu kollvikin bjargaði mór- alnum í hljómsveitinni Genesis á sínum tíma, enda geislar af hon- um húmorinn. í Buster fær hann hins vegar ekki að njóta sín nægi- lega og dreg ég leikstjórann David Green hiklaust til saka. Reyndar fer Collins vel með sína rullu og í tveimur eða þremur atriðuin fær hann loks að leika lausum hala og þá stóð ekki á viðbrögðuni mínum: Skerandi hlátur sem skelfdi gamlar konur í gervöllu Síðuhverfi. Buster er ekki hreinræktuð gamanmynd. Hún segir frá Bust- er Edwards, sem er „smá- krimmi", stelur ungbarnafatnaði og öðrum nauðsynjum, og eigin- konu hans, June, sem Julie Walt- ers leikur. Buster ræðst í það stórverkefni ásarnt öðrum þjóf- um að ræna póstlest, sem var stútfull af peningum. Þeir komast undan með feng sinn en fljótlega nær lögreglan í skottið á flestum. Þá fara Buster og Bruce vinur hans til Acapulco í Mexíkó ásamt eiginkonum sínum og lifa þar í vellystingum praktuglega. I Mexikó koma upp vandræði í hjónabandi Busters og June (sbr. Sólarferð hjá Leikfélagi Akur- eyrar) sern leiða til þess að June fer aftur heim til Lundúna. Þá fer glansinn af sældarlífinu og Buster saknar konu sinnar gríðarlega og álpast til Englands, þar sem hann var eftirlýstur og hundeltur. Hann gat ekki flúið örlög sín. Þrátt fyrir býsna gallað handrit og leikstjórn er vel þcss virði að horfa á Buster, sérstaklega fyrir Collins-aðdáendur, en þau Phil Collins og Julie Walters sýna ágætan leik í hlutverkum sínum. En ég veit að Collins getur betur. SS Ástog æsingurí fjölmiðlaheiini Videoland: Broadcast News Útgefandi: Steinar hf. Leikstjóri: James L. Brooks Aðalhlutverk: William Hurt, Holly Hunter, Albert Brooks Ekkert aldurstakmark Broadcast News er tilvalin skemmtun fyrir okkur sem lifum og hrærumst í fjölmiðlun en auð- vitað á þessi gamanmynd ekki síður erindi til annarra þjóðfé- lagshópa. James L. Brooks, sem gerði hina hugljúfu Terms of Endearment, skrifar hér handrit- ið, framleiðir myndina og er jafn- framt leikstjóri. Hann er enn á býsna hugljúfum nótum en hlífir okkur þó við óþarfa væmni. Endirinn hefði t.d. auðveldlega getað orðið að einskærri sykur- leðju en Brooks bjargar sér úr þeirri klípu. Það er best að fjölyrða ekki um endi myndarinnar, nær væri að byrja á byrjuninni. Aðalpersón- urnar fá ítarlega kynningu í byrj- un þannig að bakgrur.nur þeirra er áhorfendum ljós áður en myndin hefst fyrir alvöru. Þetta eru þau Tom (William Hurt), Jane (Holly Hunter) og Aaron (Albert Brooks). Þau vinna á lítilli sjónvarpsstöð í Bandaríkj- unum og samkeppnin er í al- gleymingi. Jane er útsendingar- stjóri, yfirmáta stressuð að sjálf- sögðu, Aaron er þrautreyndur fréttamaður en Tom er nýr og verður brátt skæðasta vopn stöðvarinnar. Til að gera langa sögu stutta, já hún er býsna löng, þá er hér kominn hinn klassíski ástarþrí- hyrningur og slíkt kann varla góðri lukku að stýra á vinnustað. Hvað þá þegar vinnustaðurinn er sjónvarpsstöð. Myndin líður áfram með skemmtilegum uppá- komum og togstreitu en alvar- legri atburðir koma líka til sögu- nnar, s.s. aðhald og uppsagnir. Broadcast News sýnir fjöl- miðlaheiminn á býsna raunsæjan hátt en heimur sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum er óneitanlega harðari en heimur dagblaðs á Norðurlandi. Þarna beita menn ýmsum vafasömum brögðum og eitt slíkt hefur mikil áhrif á gengi gulldrengsins Tom í einkalífinu. Tæknilega er Broadcast News vel gerð og leikur er líka með ágætum, sérstaklega hjá William Hurt, sem sjaldan klikkar, og Holly Hunter kom þægilega á óvart. Þetta er þriggja stjörnu ræma, eða hátt í það. SS 1/ Samtök íslenskra myndbandaleiga: incaali icti i mi/nHhnnrlin V Sæti Áður Mynd (Útgefandi) 1. H Crocodile Dundee . (Háskólabíó) 2. (3) Little Nikita 3. (4) Fatal Beauty (J.B. Heildsala) 4. (8) Saigon 5. (19) A Prayer for the Dying (J.B. Heildsala) 6. (17) Buster ... (Arnarborg) 7. (5) Broadcast News 8. (20) Cop (Myndbox) 9. (7) Barfly (Myndbox) 10. (6) Plains, Trains And Automobil . (Háskólabíó) 11. (9) Police Academy 5 (Steinar) 12. (12) Can’t Buy My Love 13. (11) Vice Versa (Skífan) 14. (8) Frantic 15. (15) Biloxi Blues (Laugarásbíó) 16. H The Telephone 17. (24) Stars and Bars 18. (-) Pulze 19. (14) Baby Boom 20. (16) Colors . (Háskólabíó) 21. (10) Fatal Attraction . (Háskólabíó) 22. (13) Wall Street 23. (-) Killing Time (Myndbox) 24. (27) The last Embrace (Steinar) 25. (-) Young Again (Bergvík) 26. (25) Fear ... (Myndform) 27. H Húsið við Carolstræti . (Háskólabíó) 28. (28) Firstborne (Bergvík) 29. (-) Trouble in City of Angels ... (Arnarborg) 30. (23) My Demon Lover (Skífan) 31. (18) Hero and the Terror (Myndbox) 32. (37) Deadlock ... (Myndform) 33. (21) Hostage 34. (*) Shakedown 35. H Dangerous Attraction (Myndbox) 36. (36) Moonstruck (J.B. Heildsala) 37. (26) Þrír menn og barn (J.B. Heildsala) 38. (*) Cry Freedom (Laugarásbíó) 39. (33) War of the Worlds . (Háskólabíó) 40. (-) Made in USA (Skífan) (-) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt á listanum. (*) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er að koma inn á listann á nýjan leik.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.