Dagur - 22.04.1989, Síða 7

Dagur - 22.04.1989, Síða 7
Laugardagur 22. apríl 1989 - DAGUR - 7 Sigurgeir Sigurpálsson og Páll Sigurgeirsson í nýja sýningarsalnum. Mynd: EHB 1 Skálafell sf. á Akureyri: Bflasýning nýjum sýningarsal í dag og á morgun er haldin bílasyning hjá Skálafclli sf. á Akureyri í húsnæði fyrirtækis- ins að Draupnisgötu 4. Skála- fell hefur tekið nýjan og glæsi- legan sýningarsal í notkun. Sigurgeir Sigurpálsson bifvéla- virkjameistari, eigandi Skála- fells, stofnaði sjálfstætt fyrirtæki árið 1964. Frá þeim tíma hefur hann verið með umboð fyrir Skoda bifreiðar á Akureyri, og með umboð fyrir Chrysler frá árinu 1974. Jafnframt því að veita sérhæfða þjónustu við þess- ar bifreiðategundir er rekið almennt bifreiðaverkstæði hjá Skálafelli sf. „Krafa tímans knúði okkur til að setja upp þennan sýningarsal, það eru flestir umboðsmenn með slíka sali nú,“ sagði Sigurgeir. I dag og á morgun milli kl. 13-17 verða sýndir 4 bílar frá Chrysler og Dodge: Plymouth Sundance, Dodge Aries, Chrysler leBaron og Dodge Shadow. Þetta eru „bílar með öllu,“ eins og sagt er, og hvetja Skálafellsmenn fólk til aö kynna sér mest seldu amer- ísku bílana á íslandi. Innan skamms verður önnur bílasýning hjá Skálafelli, á glæ- nýrri línu frá Skoda. EHB S.Á.Á.N. Aðalfundur samtaka áhugafólks um áfeng- isvandamálið, verður haldinn mánudaginn 24. apríl 1989 kl. 20.30 í Alþýðuhúsinu á Akureyri, 5. hæð (Fiðlaranum). Venjuleg aðalfundarstörf. Pétur Tyrfingsson ráðgjafi á Vogi flytur erindi. Stjórnin. Lauqardaaur kl. 13:45 ...''"MHT%TST Leikur 1 Charlton - Man. Utd. Leikur 2 Coventry - Q.P.R. Leikur 3 Derby Sheff. Wed. Leíkur 4 Middlesbro - Nott. For. Leikur 5 Newcastle - Luton Lelkur 6 Norwich Aston Villa Lelkur 7 Shouthamton - Wimbledon Leikur 8 Tottenham Everton Leikur 9 West Ham Millwall Leikur 10 Brighton - Swindon Leikur 11 Chelsea Leeds Leikur 12 Ipswich W.B.A. Símsvari hjá getraunum á laugardögum eftir kl. 16:15 er 91-84590 og -84464. ÞREFALDUR SPRENGIPOTTUR Fonnannaskipti hjá Tæknifræðinga- félagi fslands Aðalfundur Tæknifræðingafélags íslands fyrir árið 1988 var haldinn 29. mars sl. Fráfarandi formaður, Daði Ágústsson, flutti skýrslu um störf félagsins á starfsárinu. Núverandi stjórn skipa: Sveinn Frímannsson, formaður, Eiríkur Þorbjörnsson, Júlíus Þórarins- son, Hreinn Jónasson, Haraldur Sigursteinsson, Gunnar Sæ- mundsson og Bergsteinn Gunn- arsson. Skrifstofa félagsins er í Lág- múla 7, Reykjavík. Sveinn Frímannsson. Kirkjulistavika: Sýning Kristínar í kapellunni Myndlistarsýning Kristínar G. Gunnlaugsdóttur í kapellu Akureyrarkirkju verður opin um helgina kl. 15-20 laugardag og sunnudag. Sýningin er liður í Kirkjulistaviku í Akureyrar- kirkju, en þessari listaviku lýk- ur á sunnudaginn. Sýningin í kapellunni er fyrsta einkasýning Kristínar, en áður hefur hún tekið þátt í samsýning- um. Á sýningunni eru málverk frá árinu 1988 og íkonamyndir frá 1987-88. Kristín stundar nú framhaldsnám í Flórens á Ítalíu hjá prófessor Giulietti. Um kirkjulist og sýningu Krist- ínar segir m.a. í dagskrá Kirkju- listaviku: „Dæmi, sem stendur okkur nær hér í Akureyrarkirkju eru lágmyndir Ásmundar Sveins- sonar á söngloftinu, steindu gluggarnir, og einnig hinn undur- fagri skírnarfontur, sem gerður var eftir frummynd Thorvald- sens. Sá, sem stendur andspænis englinum með hörpuskelina get- ur ekki annað en dáðst að fegurð hans og rósemi. Það er einmitt þannig tilfinning sem fólk upplifir, þegar skoðaðar eru myndir Kristínar G. Gunn- laugsdóttur. Einlægni hennar og sá friður, sem geislar frá verkum hennar kveikja fallegar hugsanir í brjósti." SS verður haldinn á Hótel KEA fimmtudaginn 27. apríl og hefst kl. 10.30. Ath. Kynning á jógúrti frá kl. 10.00-11.00. Á fundinum verður einnig lögð fram ársskýrsla Mjólkursamlags KEA. (Ath. í stað aðalfundar Mjólk- ursamlags KEA). Dagskrá 1. Fundarsetning. 2. Skýrsla stjórnar og reikningar FEN. Oddur Gunnarsson. 3. Ársskýrsla Mjólkursamlags KEA. Þórarinn E. Sveinsson. 4. Verðlaunaveitingar v/mjólkur ’88. 5. Lagabreytingar FEN. 6. Kosningar FEN. 7. Önnur mál. Mjólkursamlag KEA býður fundarmönnum til hadegis- verðar að Hótel KEA. Stjórn FEN. Mjólkursamlag KEA.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.