Dagur - 12.12.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 12. desember 1989 - DAGUR - 7
Gúmmívinnslan hf. stundar merkilega starfscmi á sviði endurvinnslu sem margir binda vonir við.
séu vel ígrundaðar áður en farið
er af stað. Staðreyndin er sú að
oft er hægt að spara mikla pen-
inga með því að leggja meiri
vinnu og fjármagn í grundvallar-
útreikninga. Það getur verið dýrt
að spara sér ráðgjöf. Félagið tel-
ur skynsamlegt, hvað varðar nýja
starfsemi, að byggja fyrst og
fremst á íslenskri þekkingu og
reynslu og íslenskum auðlindum.
Það hefur oft orðið mönnum að
falli að fara langt út fyrir sitt
þekkingarsvið.
Forvarnarstarf er ekki síður
mikilvægt. Það er oftast nær mun
ódýrara að verja atvinnutækifæri
en skapa ný. Með það í huga nrá
segja að besta leiðin til að halda
atvinnuleysi í skefjum sé að verja
þá atvinnustarfsemi sem við
höfum. Vandamálið er hins vegar
það að fyrirtæki leita sér aðstoðar
alltof seint. Það er eins og for-
svarsmenn þeirra hafi ekki nógu
góðar uplýsingar um það hvernig
reksturinn gangi og/eða trúi því
að þetta bjargist allt einhvern
veginn. IFE hefur t.a.m. fengið
slík erfið dæmi til úrlausnar í ár.
Þá snýst dæmið ekki lengur um
að ná aukinni framleiðni og fram-
legð með endurskipulagningu
rekstursins, heldur einvörðungu
um það hvernig hægt sé að ná
skuldum niður. Á þessu þarf auð-
vitað að verða breyting. Um
þennan þátt hafa eigendur og
framkvæmdastjórar mest að
segja. IFE getur átt hlut að máli,
en á óhægt með að banka upp á
hjá einstökum fyrirtækjum að
fyrra bragði til að taka út rekstur
þeirra.
Á næsta ári verður áfram unn-
ið að ferðamálum. Stjórn félags-
ins telur að vaxtabrodd sé að
finna í ferðaþjónustu í Eyjafirði,
enda hefur ferðamönnum fjölgað
jafnt og þétt seinustu ár. Tekjur
af ferðamönnum eru umtalsverð-
ar og má nefna að áætlað er að
ferðamenn eyði um 1 milljarði
kr. á ári einungis á Norðurlandi
eystra. Með því að auka þann
tíma sem ferðamenn dvelja á
svæðinu og fjölga þeim tækifær-
utn sem þeir hafa til afþreyingar
getur veltan aukist umtalsvert og
styrkt þannig þau fyrirtæki sem
starfa í greininni.
IFE mun halda áfram að vinna
að uppbyggingu Háskólans á
Akureyri. Með eflingu Háskól-
ans geta skapast mörg atvinnu-
tækifæri í framtíðinni ef vel verð-
ur á málum haldið. Sérstaklega
er áhugavert að vinna að því að
skólinn verði miðstöð rannsókn-
arstarfsemi í sjávarútvegi.
Stóriðjumálin eru á viðkvæmu
stigi um þessar mundir þar sem
samningar íslendinga við erlenda
aðila eru ekki frágengnir. IFE er
nú tengiliður Eyfirðinga við iðn-
aðarráðuneytið um þessi mál og
mun fylgjast vel með framgangi
mála.
Hvers eðlis þau verkefni eru
sem IFE mun vinna fyrir At-
vinnumálanefnd Akureyrar er að
sjálfsögðu undir nefndinni
komið. Ljóst er að töluverður
tími mun fara í úrvinnslu hug-
mynda, sem borist hafa Hug-
myndasamkeppni Atvinnumála-
nefndar Akureyrar, en skilafrest-
ur rennur út 15. desember nk.
Niðurlag
IFE hefur átt því láni að fagna að
mikil samstaða hefur ríkt um
félagið meðal eignaraðila. Sú
samstaða hefur leitt til þess að
félagið er nú öflugasta iðnþróun-
arfélagið í landinu. í öðrum
landshlutum er einungis einn iðn-
ráðgjafi á hverjum stað. Starf-
semi iðnþróunarfélags á að vera í
sífelldri endurskoðun. Hraði
tæknibreytinga er ör og breyti-
leikinn í hagkerfinu það mikill að
menn þurfa að vera vakandi fyrir
því að breyta um áherslur. Meg-
inspurningin er því um áherslur
þ.e. hvernig starfseminni sé best
háttað til að hún skili sem bestum
árangri í atvinnuuppbyggingu
Eyjafjarðar.
Sæplast lif. cr dæmi uni ört vaxandi og vel rekið fyrirtæki á Eyjafjarðarsvæö-
inu.
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------..
AKUREYRARBÁER
Viðtalstímar
bæjarfulltrúa
Fimmtudaginn 14. desember 1989 kl. 20-22
veröa bæjarfulltrúarnir Gísli Bragi Hjartarson og
Sigríður Stefánsdóttir til viðtals á skrifstofubæjar-
stjórnar, Geislagötu 9, 2. hæð.
Bæjarfulltrúarnir munu svara símaviðtölum
eftir því sem aðstæður leyfa.
Síminn er 21000.
Bæjarstjóri.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNiN
Frá Pósti og síma
Akureyri
Á virkum dögum til jóla verða póststofurnar opnar til
kl. 18.00.
Laugardagana 16. og 23. des. verður opið frá kl.
10.00-16.00.
Síðasti skiladagur á pósti innanlands er mánu-
daginn 18. desember.
Frímerki eru seld á eftirtöldum stöðum:
Bókabúð Jónasar, KEA Hrísalundi, Möppudýrinu
Sunnuhlíð og AB búðinni Kaupangi.
Stöðvarstjóri.
SPREK
ÚR
FIÖRU
W ÓDLÍFSÞÆTTM
JÓN KR. GUDMUNDSSON
á Skáldsstödum
Sprek úr fjöru
Þjóðlífsþættir
eftir Jón Kr. Guðmundsson,
bónda á Skáldsstöðum í Reyk-
hólasveit.
Bók sem í senn er full af
þjóðlegum fróðleik og
fræðslu um líf genginna
kynslóða.
Verð aðeins kr. 1.870,-
BÓKAÚTGÁFAN
HILDUR
Sóleyjarsumar
eftir Guðmund Halldórsson
frá Bergsstöðum.
Norðlensk skáldsaga í
sérflokki.
Aldrei hefur hinum vin-
sæla höfundi tekist betur
en nú.
Verð aðeins kr. 2.925,-
BÓKAÚTGÁFAN
HILDUR
EfllR MJ TROMPA HENDI?
SKILAFRESTUR i HUGMYNDASAMKEPPNI
ATVINNUMÁLANEFNDAR ER AÐ RENNA ÚT. t
LOKADAGUR ER 15. DESEMBER 1989.
Atvinnumálanefnd Akureyrar