Dagur - 12.12.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 12. desember 1989 - DAGUR - 13
bœkur
í sumardölum
Iðunn hefur gefið út endurskoð-
aða útgáfu á ljóðabók Hannesar
Péturssonar skálds, / sumardöl-
um, sem lengi hefur verið ófáan-
leg. Bókin kom út árið 1959 og
var önnur í röðinni af ljóðabók-
um Hannesar. Hún staðfesti það
sem mönnum var raunar ljóst
þegar við útkomu fyrstu bókar
hans: Að nýr meistari ljóðsins
var kominn fram með þjóðinni.
Hér játar skáldið hinu jarð-
neska lífi ást sína og hollustu
með opinskáum hætti, en túlkun-
in er slungin andstæðum eins og
Ólafur Jónsson lýsti í ritdómi:
„Áherslan á lífsnautn og tilfinn-
ingu er sprottin af vitundinni um
stöðuga návist dauðans og þar
með hverfleik allra hluta -
óhöndlanleik þeirra . . .“
„Bókin er auðug að eftirminni-
legum ljóðmyndum; frá hringrás
náttúrunnar vor og haust, af
stöðum heima og erlendis. Hér
eru fögur og tregablandin ástar-
ljóð og loks flokkurinn Söngvar
til jarðarinnar, sem geymir nokk-
ur þau ljóð skáldsins sem lesend-
um þykir vænst um,“ segir í frétt
frá útgefanda.
Bókin um
Sesar
Út er komin hjá Erni og Örlygi
bók um einn frægasta mann ver-
Forsvarsmenn fyrirtækisins í húsakynnunum við Glerárgötu. Frá vinstri: Björgólfur Jóhannsson, Gunnar Jónsson,
Valtýr Hreiðarsson, Þorsteinn Kjartansson og Arnar Árnason. Mvnd: kl
Endurskoðun Akureyri hf. og Fell hf. sameinast:
Meginmarkmið aukin
hagræðing í rekstri
Á undanförnum vikum hafa
staðið yfir viðræður milli
tveggja fyrirtækja á Akureyri,
Endurskoðunar Akureyri hf.
og Fells hf. um víðtæka sam-
vinnu. Viðræðunum lauk ný-
verið með undirritun sam-
komulags um sameiningu
rekstrar félaganna sem fram-
vegis munu starfa undir nafni
Endurskoðunar Akureyri hf.
Sameiningin tók formlega gildi
um síðustu mánaðamót og
verður starfsemin fyrst um sinn
í húsakynnum beggja fyrir-
tækjanna þ.e. að Glerárgötu
24 og Tryggvabraut 22.
Af þessu tilefni ræddi Dagur
stuttlega við þrjá forsvarsmenn
fyrirtækisins, þá Þorstein Kjart-
ansson, Valtý Hreiðarsson og
Björgólf Jóhannsson. Þeir sögðu
meginmarkmið sameiningarinn-
ar að ná fram aukinni hagræð-
ingu í rekstrinum og auk þess
mun fyrirtækið nú frekar geta
sinnt öllum þáttum atvinnulífsins
með þeirri sérhæfingu sem þörf
er fyrir á öllum sviðum. Pjónustu-
svið fyrirtækisins breikkar.
Endurskoðun, bókhald, ráðgjöf,
skattskil, víðtæk tölvuþjónusta
og ráðningarþjónusta eru meðal
þeirra þjónustuþátta sem hægt
verður að sækja til fyrirtækisins.
Samstarfsaðilar Endurskoðunar
Akureyri hf. eru Endurskoðun
hf. í Reykjavík, Endurskoðunar-
stofa Sig. Stefánsson hf. og
alþjóðlega endurskoðunarfýrir-
tækið KPMG.
Með sameiningunni verður
enn frekar lögð áhersla á trausta
og góða þjónustu, auk þess sem
betri möguleikar gefast á sérhæf-
ingu.
Allir starfsmenn beggja fyrir-
tækjanna munu starfa hjá Endur-
skoðun Akureyri hf., en þeir eru
um tuttugu talsins. Par af eru
fjórir löggiltir endurskoðendur,
þrír af þeim viðskiptafræðingar
og þrír viðskiptafræðingar að
auki. Annað starfsfólk er ýmist
með menntun á sviði verslunar
eða langa starfsreynslu á þessu
sviði.
Um næstu áramót taka gildi
lög um virðisaukaskatt. Að
undanförnu hefur fyrirtækið unn-
ið við að aðstoða viðskiptaaðila
sína við undirbúning m.a. með
fyrirlestrum og beinum ráðlegg-
ingum. Pá stendur til að halda
námskeið í tengslum við virðis-
aukaskattinn á næstunni fyrir við-
skiptavini fyrirtækisins. Lögun-
um fylgja ströng bókhaldsfyrir-
mæli og uppgjörið verður ekki
framkvæmt nema á grundvelli
bókhalds. Nú munu um 15 þús-
und nýir gjaldendur bætast við
frá því sem var í söluskattskerf-
inu og munu þeir þurfa að færa
sitt bókhald reglulegar cn verið
hcfur. Þessir aðilar þurfa að færa
sitt bókhald í það form að þeir
geti á tveggja mánaða fresti gert
upp virðisaukaskattinn. Bændur
eru undaþegnir uppgjöri á
tveggja mánaða l'resti og þurfa að
gera upp á sex mánaða fresti.
Aðspurðir um hvort kvíða
gætti hjá nýjum greiðendum
sögðu þeir félagar að hjá þeim
ríkti vissulega óvissa. Menn
þekktu kcrfið ekki nógu vcl, sem
kæmi m.a. til af því aö mikil
óvissa hefur ríkt um lögin, m.a.
vegna yfirvofandi frestunar á
dögunum. Eftir gildistökuna
þurfi fyrirtæki ákveðinn tíma til
að aðfagast þessu kerfi eins og
öðrum nýjungum.
Með tilkomu virðisaukaskatts-
ins fjölgar skattskyldum aðilum
mjög og hlutfallsiega mest á
Norðurlandi eystra því bændur
eru nú skattskyldir en voru það
ekki áður. Aðrir nýir greiðendur
eru sjálfstæðir atvinnurekendur
eins og iðnaðarmenn, sjómenn
og fleiri.
Síauknar kröfur til einkafyrir-
tækja og opinberra aðila um
hvers kyns fjárhagslegar upplýs-
ingar kalla á öfluga þjónustu
fyrirtækja á þessu sviði. Sveitar-
félög og stærri fyrirtæki hafa í
auknum mæli leitað eftir þcssari
þjónustu í sinni heimabyggð.
Þess má að lokum að geta, að
Þorsteinn Kjartansson mun um
áramót hverfa frá störfum í fyrir-
tækinu í eitt ár til að veita stórum
viðskiptaaöila sérfræðiþjónustu.
Hann sagði þarna korriið dæmi
um þjónustu sem fyrirtækið veit-
ir, en viðskiptaaðilinn setn um
ræðir hefur skipt lengi við fyrir-
tækið og þarf á þessari sérfræði-
þjónustu að halda nú vegna
endurskipulagningar.
aldarsögunnar, Julius Sesar,
hershöfðingja, stjórnmálamann,
stjórnsýslugarp, mælskumann,
snjallan rithöfund, kvennagull,
mikinn lærdómsmann, og mann
sem var gæddur næmum smekk
og hrífandi persónutöfrum.
I kynningu frá útgefanda segir
m.a.: „Julius Sesar var ekki ein-
ungis snjall í öllu sem hann tók
sér fyrir hendur, heldur afburða-
snjall. Ferill hans einkenndist í
senn af upplýstu hugarfari og
frjálslyndi og hrottalegu ofbeldi.
Sesar var uppi á mikilvægum
tímamótum í sögunni, þegar
rómverska lýðveldið var að
syngja sitt síðasta vers og keis-
aradómurinn að taka við. Þetta
var tímaskeið mikillar ókyrrðar í
Róm, og á því hófust yfir aðra
hershöfðingjar á borð við Súllu,
Krassus, Pompejus og Sesar
sjálfan. Kringum þá voru stjórn-
málamenn, mælskusnillingar og
skáld eins og Kató, Ahenóbar-
bus, Síseró og Katúllus. Við lest-
ur þessarar hrífandi ævisögubók-
ar prófessors Grant sér lesandinn
þessa örlagatíð nánast ljóslifandi
fyrir sér.“
í bókinni um Sesar er á annað
hundrað Ijósmyndir, kort og
teikningar sem auðvelda mönn-
um að skilja efnið og komast bet-
ur inn í söguþráðinn.
Dagur Þorleifsson þýddi bók-
ina.
Opnunartími
í desember
Þriöjud. 12. desember kl. 9-21.
Miðvikud. 13. desember kl. 9-21.
Fimmtud. 14. desember kl. 9-21.
Föstud. 15. desember kl. 9-21.
Laugard. 16. desember kl. 9-22.
Fimmtud. 21. desember kl. 9-21.
Föstud. 22. desember kl. 9-21.
Laugard. 23. desember kl. 9-23.
Lokað verður 27. desember v/frís hjá starfsfólki.
Opnum aftur 28. desember kl. 9
HAGKAUP
Akureyri
Spilabókin
Vaka-Helgafell hefur gefið út
bók um spil í flokki tómstunda-
bóka sinna. Hún heitir einfald-
lega Spilabókin. Guðni Kolbeins-
son valdi spilin úr efni frá Poli-
tiken-forlaginu danska, þýddi
leiðbeiningar og leikreglur.
Spilabókin var upphaflega gefin
út hjá Vöku-Helgafeli fyrir fimm
árum en er nú gefin út að nýju í
breyttu formi þannig að hún fell-
ur inn í flokk tómstundabóka
útgáfunnar.
I Spilabókinni er að finna
fjölda spila af ýmsum toga. Bók-
inni er skipt í þrjá aðalkafla:
Barnaspil, fjölskylduspil og pen-
ingaspil.