Dagur - 30.12.1989, Blaðsíða 1
72. árgangur Akureyri, laugardagur 30. desember 1989 252. tölublað
Pórður Friðjónsson, forstjóri Pjóðhagsstofnunar leggur áramótakapal:
Búist við hækkun á
verði sjávarafurða
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, segir að
gott útlit sé með verð fyrir sjáv-
arafurðir á mörkuðum erlendis
á næsta ári og líkur séu til að
það verði nokkru hærra en
gengið hafi verið út frá við
gerð nýrrar þjóðhagsáætlunar.
Hann segir að margt bendi til
að botni efnahagslífsins sé náð
og búast megi við að birti til á
síðari hluta næsta árs og á
árinu 1991 sé gert ráð fyrir eins
til tveggja prósenta hagvexti.
Þórður segir að viðamikil
skuldbreyting fyrir tilstilli
Atvinnutryggingasjóðs hafi
óneitanlega lagfært greiðslustöðu
svokallaðra undirstöðufyrirtækja
verulega og þessi bætta staða
samfara lækkuðum fjármagns-
kostnaði og raungengislækkun
hafi bætt afkomu þeirra verulega
frá fyrra ári. „Á sjávarútvegsfyr-
irtækjum var mikið t^p árið 1988
en í nóvember sl. töldum við að
botnfiskveiðar og -vinnsla hafi
verið rekin með 2-3 prósenta
hagnaði. Hallinn var hins vegar
tæplega 5% á árinu 1988. Við-
snúningurinn nemur því hvorki
meira né minna en 7-8%.“
Pórður telur að skuldbreytingu
í sjávarútvegi sé nú að mestu lok-
ið en hins vegar séu enn miklir
erfiðleikar í atvinnugreinum eins
og ullariðnaði og fiskeldi og
óvissa um hvernig þeim reiði af.
Að sögn Þórðar má almennt
segja að fyrirtæki á landsbyggð-
inni hafi verið að bæta afkomu
sína undanfarið en hins vegar
gildi hið gagnstæða um fyrirtæki
á höfuðborgarsvæðinu. „Það er
erfitt að tímasetja nákvæmlega
hvenær botninum er náð en mér
sýnist við vera ansi nálægt honum
nú og framundan sé betri tími.
Við gerum áfram ráð fyrir sam-
drætti á næsta ári en hann verður
minni en á þessu ári. Ég tel víst
að menn séu ekki búnir að bíta úr-
nálinni með gjaldþrot fyrirtækja.
Á fyrrihluta næsta árs eiga trú-
lega eftir að koma upp á yfir-
borðið erfið viðfangsefni í
atvinnulífinu. Ég hygg að það
verði mest í öðrum greinum en
sjávarútvegi."
Þórður segir að mikil óvissa sé
með kjarasamninga og alla þætti
í efnahagsmálunum er lúti að
verðbólgu. Hvað framleiðslu-
greinarnar varðar segir hann að
óvissu gæti með loðnuveiðarnar
og tekjur þjóðarbúsins af henni, í
öðru lagi með ullariðnaðinn og í
þriðja lagi fiskeldið. „Hins vegar
er fremur búist við að verð á sjáv-
arafurðum hækki og líklega
meira en gert var ráð fyrir í okkar
áætlunum."
Þá segir Þórður að mikil óvissa
sé með hlut áliðnaðarins í þjóð-
arbúskapnum á næsta ári. Ef tek-
in verði ákvörðun um byggingu
nýrrar álbræðslu á íslandi í upp-
hafi næsta árs og framkvæmdir
hefjist strax á árinu, sé ljóst að
hagvöxtur verði meiri á árinu
1991 en spár Þjóðhagsstofnunar
geri ráð fyrir. óþh
Lögreglan Akureyri:
Fangi kveikti
í teppum
- eldur í íbúð við
Skarðshlíð
Talsverð ölvun var í miðbæ
Akureyrar í fyrrinótt. Ungur
inaður sem fluttur hafði verið
í fangageymslur lögreglunnar
af þessum sökum tók sig til og
kveikti í teppum í fangaklefa
sínum, en honum hafði tekist
að leyna inná sér kveikjara.
Talsveröur reykur hafði
myndast í klefanum þegar þetta
uppgötvaðist og var fanginn
fluttur á Sjúkrahúsið á Akur-
eyri. Talið var aö hann hefði
hlotið einhverja reykeitrun.
Síðdegis á fimmtudag var
slökkviliðið á Akurcyri kallað
út vegna reyks í fjölbýlishúsi við
Skarðshlíð. íbúar í húsinu
höfðu orðið varir við reyk sem
lagði frá einni íbúð hússins.
Einn íbúi bjó í íbúðinni og
hafði hann sofnað út frá pönnu
á eldavél. Nokkur reykur var í
íbúðinni en eftir læknisskoðun
varð það úr að íbúinn yröi ekki
fluttur á sjúkrahús.
Lögreglan á Akurcyri sagði
nokkuð um aö fólk kveiki í ára-
mótaflugeldum fyrirfram og
hlutust t.d. nokkrar skemmdir
vegna „e!dverks“ sem kveikt
var í innanhúss í fyrradag. VG
Ljósavatnsskarð:
Rúta ók útaf
Stór rúta frá Sérleyfísbílum
Akureyrar lenti útaf veginum
viö Ljósavatn á fímmtudags-
kvöld. I rútunni voru 25 flug-
farþegar á leiö til Húsavíkur.
Enginn meiddist en töluverð-
ar tafir urðu, því veghefíl
þurfti til aö koma rútunni upp
á veginn á ný.
Áætlunarvélin frá Reykjavík
gat ekki lent vegna vinds á
Húsavíkurvelli á fimmtudags-
kvöld. Vélin lenti á Akureyri og
var farþegum ekið til Húsavík-
ur. Er rútan var við Ljósavatn á
hægri ferð, rétt innan við Kross,
kom vindsveipur og rann rútan
undan honum yfir veginn og
útaf. Mikil hálka var á veginum.
Flugfarþegarnir, sem ekiö var
frá Húsavík til Akureyrar,
komust ekki til Reykjavíkur um
kvöldið því fluginu var frestað
til gærmorguns, og gistu þeir á
Akureyri. IM
Næsta blað kemur út miðviku-
daginn 3. janúar. Auglýsendur
sem vilja koma auglýsingum í
það blað, eru bcðnir að skila
inn handritum fyrir kl. 11.00,
þriðjudaginn 2. janúar.