Dagur - 30.12.1989, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Laugardagur 30. desember 1989
Iitið um öxl • Iitið u m öxl • Iitið um öxl • Iitið
Þrennir tvíburar fæddust á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri í ágúst. Þeir fyrstu fæddust 17. ágúst, synir
Katrínar Úlfarsdóttur og Jóhanns Ólafs Halldórssonar, næstu 21. ágúst, dætur Sólveigar Yalgerðar Stefánsdótt-
ur og Jóns Péturs Líndals og 24. ágúst fæddust synir Kristínar Jónu Guðmundsdóttur og Gunnars Ævars Jóns-
sonar.
Gísli Jónsson, forstjóri Ferðaskrifstofu Akureyrar:
Samdráttur einkenndi
þokkalegt ferðaár 1989
Gísli Jónsson.
„Þetta hefur verið þokkalegt
ferðaár, það hefur vissulega
gætt samdráttar og á sumum
sviðum verulegs samdráttar,“
sagði Gísli Jónsson forstjóri
Ferðaskrifstofu Akureyrar um
árið sem er að líða og hvernig
það hefur komið út fyrir aðila
sem standa að ferðamálum.
Gísli sagði ástandið ekki eins á
öllum sviðum ferðaþjónust-
unnar því aukning varð t.d.
hvað snertir fjölda erlendra
ferðamanna sem landið sóttu
heim.
„Það varð verulegur samdrátt-
ur í ferðalögunt íslendinga til sól-
arlanda miðað við árið áður sem
reyndar var algert metár. Þá er
mér ofarlega í huga undirbúning-
ur einnar, jafnvel tveggja
erlendra ferðaskrifstofa á að
hefja beint leiguflug til Akureyr-
ar næsta sumar, en ef af því verð-
ur er það væntanlega stærsta
skrefið í ferðamálum sem er að
gerast á þessu svæði.“ Gísli segir
að ef af beina fluginu verður, sé
stefnt að a.m.k. níu ferðum beint
til Akureyrar næsta sumar. Þá sé
þetta mikil viðurkennig fyrir
Akureyri sem ferðamannabæ.
„Við erum auðvitað mjög ánægð-
ir með að þetta skuii vera hægt og
vonum auðvitað að þetta sé
fyrsta skrefið í átt að reglu-
bundnu áætlunarflugi til útlanda
frá Akureyri."
Af persónulegum atburðum
segir Gísli að opnun Hótels
Norðurlands á skömmum tíma
verði vafalítið efst í hans huga
síðar meir þegar litið verður til
baka. „Af öðrum fréttnæmum
viðburðum eru atburðirnir í
Austur-Evrópu ofarlega í huga,
ekki síst það sem hefur verið að
gerast í Rúmeníu síðustu daga.
Fréttir af þessum atburðum hafa
að vísu verið nokkuð óljósar og
menn gera sér ekki fyllilega grein
fyrir hvað er að gerast þó flestir
viti að þarna er eitthvað stórkost-
legt á ferðinni.“ VG
Trausti Þorsteinsson, fræðslustjóri
Norðurlandsumdæmis eystra:
„Verkfall kennara
í vor minnisstætt“
„Það sem haft hefur mest áhrif
og menn muna mest eftir úr
þessum fræðslugeira eru kenn-
araverkföllin sem áttu sér stað
síðastliðið vor. Þau komu illa
niður á framhaldsskólunum en
höfðu minni áhrif á grunnskól-
ann þar sem færri kennarar
voru í verkfalli. í grunnskólan-
um höfðu þessar aðgerðir þó
nokkur áhrif þar sem ekki voru
haldin samræmd próf á árinu,“
segir Trausti Þorsteinsson,
fræðslustjóri Norðurlands-
umdæmis eystra um árið 1989
sem senn er liðið.
„Sjálfsagt eiga skólarnir eftir
að bíta úr nálinni með þessar
aðgerðir einhver næstu árin. Ég
held að þetta muni hafa áhrif
lengur en rétt þá stund sem þetta
stóð. Þetta hafði „mórölsk" áhrif
á skólastarfið í heild og störf
kennara. Það má segja að friður
hafi komist á með nýjum samn-
ingum en þó er stór hópur
nemenda og foreldra sem er
óánægður með stöðu kennarans í
þessu vegna þess að þetta hafði
áhrif á skólagöngu mjög margra.
Ég óttast að þetta hafi kostað að
margir misstu mjög trú á skóla-
kerfinu," segir Trausti.
Hann segir að þegar litið sé um
öxl til þessa árs sem senn líður í
aldanna skaut standi upp úr að
betur gekk á árinu að ráða rétt-
indafólk til starfa í skólakerfinu
en oft áður. „Auk þess hafa ýms-
ir nýir þættir komið inn í skóla-
starfið sem menn hafa barist fyrir
lengi. Þar á ég við nýja þætti s.s.
árganga- og fagstjórn, leiðsögn
með nýliðum og þróunarsjóð
Trausti Þorsteinsson.
grunnskóla, sem í ár var í fyrsta
skipti veitt úr. Að mínu mati eru
hér á ferðinni merkilegir nýir
þættir sem maður bindur miklar
vonir við að skili árangri í skóla-
starfi.“
Ekki verða atburðir árins 1989
á sviði skólamála reifaðir án þess
að vikið sé að Háskólanum á
Akureyri og segir Trausti það
einhver ánægjulegustu tíðindi
fyrir Norðlendinga á árinu þegar
ljóst var að kennsla yrði hafin á
sjávarútvegsbraut skólans strax í
upphafi næsta árs. „Þessi barátta
virðist vera að skila árangri og
það er ekki ómerkur áfangi í
íslenskri skólasögu. Ég held að
það sé ekkert launungarmál að
það hefur verið þungt að koma
þessu máli áfram og margir hafa
reynt að koma í veg fyrir að þessi
braut mætti hefja störf,“ segir
Trausti Þorsteinsson. JÓH
Sigurður Símonarson, bæjarstjóri á Egilsstöðum:
Mikil gróska í menningarlífi
á Austurlandi
Sigurður Símonarson.
„Ef ég lít fyrst á þetta svæði er
mér ofarlega í huga mikil
gróska í menningarlífi á þessu
ári. í vor fór hér fram mjög vel
heppnuð M-hátíð sem staðfesti
skemmtilega grun sem blund-
að hefur með mér, nefnilega
þann að menningarlíf á lands-
byggðinni sé mjög gott, en við
byggðum hátíðina að verulegu
leyti á þátttöku listamanna af
sagði Siguröur
bæjarstjóri á
Austurlandi,“
Símonarson
Egilsstöðum.
Af öðrum viðburðum nefndi
Sigurður móttöku 70 erlendra
gesta frá vinabæjum Egilsstaða í
júní og hafi sú móttaka frekar
aukið hróður bæjarbúa en hitt.
„Þá var mjög ánægjulegt að taka
í notkun og afhenda íbúðir fyrir
aldraða hér á Egilsstöðum. Þetta
er verkefni sem við höfum unnið
að undanfarin ár, en byggingar-
tíminn sjálfur var aðeins 14 mán-
uðir.“
Lögin um verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga telur Sigurður að
muni marka tímamót. „Þar er
verið að færa ábyrgð og fjármagn
meira til sveitarfélaganna og gera
tilraun til að hafa verkaskipting-
una enn frekar á hreinu. Að vísu
ber skugga á að það skuli hafa
þurft að breyta frumvarpinu á
síðustu stundu.“
Sigurður segist hafa fylgst vel
með því sem verið hefur að ger-
ast í Evrópu að undanförnu og
hafi viðburðirnir þar snert vel
flesta. „í sambandi við það er
ánægjulegt hvernig breytingarnar
hafa farið fram á flestum stöðum,
þó vissulega beri skugga á hvern-
ig þetta hefur borið að í Rúmeníu.
Stefnubreytingin í lýðræðisátt er
hins vegar til góða, þó ég óttist
helst að hlutirnir komi til með að
gerast of hratt og að fólkið sé
ekki félagslega tilbúið til að taka
breytingunum ef þær gerast of
hratt.“ VG
Frá verðlaunaafhendingu í smásagnasamkeppni Dags og MENOR. Frá
vinstri: Bragi V. Bergmann, ritsjóri Dags, Haukur Agústsson, formaður
MENOR, Tinna Thorlacius, unnusta Svavars Þórs Guðmundssonar,
Sigurður Ingólfsson og Sverrir Páll Erlendsson, formaður dómnefndar.