Dagur - 30.12.1989, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Laugardagur 30. desember 1989
Mmnisverðir atburðir...
Örn Friðriksson.
Sr. Örn Friðriksson,
Skútustöðum:
Lélegt sumar
til ljósmyndunar
„Athyglisverdast á árinu fínnst
mér vera þessi frelsisalda í
Austur-Evrópu,“ sagði sr. Örn
Friðriksson, Skútustöðum í
Mývatnsssveit. „Mér er minn-
isstætt að Ólafur Skúlason var
valinn biskup. Hann er mikill
ágætismaður og mikill vinur
minn.
Svo er mér minnisstætt að veð-
ur var yfirleitt ekki mjög
skemmtilegt. Á miðvikudag fyrir
páska vorum við 10-11 tíma á
leiðinni frá Akureyri til Húsavík-
ur, og mér fannst að slíkt ferða-
lag gæti reynst lífshættulegt, því
ég var ekki of vel búinn. Pessi
ferð var skelfileg lífsreynsla, bíl-
inn okkar lenti útaf veginum en
björgunarbíll kom og dró okkur
upp og nokkrar vélar hjálpuðu til
á leiðinni. Það sást varla út úr
augum vegna veðurs og ég gat
rétt séð í afturljós á bíl sem ók á
undan okkur í Kinninni. Síðan
þetta var hef ég oft hugsað um að
Vegagerðin þyrfti að fara að gera
almennilegan veg yfir Fljóts-
heiði, það finnst mér eiginlega
meira aðkallandi verkefni en flest
önnur vegaverkefni sem ég veit
um.
Við eigum dóttur sem er gift og
býr í Þýskalandi. Hún og hennar
maður dvöldu hjá okkur í hálfan
annan mánuð í sumar og það er
okkur minnisstætt. Tengdasonur
minn hefur verið töluvert hér á
landi í sambandi við rannsóknar-
leiðangra frá þýskum háskóla.
Nú ætlaði hann að nota dvölina
til að ferðast til Vestfjarða, en
andstyggilegt veður kom í veg
fyrir þá ferð, eða að hann gæti
farið nokkuð annað sér til
ánægju.
í sumar fór ég í tveggja tíma
útsýnisflug með vini mínum,
m.a. yfir Mývatnssveit, Öskju og
Herðubreið, einn hinna fáu góð-
viðrisdaga í maí. Petta er mér
minnisstæð ferð, en ég er áhuga-
ljósmyndari. í júní og byrjun júlí
voru miklir þurrkar og gróður
grár og litlaus, en síðan endalaus-
ar rigningar, svo þetta var lélegt
sumar fyrir ljósmyndara. Persónu-
lega er mér minnisstæður þáttur
sem sýndur var í Sjónvarpinu, en
í honum var spjallað við mig og
sýnt safn mitt af gömlum ljós-
myndavélum.“
Að lokum sagði sr. Örn:
„Annars er mér mjög minnisstætt
í síðari tíð, hvað ég er að verða
minnislaus.“ IM
Björn Jónasson.
Björn Jónasson, forseti
Bæjarstjórnar Siglufjarðar:
Atvinna var
þokkaleg þegar á
heíldma er litíð
„Mér er minnisstæðast stjórn-
leysið í þjóðfélaginu og hvern-
ig búið er að undistöðuatvinnu-
vegunum. Eg held að það sé
flestum minnisstæðast frá
þessu ári. Einnig gjaldþrot
fyrirtækja og einstaklinga. En
það eru margir hlutir jákvæðir
líka. Atvinna var þokkaleg
þegar á heildina er litið hérna á
Siglufírði og ég held að fólki
hafí liðið vel.
Veðrið var ágætt en þó komu
svona hryðjur inn á milli, er það
ekki alltaf svoleiðis? Það er
aðeins snjóföl hjá okkur núna
þannig að manni bregður við að
sjá þessar snjómyndir frá Akur-
eyri og Reykjavík. Petta hefur nú
oftast verið öfugt, en ætli þetta sé
ekki að snúast við eins og svo
margt í þessu þjóðfélagi.
Næsta ár leggst alls ekkert illa í
okkur, við eigum alveg þokkaleg-
an kvóta. Það veltur allt á því
hvað kemur upp úr sjónum,
þannig að það leggst ekki verr í
okkur umfram aðra landsmenn.
Við erum bjartsýnir hérna á
Siglufirði ef okkur tekst að vinna
saman að því að byggja bæinn
upp.“
Þorlákur Sigurðsson.
Porlákur Sigurðsson,
oddviti í Grímsey:
Fjárveiting til
haftiarinnar og
feijukaupa
„Ég vil fyrst nefna fjárveitingu
til hafnarframkvæmda í
Grímsey á næsta ári svo og
heimild til kaupa á ferju.
Bygging sundlaugarinnar var
mikið gleðiefni. Ekki má ég
heldur gleyma lengingu flug-
brautarinnar og öllu grjótnám-
inu sem fylgir þeim fram-
kvæmdum. Þetta eru stórir
atburðir fyrir okkur. Þá kom 9
tonna bátur til Grímseyjar í
haust og kannski verður annar
keyptur. Þetta gerir sjósókn-
ina öruggari,“ sagði Þorlákur
Sigurðsson, oddviti í Grímsey.
„Það eru gleðitíðindi fyrir okk-
ur eins og aðra hve miklar breyt-
ingar hafa orðið í Austur-Evr-
ópu, en vissulega hörmulegt að
þetta skuli þurfa að gerast með
mannfórnum í Rúmeníu," sagði
Þorlákur aðspurður um erlend
tíðindi.
Meðal minnisverðra atburða í
íslensku þjóðlífi vildi Þorlákur
nefna göngin í Ólafsfjarðarmúla.
„Það eru góð tíðindi fyrir
norðanmenn og dreifbýlisfólk að
framkvæmdir við göngin skuli
ganga svona vel. Ég vona bara að
næst verði farið í Vestfirðina og
Austfirðina til að gera lífið bæri-
legra fyrir íbúana þar. Þetta er
það sem koma skal.
Ég tel það skref í rétta átt að
bankar og tryggingarfélög skuli
slá sér saman. Þetta er sparnaður
í húsakynnum og mannahaldi."
Að lokum nefndi oddvitinn að
tvö börn hefðu fæðst í Grímsey
sl. vor og sagði hann það jákvæða
þróun því eyjan væri vel fallin til
búsetu. SS
Bjarni Aðalgeirsson.
Bjarni Aðalgeirsson,
útgerðarmaður á Húsavík:
Sviptingar í
efnahagslífinu
„Af erlendum vettvangi koma
mér fyrst í hug hin miklu
umskipti sem orðið hafa í
Austur-Evrópu, og þá einkum
hvað breytingin hefur orðið á
skömmum tíma. Þessi breyt-
ing, úr viðjum kommúnism-
ans, til frjálsari og Iýðræðis-
legri stjórnarhátta, á örugglega
eftir að hafa mikil áhrif í lífi
þessara þjóða. Þá verður að
ætla að þetta leiði til mun nán-
ari samvinnu Austur-Evrópu-
þjóða við aðrar Evrópuþjóðir,
þannig að ætla má að hugtakið
sameinuð Evrópa verði víð-
tækara en annars hefði orðið,“
sagði Bjarni Aðalgeirsson,
útgerðarmaður á Húsavík.
„Af innlendum vettvangi kem-
ur helst í hugann sviptingar í
efnahagslífinu, fjárhagserfiðleik-
ar og vaxandi fjöldi gjaldþrota,
bæði fyrirtækja og einstaklinga.
Þetta er að sjálfsögðu afleiðing af
samdrætti í framleiðslu og allt of
háum fjármagnskostnaði. Ef
heldur fram sem horfir verður
um enn meiri tilflutning á fólki að
ræða en verið hefur hingað til.
Hinar veikari byggðir standa
þetta ástand ekki af sér mikið
Iengur, fyrirtækin gefast upp og
fólkið flýr óvissuna og fer til
þeirra staða þar sem fjölbreytni
og stöðugleiki er meiri.
Þátt fyrir ýmsa erfiðleika eru
alltaf góðir og jákvæðir hlutir að
gerast. Ég tel að hin mikla vakn-
ing sem varð á þessu ári hér á
Húsavík, fyrir gróðurvernd og
uppgræðslu lands, sé mjög jákvætt
mál. Hafist var handa um að
girða bæjarlandið og gróðursetn-
ingu á trjáplöntum, og í framtíð-
inni verður haldið áfram gróður-
setningu og ræktun bæjarlands-
ins. Hér er um mikið og merki-
legt mál að ræða sem mun gera
Húsavík að enn betri bæ.
Fyrir mig persónulega var árið
sem nú er að líða allgott ár, ef frá
er talinn aflabrestur loðnuveið-
anna í haust. Ég hef, ásamt öðr-
um störfum, sýslað við eigin
útgerð sl. þrettán ár og það er
ávallt eitthvað sem kemur á óvart
í slíkum rekstri, eitthvað sem erf-
itt er að spá fyrir um, og þannig
var það einnig með loðnuveið-
arnar nú.“ IM
Margrét Bóasdóttir.
Margrét Bóasdóttir,
söngkona, Grenjaðarstað:
Þetta var múr
á milli fólks
„Það er þrennt sem mér er
hugstæðast af heimsviðburð-
unum. Fyrst eru það atburð-
irnir í Kína í vor og hryggð yfir
hvernig fór. Síðan er það jafn-
mikil gleði yfír 9. nóv. þegar
hliðin á landamærum Austur-
og Vestur-Þýskalands voru
opnuð. Þetta var múr á milli
fólks, sem hindraði mannleg
samskipti, og það snertir mig á
annan hátt en erfiðleikar í
efnahagslífí gera.
Núna um jólin finn ég bæði fyr-
ir von og ótta vegna ástandsins í
Rúmeníu. Við eigum nána vini í
Rúmeníu og gerum okkur grein
fyrir hvað heimurinn er í raun
lítill, þegar eitthvað bjátar á þar
sem við þekkjum vel til,“ sagði
Margrét Bóasdóttir, söngkona,
Grenjaðarstað í Aðaldal. Þess
má geta að Margrét og maður
hennar hafa búið í Þýskalandi í
átta ár, þau hafa komið að múrn-
um og ferðast um Austur-Þýska-
land.
„í sambandi við tónlistina hér
heima rís hæst að ég söng með
Kammersveit Akureyrar 1. des.
Exultate Jubilate eftir Mozart, en
það er eitt af frægustu verkunum
fyrir sólósópran. Þetta er verk
sem mig hefur alltaf langað til að
takast á við og sú glíma varð mér
mjög lærdómsrík og ánægjuleg.
Ég vil nefna heimsókn Islensku
óperunnar að Ýdölum í október.
Hún var dæmi um það sem hægt
er að gera þegar allir leggja
saman.
Síðast, en ekki síst er ég þakklát
fyrir að ég og mínir nánustu skul-
um vera heilbrigð og hress. Um
áramótin í fyrra gerði ég það að
nýjársloforði að ég ætlaði í
sumarfrí og ég er að hugsa um að
reyna þetta aftur, því þetta tókst
ekki hjá mér. Nú ætla ég að láta
það takast.“ IM
Valgerður Sverrisdóttir.
Valgerður Sverrisdóttir,
alþingismaður, Lómatjörn:
„Eftinrnnnilegast
þegar við hjónin
eignuðumst þriðju
dótturina“
„Hvað snertir mig persónulega
er merkasti atburðurinn að við
hjónin eignuðumst þriðju dótt-
urina, heilbrigða og yndislega
á árinu. Þetta er dásamleg
upplifun, ekki síst þegar mað-
ur er orðinn þetta fullorðinn.
Ef leyfíst að vera með áróður í
áramótaspjalli vil ég koma því
til fólks að það fjölgi
mannkyninu, eða „rækti þjóð-
ina,“ eins og einn aldraður vin-
ur minn komst að orði í jóla-
korti til mín.
Mér eru ofarlega í huga, þegar
litið er út fyrir veggi heimilisins,
atburðirnir í Austur-Evrópu,
einkum Rúmeníu. Ótrúlegt er að
þetta sé að gerast svona nálægt
okkur, og dapurlegt að byltingin
skuli þurfa að kosta svo mörg
mannslíf óbreyttra borgara.
Á þessu ári upplifði ég það í
fyrsta skipti að fara austur fyrir
jarntjaldið, þegar ég fór ásamt
öðrum þingmönnum á ráðstefnu
um umhverfismál í Moskvu.
Þetta var ógleymanleg ferð, mér
var mikið áfall að sjá hversu allt
var frumstætt og í niðurníðslu
þar í borg, og gjörólíkt því sem
við lánsamir Vestur-Evrópubúar
eigum við að búa. Mér leið þann-
ig þegar ég steig aftur fæti vestan-
megin að það sem við værum að
tala um sem vandamál væri lítil-
ræði miðað við þessi ósköp. Þó
ber þess að geta að mjög vel var
tekið á móti okkur eystra af
hendi stjórnvalda.
Af innlendum atburðum vil ég
nefna að mjög vel hefur tekist að
bæta stöðu undirstöðuatvinnu-
greinanna, bæði gegnum sjóða-
kerfið og með því að lækka raun-
gengi og raunvexti. í þinginu var
veturinn frekar leiðinlegur, fyrst
og frCmst vegna þess hversu
Sjálfstæðismenn voru ómálefna-
legir í stjórnarandstöðu.
Mér eru einnig minnisstæð þau
mörgu umferðarslys sem urðu á
árinu. Hörmulegt er til þess að
vita að tfu manns a.m.k. hafa far-
ist í umferðinni á Norðurlandi
eysta sl. ár.
Varðandi næsta ár er megin-
málið að takist að semja á
skynsamlegum nótum milli aðila
á almennum vinnumarkaði. Von
mín er sú að þjóðin komist út úr
þessu samdráttarskeiði síðari
hluta næsta árs, sem von er um ef
marka má spá Þjóðhagsstofnunar
og annarra sem um það fjalla. Þá
má ekki gleyma því að á næsta ári
eru sveitarstjórnarkosningar,“
segir Valgerður Sverrisdóttir,
alþingismaður Framsóknar-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra.“ EHB