Dagur - 30.12.1989, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 30. desember 1989
Guðmundur Bjamason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra:
„Iit bjartsýnn tU framtíðar
þrátt fvrir tímabundna erfiðleika“
Guðmundur Bjarnason, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra.
„Það sem mér fínnst hafa ein-
kennt þetta ár öðru fremur er
samdrátturinn í þjóðfélaginu,“
sagði Guðmundur Bjarnason,
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra og 1. þingmaður
Norðurlandskjördæmis eystra,
er hann var beðinn að líta um
öxl og fram á veginn, eins og
tíðkast gjarnan um áramót.
„Þjóðartekjur hafa minnkað
og það hefur auðvitað haft mjög
mikil áhrif út um þjóðfélagið allt.
Áhrifanna gætir fyrst í undir-
stöðuatvinnugreinunum en í ár
hafa þau komið sterklega fram í
þjónustugreinunum. Af þeim
sökum hefur mjög dregið úr
þenslu, t.d. á höfuðborgarsvæð-
inu, og var vissulega ekki vanþörf
á. Samdráttareinkennin eru einnig
mjög áberandi víðar eins og t.d.
á Akureyri, þar sem þjónustu-
starfsemi hefur verið mjög öflug.
Umskiptin hafa verið of mikil á
skömmum tíma og segja má að í
þessu eins og öðru sé hinn gullni
meðalvegur vandrataður. Það er
auðvitað mjög slæmt þegar sam-
dráttur þjóðartekna verður svo
mikill að hann leiði til stórfellds
atvinnuleysis. Við þessa erfið-
leika hafa stjórnvöld verið að
glíma á árinu og reynt að mæta.
Ég vil leyfa mér að fullyrða að
okkur hafi miðað vel áfram og
tekist að treysta rekstrargrund-
völl þeirra fyrirtækja sem hafa
verið máttarstólpar í atvinnulíf-
inu. Hins vegar eru mörg vanda-
mál óleyst enn og verkefnin sem
bíða á nýja árinu mörg og erfið.
Svo ég víki aðeins að þeim
málaflokki sem ég er í forsvari
fyrir, heilbrigðis- og trygginga-
málunum, þá hafa þau ekki farið
varhluta af samdrættinum í þjóð-
félaginu. Reynt hefur verið að
gæta fyllsta aðhalds í útgjöldum
ríkisins og hefur það bitnað mjög
á heilbrigðisþjónustunni á þessu
ári. Stjórnendur og starfsfólk
heilbrigðisþjónustunnar hafa
þurft að takast þar á við mjög
vandasöm verkefni, því þetta er
sú þjónusta sem einna erfiðast er
að draga saman. En við verðum
að sníða okkur stakk eftir vexti
og því var niðurskurður þarna
eins og annars staðar óhjákvæmi-
legur. Mér finnst að starfsfólk og
stjórnendur í heilbrigðisþjónust-
unni hafi brugðist vel við og vil
nota tækifærið og þakka þeim gott
samstarf á árinu sem er að líða.
Þrátt fyrir tímabundna erfið-
leika verðum við íslendingar að
gæta okkar á því að tala ekki ein-
göngu í neikvæðum tón um
ástandið í þjóðarbúskapnum.
Staðan hefur lagast og er t.d.
betri í útflutningsgreinunum nú
en á sama tíma í fyrra. Við horf-
um þó enn fram á það að þurfa
að draga úr sjávarafla auk þess
sem fyrri hluti loðnuvertíðar hef-
ur brugðist. Þess vegna er ljóst að
áfram verða erfiðleikar í sjávar-
útveginum og vegna einhæfni
okkar efnahagskerfis hefur það
auðvitað áhrif á alla þætti þjóð-
lífsins. Okkar bíður jafnframt að
leysa vanda nokkurra byggðar-
laga, sem þrátt fyrir aðgerðir
ríkisstjórnarinnar á yfirstandandi
ári, er mikill. Þetta á t.d. við í
mínu kjördæmi svo sem í Norð-
ur-Þingeyjarsýslu, en þar hafa
verið miklir erfiðleikar í atvinnu-
lífinu eins og flestum er kunnugt.
Það verður auðvitað að leita allra
leiða til að aðstoða íbúa þessara
byggðarlaga við að komast út úr
vandanum. Sú skylda hvílir enn á
stjórnvöldum.
Þrátt fyrir tímabundna erfið-
leika lít ég bjartsýnn til framtíð-
ar. íslenska þjóðin hefur oft áður
þurft að takast á við erfið verk-
efni og leyst þau farsællega af
hendi. Ef við erum samtaka um
það að reyna sníða okkur stakk
eftir vexti og eyða ekki um efni
fram á okkur að takast að komast
farsællega á sléttan sjó. Ef
samningar á vinnumarkaði verða
hóflegir, eins og horfur eru á nú,
óttast ég ekki framvindu efna-
hagsmála á nýja árinu. Sú skylda
hvílir á herðum stjórnvalda að
beita öllum þeim aðferðum sem
þau eiga tiltæk til að veita slíkum
samningum brautargengi. Þar á
ég sérstaklega við aðhald í verð-
lagsmálum og enn frekari lækkun
fjármagnskostnaðar.
Ég treysti því að þjóðin nái
samstöðu um að vinna sig út úr
erfiðleikunum. Það er engin vá
fyrir dyrum þótt við getum ekki
stöðugt haldið áfram að þenja út
velferðarkerfið. Þótt við þurfum
að rifa seglin um sinn, eigum við
alla möguleika á að búa okkur
enn betra þjóðfélag en það sem
við nú búum í. Að því skulum við
stefna, öll sem eitt á árinu 1990.
Ég vil svo að lokum óska Norð-
lendingum og landsmönnum öll-
um gleðilegs árs, með ósk um
það megi færa þeim farsæld og
hamingju í ríkum mæli.“
VINNUMALASAMBAND SAMVINNUFELAGANNA
SAMBANDSHÚSINU KIRKJUSANDI 105 REYKJAVÍK SÍMI 686855