Dagur - 30.12.1989, Síða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 30. desember 1989
titið um öxl • Litið um öxl • Iitið um öxl • Iitið um
í ágúst fóru þrír enskir ofurhugar niður Skjálfandafljót á kajökum. Ekki er vitað til að menn hafi áður farið nið-
ur fljótið á slíkum fleytum.
Snæbjörn Jónasson, vegamálastjóri:
„Þijú einkeimi á árinu 1989“
kvæmdinni er mikill vatnsflaum-
ur inni í fjallinu sem reyndar fer
nú minnkandi með hverri vik-
unni. „Ég hygg að menn horfi nú
þegar svo mikið til jarðganga-
gerðar að ekki þurfi þetta verk til
að menn horfi meira til gerðar
jarðganga á íslandi í framtíðinni.
Nú þegar er ákveðið að byrja á
jarðgöngum á Vestfjörðum og í
undirbúningi er að gera göng á
Austfjörðum, þannig að þetta er
komið á fullt. Við getum sagt að
framkvæmdin í Ólafsfjarðarmúla
dragi kjarkinn ekki úr mönnum,“
segir Snæbjörn. JÓH
Skagstrendingar fögnuðu 50 ára afmæli Höfðahrepps með veglegum
hátíðarhöldum í lok júlí. Hér fer lögreglan fyrir skrúðgöngunni.
Hreiðar Karlsson, kaupfélagsstjóri KÞ:
„Verulegur árangur sést
„Þegar horft er til baka við
áramót, verða mér efst í huga
þær aðgerðir, sem stjórnendur
og starfsmenn KÞ hafa staðið í
á árinu, í þeim tilgangi að
koma rekstri félagsins aftur á
viðunandi grundvöll. Þessar
harkalegu aðgerðir, niður-
skurður, uppstokkun og
endurskipulagning, voru nauð-
synlegar, en umdeildar og sárs-
aukafullar engu að síður,“
sagði Hreiðar Karlsson, kaup-
félagsstjóri Kaupfélags Þing-
eyinga á Húsavík.
„Vissulega verður enn að sýna
fyllstu gát í rekstrinum og margt
þarf að lagfæra betur. Nú í árslok
sést þó verulegur árangur af þess-
ari hagræðingu, og ég vil þakka
öllu því góða fólki, sem hefur
Iagt sig fram til að svo mætti
verðá.
Á erlendum vettvangi ber að
sjálfsögðu hæst hinar hröðu
breytingar í Austur-Evrópu í átt
til frelsis og mannúðar. Ég vona,
að sú þróun haldi áfram með við-
ráðanlegum hraða, því að koll-
steypa eða einhvers konar aftur-
hvarf. getur haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar,
Um komandi ár el ég enn þá
von, að okkur íslendingum takist
Ioks að laga okkur að aðstæðum,
eins og aðilar vinnumarkaðarins
virðast nú reyna að gera. Við
þurfum að kveða niður verðbólg-
una með því að hemja eyðslu
okkar innan þeirra marka, sem
tekjuöflunin setur. Ef það tekst,
getum við þolað ýmis áföll og
þurfum fáu að kvíða.“ IM
Hreiðar Karlsson.
Kristín Jónssdóttir, bankaútibússtjóri:
Bankasameinmg og Berlínarmúr
„Sameining þessara fjögurra
banka er mér efst í huga á
þessu augnabliki enda stendur
hún mér næst. Þetta ár er búið
að vera ár sameiningar og má
þar nefna tryggingarfélög,
ferðaskrifstofur og banka.
Þetta eru minnisstæðustu
atburðirnir á innlendum vett-
vangi,“ sagði Kristín Jónsdótt-
ir, útibússtjóri Alþýðubankans
á Akureyri.
Við höfðum samband við
Kristínu á síðasta starfsdegi
hennar í gamla bankanum og
vonlegt að sameiningin hafi verið
ofarlega í huga hennar. En hvað
með atburði úti í hinum stóra
heimi?
„Ég hélt ekki að ég ætti eftir að
upplifa fall Berlínarmúrsins eða
atburðina í Rúmeníu. Fólk hefur
risið upp og ég held að það verði
ekki séð fyrir endann á því hvaða
áhrif þetta kemur til með að hafa
á Evrópu. Ég á ekki von á stríði
eða öðrum ósköpum en þessi
vakning á eftir að hafa geysilega
miklar breytingar í för með sér í
Evrópu,“ sagði Kristín. SS
Kristín Jóndóttir.
„Þau eru hverju öðru lík þessi
ár en hafa þó öll sín sér-
einkenni. Árið 1989 hafði þrjú
séreinkenni; snjór var óvenju
mikill, gerð Múlaganga bar
höfuð og herðar yfir allar aðrar
framkvæmdir í vegamálum og í
þriðja lagi var einkennandi
hversu lítið var lagt af slitlagi á
árinu,“ segir Snæbjöm Jónas-
son, vegamálastjóri, aðspurð-
ur um árið 1989 hvað sam-
göngur á landi varðar.
„Snjómokstursreglur voru
rýmkaðar á árinu og það gerði að
verkum að snjómoksturskostnað-
ur var óvenju mikill og fjárveit-
ing til snjómoksturs á árinu upp-
urin þegar komið var fram á vor.
Mokstur það sem af er vetri er
því allur unninn fyrir aukafjár-
veitingu," segir Snæbjörn.
Leita þarf aftur til ársins 1983
til að finna ár sem minna var lagt
af bundnu slitlagi en á senn liðnu
ári. Lagt var á 152 km. sem er
helmingi minna en á því ári þeg-
ar lagt var mest af bundnu slitlagi.
„Múlaverkið tekur sinn toll af
heildarfénu til vegamála og því
var minna til skiptanna í önnur
verk. Skýringin á því að
minna var framkvæmt í vegamál-
Snæbjörn Jónasson.
um en áætlað var er einnig sú að
bensíngjald og þungaskattur
gengu ekki óskipt til vegagerðar
eins og gera átti heldur voru
teknar 6-700 milljónir og notaðar
í annað,“ segir Snæbjörn.
Stórátakið í vegamálum, jarð-
gangagerðin í Ólafsfjarðarmúla,
segir Snæbjörn að gengið hafi
betur en menn áttu von á. Eina
óvænta uppákoman í fram-
Gunnar Ragnars, framkvæmdastjóri ÚA:
Gunnar Ragnars, fram-
kvæmdastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa, segir að sér sé
efst í minni sú þrönga staða
sem takmarkaður fiskveiða-
kvóti hefur sett fyrirtækinu á
síðastliðnu ári.
„Þetta var fyrsta árið mitt í
þessari atvinnugrein, sjávar-
útveginum, enda þótt ég hafi
áður starfað í fyrirtæki sem er
nátengt fiskveiðum eðlis síns
vegna. Mér eru minnisstæðastar
frá árinu 1989 allar þær takmark-
anir sem í gildi hafa verið varð-
andi fiskveiðar og hafa einnig bitn-
að á vinnslunni.
Eitt af mínum fyrstu verkum
var að þurfa að grípa til þeirra
ráðstafana að loka vinnslu og
hætta veiðum í þrjár vikur til að
reyna að drýgja kvótann frameft-
ir árinu.
Einnig er mér minnisstætt að
mál fyrirtækisins hafa þó skipast
þannig að mönnum tókst að
halda togurunum úti til veiða og
vinnslunni alveg fram til jóla.
Það var meira en við reiknuðum
með að geta gert.
Sú staða er þó ekki góð að
horfa upp á að geta ekki nýtt
skipakost og vinnslu sem skyldi.
Sú nýting var þó betri þegar upp
var staðið en maður reiknaði
með lengst af.
Frá persónulegu sjónarmiði
var árið 1989 ár mikilla umskipta
fyrir mig sjálfan. Árið markaði
tímamót fyrir mig, að skipta um
starf eftir svo langan tíma hjá
Slippstöðinni hf. Þá voru það
ekki minni umskipti að láta af
störfum í Bæjarstjórn Akureyrar
eftir átta ára setu þar. Þetta voru
allt mikil persónuleg umskipti,
þau verða því minnisstæð," segir
Gunnar Ragnars. EHB
| Gunnar Ragnars.
DAGUR
Sauðárkróki
0 95-35960
Norðlenskt dagblað