Dagur - 30.12.1989, Blaðsíða 3
Laugardagur 30. desember 1989 - DAGUR - 3
Litið um öxl • Litið um öxl • litið um öxl • Iitið
Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri FSA:
Niðurskurður, aðhald og
spamaður einkenndi árið
Halldór Jónsson.
„Þeir sem tcngjast rekstri
sjúkrahúsa, munu margir
minnast ársins 1989 vegna
niðurskurðar í fjárveitingum,
aðhalds og sparnaðar í rekstri,
samdráttar í starfsemi og lok-
ana sjúkrarúma. I upphafi árs
stóðu menn frammi fyrir því,
að áætluð fjárveiting til greiðslu
á launakostnaði hafði verið
skorin niður um 4%. Þetta var
svokallaður flatur niðurskurð-
ur og átti að gilda um alla sem
fá fjárveitingar til rekstrar frá
ríkinu,“ segir Halldór Jónsson
framkvæmdastjóri FSA um
liðið ár.
Halldór segir að mikillar
óánægju hafi gætt með þessa
framkvæmd og voru flestir sam-
mála um, að ekki væri réttlátt að
beita sama niðurskurði á alla sem
í hlut áttu. Þá hafi aðstæður verið
misjafnar og stofnanir misjafn-
lega í stakk búnar að mæta þess-
um niðurskurði.
„Ég tel þó að öll umræða um
hagræðingu og sparnað í rekstri
sé af hinu góða og jafnframt
nauðsynleg. Hún vekur okkur til
umhugsunar og umræðu um hvar
betur megi gera og hvernig við
getum þjónað hlutverki okkar á
hagkvæman og góðan hátt. Nú í
Iok ársins er ljóst, að mörgum
heilbrigðisstofnunum landsins
hefur tekist að aðlaga starfsem-
ina að breyttum aðstæðum og
hafa náð að lækka launakostnað
um 4%, í mörgum tilfellum held-
ur meira. Hefur það ekki verið
átakalaust og í sumum tilvikum
að einhverju leyti skert þjónustu
viðkomandi stofnana, en með
samstilltu átaki starfsmanna hef-
ur þetta tekist."
Varðandi framkvæmdir á heil-
brigðissviðinu sagði Halldór að
mörgum þættu þær eflaust ganga
hægt. Hins vegar væri ljóst að
ekki væri til nóg handa öllum og
kæmi það niður á framkvæmda-
hraða. „Á árinu voru gerðar
miklar breytingar á Hlíð og á
Húsavík var nýbygging gerð fok-
held en breytingar á Kristnesi
hafa gengið hægar fyrir sig. Þá
varð það ljóst að ný röntgendeild
yrði ekki opnuð á FSA eins og
ráð hafði verið fyrir gert, en við
stefnum að opnun fyrri hluta
Rannsóknarlögreglan á
Akureyri tekur við upplýs-
ingum allan sólarhringinn.
Sími 96-25784
Rannsóknarlögreglan á Akureyri
næsta árs,“ sagði Halldór.
Að lokum var Halldór spurður
um fyrirhugaða breytingu á
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga. Þar er gert ráð fyrir breyt-
ingum á stjórn sjúkrahúsa ásamt
fleiru og sagði hann að sýndist
sitt hverjum um ágæti þess sem í
nýja frumvarpinu er boðað. „Ég
Hjálparsveit skáta Akureyrí
held við látum umræður um
breytingarnar bíða nýs árs þar
sem frumvarpið var ekki afgreitt
fyrir jól eins og áform voru um.
Það er ljóst að mörg verkefni,
stór og smá bíða komandi árs og
að á liðnu ári skiptust á skin og
skúrir, en ég vona að nýtt ár
verði okkur öllum farsælt." VG
Það var oft þröng á þingi á tjaldstæðinu á Akureyri yfir háannatímann ■
júlí og byrjun ágúst. Ferðafólk flykktist til bæjarins í sumarblíðuna og
muna elstu menn ekki annað eins.