Dagur - 30.12.1989, Side 12
12 - DAGUR - Laugardagur 30. desember 1989
í kýrhausnum
— gamansögur, sannar og
uppdiktaðar
Andlátsfregn
Menn beita misjöfnum aðferðum
við að segja upp blöðum. Rudyard
Kipling las sér til mikillar undr-
unar í blaði nokkru áð hann væri
dáinn. Hann skrifaði ritstjóran-
um strax bréf á þessa leið:
„Ég er rétt að enda við að lesa
að ég sé dáinn. Viljið þér nú
gjöra svo vel að muna líka að
strika mig út af áskrifendalistan-
Klókur blaðamaður
Eitt sinn birti blaðið The World
viðtal við J. P. Morgan, banda-
rískan milljónamæring, um
fjármálaástandið í Bandaríkjun-
um. Þetta var eina blað landsins
sem hafði náð viðtali við hann og
ástæðan var þessi:
Morgan hataði blaðamenn og
neitaði að ræða við nokkurn
slíkan. Þegar biaðamaður frá
The World hafði þröngvað sér
inn á skrifstofuna til hans fékk
hann líka neitun.
„Ekkert ónæði! Þér vitið að ég
tala aldrei við blaðamenn.“
En blaðamaðurinn gerðist
samt svo djarfur að halda áfram
samtalinu.
„Hr. Morgan, en bandaríska
þjóðin á heimtingu á því að fá að
heyra álit yðar á ástandinu."
„Mér er djöfuls sama um
bandarísku þjóðina," þrumaði
Morgan.
„Þakka yður fyrir,“ sagði
blaðamaðurinn. „Þessi er þriggja
dálka.“
„Ha, hvað eigið þér við?“
„Já, nú er hægt að skrifa langa
frétt undir fyrirsögninni: Hugur
Morgans til þjóðarinnar á neyð-
arstundu. Hann segir: Mér er
djöfuls sama um bandarísku
þjóðina. Vill hann að ekkjur og
munaðarleysingjar svelti í hel?“
Morgan sá sitt óvænna og veitti
viðtalið.
Sagði einu sinni
sannleikann
P.N. Hansen var danskur pró-
fessor og yfirskurðlæknir. Þegar
hann lét af störfum fyrir aldurs
sakir tók blaðamaður viðtal við
hann og spurði:
„Hafið þér nokkurn tíma sagt
sjúklingi sannleikann?"
„Já,“ svaraði yfirlæknirinn.
„Ég sagði einu sinni við konu að
hún myndi ekki lifa lengur og síð-
an geng ég alltaf úr vegi fyrir
henni þegar ég sé hana á götu.“
Hann kunni sér ekki hóf
Peter Freuchen var danskur rit-
höfundur og Grænlandsfari. Eitt
sinn var hann í veislu og sat við
hliðina á mjög forvitinni konu.
Hún var síspyrjandi og einkum
var hún áfjáð í að vita hvers
vegna hann væri með tréfót.
Hvað hafði orðið af hinum upp-
haflega fæti? Höfðu hákarlar étið
hann?
„Nei svaraði Freuchen, „ég át
hann sjálfur".
„Guð minn góður! Hvað segið
þér?“
„Jú, ég var á Grænlandi og ég
og félagi minn höfðum grafið
okkur í fönn. Við vorum gjörsam-
lega matarlausir, garnirnar gaul-
uðu af sulti, og að lokum sá ég
engin ráð önnur en að éta af mér
annan fótinn.“
„En félagi yðar?“
„Ja, það fór nú illa fyrir
honum, vesalingnum. Hann varð
þarna eftir. Hann kunni sér
nefnilega ekki hóf og át sig gjör-
samlega allan.“
Þorstinn
Sunnudag nokkurn fór Carl
Gandrup, danskur rithöfundur, á
útikrá í Tívolí ásamt félaga
sínum, rithöfundinum Jörgen
Bast. Er þeir höfðu sest við eitt af
gömlu stráborðunum fór Gandrup
að róta ákaft í veski sínu.
„Hvern fjárann ertu nú að
rannsaka?“ spurði Bast.
„Ja,“ svaraði Gandrup, „ég er
nú bara að athuga hvað ég er
þyrstur."
Albert Einstein
Kvöld nokkurt þegar Einstein
var ennþá háskólakennari las
hann einkaritara sínum fyrir
prófspurningar fyrir morgundag-
inn.
„En, herra prófessor,“ sagði
stúlkan, sem hafði unnið hjá hon-
um í mörg ár. „Þetta eru
nákvæmlega sömu spurningarnar
og í prófinu í fyrra!“
„Það veit ég vel,“ svaraði hann
brosandi, „en ég hef breytt
svörunum.“ SS tók saman
Auglýsing
í Degi er
arðbær
auglýsing
dagblaðið á
landsbyggðinni
um.
VÖRUR í VIRÐISAUKASKATTI:
Samaverð
stundum lægra!
Nýmjólk, G-mjólk,
undanrennaog
léttmjólk lækka í
veröi vegna
endurgreiðslunnar.
Þessi lækkun áað
skila sérbeintí
vöruverðinu strax
eftir áramótin.
Neyslufiskur á að
lækka í verði.
Endurgreiðslan
miðast við ferskan
óunninn neyslufisk í
heildsölu.
Álagningin erfrjáls,
og er mikilvægt að
fisksalar og
neytendurtaki
höndum saman til
að skattalækkunin
skili sér í
vöruverðinu.
Tegundirnarsem
lækka eru: Ýsa,
þorskur, ufsi,
steinbítur, karfi,
langa, kella, lúða,
koli, skata,
skötuselur,
rauðmagi og
grásleppa.
Vöruverð á ekki að hækka þegar virðisaukaskattur leysir
söluskatt af hólmi nú um áramótin.
Vissar vörutegundir lækka verulega og almennt
vöruverð stendur í stað eða þokast niður á við.
Með virðisaukaskatti breytist skatthlutfallið úr 25% í 24,5%. Þá hverfa einnig
uppsöfnunaráhrif söluskatts í vöruverðinu því að virðisaukaskattur leggst aðeins
einu sinni á sömu vöruna, óháð fjölda framleiðslu- og viðskiptastiga. Vöruverð á
því alls ekki að hækka vegna kerfisbreytingarinnar. Þvert á móti ætti breytingin
að leiða til lækkunar á almennu vöruverði.
Vegna sérstakrar endurgreiðslu hefur skattbreytingin þau áhrif að neyslumjólk,
ferskfiskur, kindakjöt og ferskt innlent grænmeti bera ígildi 14% skatts í stað 24,5%
á öðrum vörum. Ef aðrir þættir, til dæmis álagningin, haldast óbreyttir geta
skattaumbæturnar haft í för með sér að þessi matvæli lækka um allt að 7-9%
strax eftir áramótin.
yskffl
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
VIÐSKIPTARÁÐUNEYTIÐ
Kindakjöt i heilum
og hálfum skrokkum
lækkar i verði frá
afurðastöðvunum
nú strax eftir
áramótin vegna
endurgreiðslunnar.
Verðlækkunátil
dæmis
lambalærum,
lærissneiðum,
hrygg, kótilettumog
súpukjöti er háð
aðgæslu
kjötkaupmanna og
aðhaldi neytenda
því frjáls álagning er
á unninni kjötvöru.
Allt innlent
■ygrænmeti lækkar i
verði.tildæmis
kartöflur, sveppir,
baunaspírur,
gulrófurog
gulrætur. Álagning
er frjáls á þessari
matvöru. Þess
vegna er það ekki
síst komiðundir
árvekni neytenda og
aðgæslu
verslunarmanna að
endurgreiðslan skili
séraðfullu í
vöruverðinu.
_
FYLGJUMST MEÐ - VEITUM AÐHALD
Það er mikilvægt að almenningur veiti aðhald og beri saman verðlag fyrir og eftir
áramót. VERÐLAGSSTOFNUN fylgist með því af fremsta megni að
skattbreytingin um áramót leiði ekki til verðlagshækkunar, og að endurgreiðslan
skiii sér í lækkuðu verði þeirra innlendu matvæla sem hún tekurtil.
Ef þú verður var/vör við óeðlilegar verðhækkanir eftir áramótin, og ekki fást
fullnægjandi skýringar hjá kaupmanninum,
skaltu hafa samband við VERÐLAGSSTOFNUN. Hún kannar hvert tilvik og hefur
sérstakt eftirlit með verðlagsbreytingum.