Dagur - 30.12.1989, Blaðsíða 20
Akureyri, laugardagur 30. desember 1989
Lækkum matarreikninginn!
NETTÓ
Höfðahlíð 1
í gær var síðasti afgreiðsludagur Iðnaðar-, Verslunar-, Alþýðu- og Útvegsbanka. Þessar fjórar starfss'túlkur útibús
Iðnaðarbankans á Akureyri og annað starfsfólk bankanna fjögurra þjónar viðskiptavinum íslandsbanka frá og með
næstkomandi miðvikudegi. | Mynd: kl
Síðasti opnunardagur Iðnaðar-, Útvegs-, Alþýðu-,iog
Verslunarbanka í gær:
Lúðrasveit, kaffi og bakkelsi
við opnun íslandsbanka 3. ian.
í gær var síðasti opnunardagur
fjögurra viðskiptabanka, Iðn-
aðarbanka, Utvegsbanka,
Versiunarbanka og Alþýðu-
banka en um áramótin ganga
þeir í eina sæng undir merki
Islandsbanka hf. Fyrsti opnun-
ardagur hins nýja banka verð-
ur næstkomandi miðvikudag,
3. janúar. Þann dag verður
mikið um dýrðir í útibúum
bankans um ailt land, boðið
upp á lúðrasveitarleik, kaffi og
bakkelsi. Að sögn Guðjóns
Steindórssonar, útibússtjóra
Iðnaðarbankans á Akureyri,
verða komin upp Islands-
bankaskilti á öll útibú á fyrsta
opnunardegi og andi nýs sam-
einaðs banka mun svífa yfír
vötnum.
„Þessi breyting leggst mjög vel
í mig og ég hef trú á að bankinn
verði sterkur og láti að sér kveða
í framtíðinni,“ segir Guðjón.
Guðjón segir að nýr sameinað-
ur banki taki upp ýmsar merkar
nýjungar og megi stórt séð segja
að það besta hafi verið tekið frá
öllum bönkunum fjórum og sett í
eina sameiginlega skál íslands-
banka. Því séu bundnar vonir við
að vel takist til með starfsemi
nýja bankans. „Bankinn mun
fyrst og síðast leggja áherslu á
mjög góða þjónustu við viðskipta-
vini.“
Eins og fram hefur komið
verður skipan útibúa á Akureyri
fyrst um sinn óbreytt. íslands-
banki hf. mun því 3. janúar opna
útibú á fjórum stöðum í bænum,
Geislagötu 14, Hrísalundi 1,
Skipagötu 14 og Hafnarstræti
107. A Norðurlandi verða auk
þeirra þrjú útibú íslandsbanka,
að Húnabraut 13 á Blönduósi,
Aðalgötu 34 á Siglufirði og Garð-
arsbraut 26 á Húsavík.
Starfsfólk bankanna fjögurra
fer allt á launaskrá íslandsbanka
hf. um áramót. Guðjón segir að
starfsfólk hafi verið vel búið und-
ir breytingarnar um áramót með
miklu flæði upplýsinga, funda-
höldum og námskeiðum.
Að sögn Guðjóns verður
íslandsbanki hf. annar stærsti
bankinn á Akureyri með um 30
prósent hlutdeild I miðað við
innlán. Landsbankinn verður eft-
ir sem áður stærsjti viðskipta-
bankínn með um 50% hlutdeild og
Búnaðarbankinn með uin 20
prósent. I óþh
Bjarni Sæmundsson fer í loðnuleit 3. janúar:
Vona að loðnan sé
komin undan ísnum
- segir Jakob Jakobsson
Rannsóknarskipið Bjarni Sæ-
mundsson mun væntanlega láta
úr höfn í Rcykjavík þann 3.
janúar til Ioðnuleitar. Jakob
Jakobsson, forstjóri Haf-
rannsóknastofnunar, segist
fastlega gera ráð fyrir að skipið
fari austur fyrir land til að
kanna hversu austarlega loðn-
an er komin.
„Það er ekki frágengið hvert
skipið fer. Ég á von á að það-fari
á móti loðnugöngunni til að sjá
hversu austarlega hún er komin
og athugi hversu langt í vestur
gangan nær. Ég bind vonir við að
loðnan sé komin undan ísnum
fyrir vestan. Hún er venjulega á
austurleið á þessum árstíma,"
segir Jakob. óþh
TogararÚA:
Allir inni um áramót
- ekkert unnið fyrstu viku ársins í frystihúsinu
Togarar Útgerðarfélags Akur-
eyringa verða allir inni um ára-
mótin. Fyrstu togararnir fara í
veiðferð á miðnætti á nýárs-
dag, en vinna mun liggja niðri í
frystihúsinu fram til 8. janúar.
Að sögn Þorleifs Ananíasson-
ar, starfsmanns ÚA, fara Sólbak-
ur og Harðbakur fyrstir á veiðar.
Kaldbakur heldur til veiða 3.
janúar kl. 10.00, Sléttbakur fer
sama dag kl. 24.00. Hrímbakur
fer síðastur út, föstudaginn 5.
janúar kl. 10.00.
Svalbakur EA cr eini togarinn
sem ekki fer til veiða fljótlega
eftir áramótin, en skipið verður
Mannflöldi á Norðurlandi í árslok:
Mest fækkun hjá Siglfirð-
ingum en fjölgun á Dalvík
Svo virðist sem Siglfírðingum
hafí fækkað hlutfallslega um
2,7% á árinu sem er að líða ef
marka má bráðabirgðatölur
um mannfjölda frá Hagstofu
íslands síðan 1. desember sl.
Þessi fækkun er sú mesta í
þéttbýli á Norðulandi en
aðeins fækkaði í einum öðrum
þéttbýlisstað á Norðurlandi á
árinu, á Húsavík og nam fækk-
unin þar um 0,8%.
Á öðrum þéttbýlisstöðum á
Norðurlandi var mannfjölgun frá
0,1% upp í 1,7%. Mest varð fjölg-
unin á Dalvík. Þar fjölgaði íbú-
um um 24 eða 1,7%. Því næst
kemur Ólafsfjörður með 12 íbúa
fjölgun, hlutfallslega 1,1%. Tæp-
lega 0,9% fjölgun var á Akur-
eyri, 0,8% á Sauðárkróki, 0,3% í
Hvammstangahreppi og 0,1% á
Blönduósi en þar fjölgaði um
eina manneskju.
Mannfjöldi í stærstu þéttbýlis-
stöðum á Norðurlandi 1. des-
ember sl. samkvæmt bráða-
birgðatölum Hagstofunnar er því
þannig. Akureyringar eru flestir,
14.099 talsins. Næst koma Sauð-
krækingar, 2.497, Húsvíkingar
eru 2.478, Siglfirðngar 1.808,
Dalvíkingar 1.454, Ólafsfirðingar
1.191, Blönduósbúar 1.084 og í
Hvammstangahreppi búa 678
manns. VG
tekið í slipp hjá Slippstöðinni hf.
Reiknað er með að Sólbakur
EA muni landa afla sínum hjá
ÚA mánudaginn 8. eða þriðju-
daginn 9. janúar eftir stutta veiði-
ferð. EHB
Akureyri:
Mikið tjón af
völdum vatns-
elgs og gufu
Mikið tjón varð af völdum
vatns og gufu í húsi við Lund-
argötu 10 á Akureyri í gær-
morgun. Stofnkrani á hitaveitu-
inntaki sprakk með þeim
afleiðingum að vatn flæddi um
allan kjallara og mikla gufu
lagði um allt húsið. Tjón hafði
ekki verið metið í gær en Ijóst
er að það nemur hundruðum
þúsunda króna.
Enginn býr í húsinu sem stend-
ur en þar voru ýmsir hlutir í eigu
fjölskyldunnar sem á húsið. í
kjallara, þar sem var 30-40 senti-
metra vatnselgur þegar að var
komið, skemmdust m.a. mótor-
ar. Þá barst gufa um allt hús og
mun austurálman hafa orðið
hvað verst úti. Heimilistæki
skemmdust umtalsvert og það
sama má segja um hljómflutn-
ingstæki, hljómplötur og bækur.
óþh
Eigendur Samherja útnefndir menn ársins í atvinnulífinu á íslandi:
„Samherjamenn hafa staðið sig frábærlega vel“
- segir Helgi Magnússon, ritstjóri Frjálsrar verslunar
„Samherjamenn hafa staðið
sig frábærlega vel við upp-
bygg'ngu »g rekstur á sínu
fyrirtæki. Þeir hafa ekki verið
að nema í sex ár, byrjuðu
með tvær hendur tómar og
hafa á þessum tíma byggt upp
fyrirtæki sem flestir eru sam-
mála um að sé mjög öflugt og
til fyrirmyndar að öllu leyti
en fyrirtækið hefur frá upp-
hafí verið rekið með hagn-
aði,“ sagði Helgi Magnússon,
ritstjóri Frjálsrar verslunar í
gær en blaðið ásamt Stöð 2
hefur útnefnt eigendur Sam-
herja á Akureyri menn ársins
í atvinnulífínu á íslandi.
„Menn eru sérstaklega
ánægðir með að hafa valið fyrir-
tæki úr sjávarútvegi og allir eru
á einu máli um að eigendur
Samherja séu rnjög vel að þessu
komnir. Það er mest talað um
þá sem eiga í crfiðleikum með
reksturinn en minna um þá sem
standa sig vel og þessi tilnefnir.g
er einntitt til þess gerð að hvetja
til jákvæðari umræðu um þessi
mál og hvetja menn áfram í
rekstri fyrirtækja," sagði Helgi.
Eigendur Samherja þeir Þor-
steinn Vilheimsson, Þorsteinn
Már Baldvinsson og Kristján
Vilhelmsson tóku við viður-
kenningunni í hófi í Reykjavík í
fyrrakvöld. Fyrirtækið á nú 5
togara og á metárinu í umsvif-
um þess, árinu 1989, eru heild-
artekjurnar um 1100 milljónir
króna.
Ekki náðist í þá félaga í gær
en í niðurlagi viðtals í nýút-
komnu blaði Frjálsrar verslunar
segir Þorsteinn Már aö þakka
megi þessa viðurkcnningu far-
sælum rekstri skipanna, góðu
starfsfólki og farsælu samstarfi
eigenda. JÓH