Dagur - 06.03.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 6. mars 1990
45. tölublað
"""
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
Akureyri:
Stúlkaféllafhesti
Stúlka féll af hesti skammt
norðan við hesthúsahverfið á
Akureyri á sunnudag. Hún var
flutt á sjúkrahús en meiðsli
hennar reyndust minni en á
horfðist.
»
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri var helgin mjög róleg. Tveir
árekstrar urðu í bænum og einn
var tekinn fyrir meinta ölvun við
akstur. Þá fékk einn að gista
fangageymslu lögreglunnar. óþh
Álafoss:
Hjalteyrin EA-310, skip Samherja á Akureyri, er nú í
Slippstöðinni á Akureyri þar sem verið er að setja
nýja vinnslulínu í skipið. Að undanförnu hefur Hjalt-
eyrin verið á ísfiskveiðum en breyting á henni miðar
að því að gera hana út á frystingu. Myndir: KL
Ekki hefur verið ráðið enn í
störf hjá Alafossi við að bródera
peysur. Auglýst var eftir fólki í
janúar sl. og var mikil ásókn í
þessi verkefni, svo mikil að
tekin voru niður nöfn til að
velja úr.
Að sögn Ásu Gunnarsdóttur
hjá Álafossi er mesta salan í þess-
um peysum yfir sumartímann og
því þarf að vera búið að bródera
fyrir þann tfma. „Við vitum í
raun ekki enn hve margt fólk við
þurfum í bróderinguna. Sumir
vildu líka fá að prjóna og ég býst
við að eitthvað verði líka ráðið í
það. Núna erum við að bíða eftir
bandi til að prjóna flíkurnar og
undir lok mánaðarins ættu þær að
Búnaðarþing 1990 hófst í gær:
„Verðum að starfa í sátt við þjóðina“
- sagði Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda
Búnaðarþing Búnaðarfélags
íslands fyrir árið 1990 hófst í
Bændahöllinni í gærmorgun
með þingsetningu í Súlnasal.
Hjörtur E. Þórarinsson for-
maður Búnaðarfélagsins setti
þingið en meðal viðstaddra
voru forseti Islands Vigdís
Finnbogadóttir og Steingrímur
Hermannsson forsætisráð-
herra. Þingið stendur yflr í tíu
daga og verður fjöldi mála á
dagskrá sem varða stöðu land-
búnaðarins í dag.
Er Hjörtur hafði lokið máli
sínu og sett þingið tók til máls
Álfhildur Ólafsdóttir aðstoðar-
maður landbúnaðarráðherra en
ráðherra er staddur erlendis og
gat ekki verið viðstaddur. Álf-
hildur rakti gang mála í landbún-
aði s.l. ár og vék m.a. að sölu-
málum, framleiðslu, kjarasamn-
ingum og fleiru. Álfhildur hvatti
bændur til áframhaldandi baráttu
fyrir sínum málum og sagði að
sóknin væri ávallt besta vörnin.
Að loknu ávarpi Álfhildar hélt
Haukur Halldórsson formaður
Stéttarsambands bænda ræðu þar
sem hann velti fyrir sér stöðu
landbúnaðar í dag, jafnt erlend-
um sem innlendum. Það kom
fram í ræðu Hauks sem og hjá
Hirti og Álfhildi að álit almenn-
ings á innlendum landbúnaði
væri ekki í hávegum haft og
þyrfti jákvæðra breytinga við.
„Nauðsynlegt er að sú landbún-
aðarstefna sem fylgt er njóti
meirihlutafylgis með þjóðinni. Sé
svo ekki er hún dæmd til að mis-
takast. Við verðum að starfa í
sátt við þjóðina og við verðum að
starfa í sátt við umhverfið,“ sagði
Haukur m.a.
Eftir að Haukur hafði lokið
máli sínu var þingi haldið áfram í
Búnaðarþingssal. Þar flutti Jónas
Jónsson búnaðarmálastjóri
skýrslu sína um framgang mála
frá síðasta þingi. Eftir það hófust
nefndarstörf. Meðal málaflokka
þar verður rætt um skýrsluna
„Búfé á vegsvæðum" og það
nefndarálit sem fylgdi. Þá fjalla
nefndir um frumvörp til laga um
ábyrgðadeild fiskeldislána, inn-
flutning á dýrum og breytingar á
lögum um varnir gegn sjúkdóm-
um og meindýrum á plöntum. í
gær voru „aðeins“ átján mál á
dagskrá hjá nefndunum þannig
að þingfulltrúar hafa ærið nóg að
gera næstu daga í Bændahöllinni.
-bjb
vera tilbúnar fyrir bróderingu,"
sagði Ása.
Fjölmargar sveitakonur höfðu
samband við Álafoss vegna þess-
ara verkefna og segir Ása að ein-
mitt þeirra vegna þurfi peysurnar
að vera tímanlega til áður en vor-
verkin í sveitum hefjist fyrir
alvöru. JÓH
Reykjahverfi:
Slys á
snjósleða
Unglingsstúlka viðbeinsbrotn-
aði sl. laugardag er hún datt af
snjósleðaþotu á Skarðahálsi.
Lögregla og sjúkralið sóttu
stúlkuna og var hún flutt með
sjúkrabíl á Sjúkrahúsið á
Húsavík.
Lögregla sagði að mannlíf væri
rólegt á Húsavík um þessar
mundir, og aðalvinna löggæslu-
manna fólgin í því að aðstoða
vegfarendur í ófærð og hjálpa
fólki að komast leiðar sinnar. IM
Heildarloðnuveiðin:
Er að ná 600 þús. tonmun
Heildarloðnuveiðin er nu
komin í um 590 þúsund tonn á
vertíðinni og farið er því að
styttast í vertíðarlok. Á laugar-
daginn var engin veiði enda
vitlaust vcður á miðunum en í
gær og fyrradag tilkynntu skip-
in um 5500 tonn, hvorn dag.
Ekkert norðanskipanna hefur
tilkynnt um afla síðan fyrir helgi.
Á sunnudag fór Víkurbergið með
570 tonn til Þórshafnar og í gær
fór Hilmir með 1270 tonn til
Siglufjarðar. Á laugardaginn fór
Pétur Jónsson með 700 tonn til
Siglufjarðar en annað hefur ekki
borist til norðlensku verksmiðj-
anna síðan fyrir helgi.
Veiðisvæðið er nú suður af
svokölluðu Malarrifi, út af Snæ-
fellsnesi. Veiðisvæðið hefur ekk-
ert færst síðustu vikuna og voru á
þessum slóðum um 30 skip í gær-
morgun. JÓH
Bróderingar í biðstöðu
Vegheflar í vandræðum við snjóruðning:
Mikið um tjón á yfirgefiium bflum vegna ófærðariimar
- árekstrar í umferðinni óhemju margir
„Það hefur verið óhemju
mikið um árekstra í umferð-
inni upp á síðkastið og sömu-
leiðis mikið um tjón á kyrr-
stæðum yflrgefnum bíhim,“
sagði Brynjar Jónsson hjá
Vátryggingafélagi íslands hf.
á Akureyri, en að undan-
förnu hefur kyngt niður meiri
snjó í febrúarmánuði á
Norðurlandi en gert hefur í
áraraðir. Háir ruðningar eru
farnir að byrgja ökumönnum
sýn og snjóruðningstæki eiga
oft erfitt með að sjá og/eða
sneiða hjá bflum sem skildir
hafa verið eftir á akbrautum.
Snjóruðningstæki Akureyrar-
bæjar eru tryggð hjá VÍS og
segir Brynjar að til þessa hafi
tjón sem þau hafi valdið á yfir-
gefnum bílum verið greidd.
Aðspurður um hvort ekki skyti
skökku við að kenna heflunum
um tjón á bílum sem segja má
að sé lagt á miðri götu, sagði
Brynjar þetta umdeilt atriði en
um þetta gildi reglan um kyrr-
stæða bíla. „Þá hefur fjöldi
árekstra i umferðinni undan-
farnar þrjár vikur ekki verið
svona mikill síðan ég byrjaði í
þessu,“ sagði Brynjar. „Gatna-
mót víða eru mjög slæm vegna
skyggnis og margir árekstrar
verið við þau. Ástæðan er þó í
flestum tilfellum sú að öku-
menn aka ekki eftir aðstæðum."
„Við lendum allt of oft í
vandræðum vegna yfirgefinna
bíla sem erfitt er að komast
fram hjá á vcgheflunum," sagði
Valdimar Jónsson vegaeftirlits-
maður hjá Vegagerð ríkisins
þegar Dagur náði sambandi við
hann í Öxnadal í gær. Hann
sagði að í flestum tilfellum væri
bílunum læst og þvt ekki hægt
að koma þeim frá auk þess sem
þeir væru oft nær komnir á kaf í
fönn og þvf erfitt að sjá þá.
Eins og gefur að skilja tefja
yfirgefnir bílar mjög fyrir veg-
hefilsmönnum við störf sín.
„Það er allt of mikið um að fólk
fari af stað á smábílum jafnvel
þó því hafi verið sagt að allt
væri ófært. Slíku fólki er í raun
ekki viðbjargandi. Núna er t.d.
yfirgefinn bíll hér í Neðsta-
landshæðinni fyrir okkur og af
honum stafar líka slysahætta.
Við létum lögregluna vita og
fengum að vita að viðkomandi
ökumaður fékk þær upplýsingar
hjá lögreglu áður en hann lagði
af stað að allt væri ófært og
vitlaust veður.“ VG