Dagur - 06.03.1990, Qupperneq 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 6. mars 1990
Húsfriðunarsjóður
Akureyrar:
Umsóknir á
aimantugirm
Húsfriðunarsjóði Akureyrar
hafa borist á annan tug
umsókna um lán eða styrki.
Umsóknarfrestur rann út um
síðustu mánaðamót.
Ný reglugerð um Húsfriðunar-
sjóðinn var sett fyrir tveimur
árum, en menningarmálanefnd
annast stjórn hans. Ingólfur
Ármannsson, skóla- og menning-
arfulltrúi Akureyrarbæjar, segir
að hlutverk sjóðsins sé þríþætt;
að veita styrki eða lán til viðhalds
friðaðra húsa, lánveitingar til
bygginga sem hafa varðveislu-
gildi, og í þriðja lagi hefur stjórn
sjóðsins heimild til að úthluta
viðurkenningum til þeirra sem
hafa gert átak í húsfriðunarmál-
um.
Ingólfur upplýsti að í gegnum
húsfriðunarsjóð færu framlög
sem veitt væru til viðhalds húsa í
eigu bæjarfélagsins sem hefðu
varðveislugildi, bygginga á borð
við Samkomuhúsið og Matthías-
arhús.
Úthlutað er úr sjóðnum í
maímánuði, og tíminn þangað til
verður notaður til að leita álits
byggingafulltrúa og skipulags-
stjóra á umsóknum. „Þegar
gögnin hafa verið yfirfarin og
umsagnir gefnar um ástand bygg-
inga, varðveislugildi o.s.frv. fer
stjórn sjóðsins að fjalla um
umsóknirnar,“ segir Ingólfur
Ármansson. EHB
i
fréftir
h
Samningarnir undirritaðir. I neðri röð f.v. eru búsetarnir Halldór Bachmann, Brynja Skarphéöinsdóttir, Sigurður
Eiríksson og Hafdís Pétursdóttir og Heimir Ingimarsson, formaður Búseta á Akureyri. I efri röð eru stjórnar-
mennirnir Armann Helgason, Jónína Pálsdóttir, Guðný Gunnarsdóttir og Sveinn Brynjólfsson. Mynd: ss
Búseti á Akureyri:
Fyrstu íbúðunum úthlutað
Stjórn Búseta á Akureyri hef-
ur skrifað undir samninga við
fyrstu kaupendur búseturéttar
í kaupstaðnum. Hér er um að
ræða fjórar íbúðir sem Fjölnir
sf. er að byggja í Múlasíðu 9 og
er áætlað að íbúarnir geti flutt
inn í fullbúnar íbúðir um miðj-
an desember.
Húsnæðissamvinnufélagið
Búseti á Akureyri hefur tekið
mikinn kipp eftir að lán fengust
úr Byggingasjóði verkamanna
fyrir fjórum íbúðum í búseturétt-
arkerfinu. Félagið hefur sótt um
lán'til 20 íbúða á þessu ári og
sagðist Heimir Ingimarsson, for-
maður Búseta á Akureyri, búast
við að umsóknirnar yrðu
afgreiddar í þessum mánuði.
Yfir 100 félagar eru í Búseta á
Akureyri og er farið eftir númer-
um félagsmanna þegar þeim er
boðið að kaupa búseturétt.
Félagsmaður getur geymt réttinn
þótt röðin sé komin að honum og
raunar er staðreyndin sú að þeir
sem fengu fyrstu íbúðirnar á
Akureyri voru ekki númer 1-4
heldur mun aftar.
Nánar verður sagt frá þessum
tímamótum á húsnæðismarkað-
inum á Akureyri í blaðinu á mið-
vikudag. SS
Bæjarstjórnarkosningarnar á Akureyri:
Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur
ekki ennþá tilbúnir með lista
Framboðslistar Sjálfstæðis-
flokksins og Alþýðubandalags-
ins á Akureyri vegna bæjar-
stjórnarkosninganna í vor hafa
ekki enn litið dagsins Ijós, en
margir áttu von á að listar
þessara flokka myndu koma
fram fyrstu daga marsmánað-
ar.
Knútur Karlsson, formaður
stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðis-
félaganna á Akureyri og formað-
ur uppstillinganefndar, segir að
ákvörðun verði tekin um að
halda fulltrúaráðsfund í flokkn-
um á næstunni.
Fundur fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna vegna framboðs-
listans verður því haldinn nokk-
Hlutafélagið Alda í Eyjafirði:
Býður gestum og gangandi gist-
ingu í „Kröflu-húsum“ í sumar
Akveðið er að bjóða gestum
og gangandi upp á gistingu í
húsum í landi Melgerðis í Saur-
bæjarhreppi í sumar. Það er
hlutafélagið Alda hf. sem mun
bjóða upp á gistinguna, en að
því standa ýmsir áhugaaðilar í
hreppunum framan Akureyr-
ar.
Alda hf. keypti í fyrra nokkur
hús í Kröfluvirkjun og var unnið
að því í júlí í fyrra að koma þeim
upp í landi Melgerðis. Að sögn
Jónasar Vigfússonar í Litla-Dal,
eins talsmanna Öldu hf., verður
boðið upp á gistingu í átta
tveggja manna herbergjum. Búið
er að tengja rafmagn í húsin og
eftir er að „fínpússa" þau þannig
að unnt verði að taka móti gest-
um í sumar.
Alda hf. hefur haft með jörð-
ina Melgerði að gera frá árinu
1986. Unnið hefur verið að við-
gerð á íbúðarhúsinu og hesthús-
inu. Síðastliðin sumur var starf-
rækt hestaleiga á vegum Öldu hf.
í Melgerði og segir Jónas að
áframhald verði á henni. Þá hef-
ur einnig verið boðið upp á tjald-
aðstöðu.
Jónas segir að á síðustu árum
hafi golfmenn á Akureyri komið
fram á Melgerðismela á vorin o^
haustin og tekið nokkur skot.
Hann segir að ef framhald verði á
golfiðkun fremra komi vel til
greina að bjóða mönnum upp á
hressingu í íbúðarhúsinu. óþh
Kirkjuvika í Akureyrarkirkju:
Orgeltónleikar í kvöld
Kirkjuvika í Akureyrarkirkju
hófst á sunnudag með æsku-
lýðsguðsþjónustu en eftir hana
var safnaðarheimilið nýja sýnt
gestum. Mikill fjöldi fólks sótti
guðsþjónustuna, og urðu
margir að taka sæti á hliðar-
bekkjum.
í kvöld, 6. mars, verða orgel-
tónleikar í Akureyrarkirkju
klukkan 20.50, Hörður Áskels-
son, organleikari Hallgríms-
kirkju leikur. Á efnisskrá eru
verk eftir Dietrich Buxtehude
(1637-1707); Passacaglia í d-
moll, Praeludium í D-dúr og
sálmaforleikur (Sjá morgun-
stjarnan blikar blíð).
Pá eru eftirtalin verk á dagskrá
eftir J.S. Bach (1685-1750):
Praeludium og fuga í C-dúr,
sálmaforleikur (Faðir vor, sem á
himnum ert), og Passacaglia í c-
moll. EHB
uð seinna en menn ráðgerðu. í
lögum flokksins mun vera ákvæði
um að ekki megi boða til fundar
fulltrúaráðs nema með einnar
viku fyrirvara. Par sem slíkur
fundur hefur ekki enn verið boð-
aður virðist útséð um að D- list-
inn verður ekki tilbúinn og sam-
þykktur fyrr en um miðjan mars-
mánuð.
Hilmir Helgason, formaður
uppstillinganefndar Alþýðu-
bandalagsins á Akureyri, segir að
eitthvað hægar hafi gengið að
koma saman lista en menn gerðu
ráð fyrir í upphafi. Samkvæmt
fyrri áætlun átti uppstillinga-
nefndin að skila tillögu sinni til
félagsfundar í Alþýðubandalag-
inu um síðustu mánaðamót, en
það hefur ekki verið gert ennþá
og ekki búið að boða til fundar-
ins. „Ég get ekkert frekar sagt, í
vinnu við að stilla upp á lista er
hver dagur fljótur að líða. Allir
sem rætt er við þurfa að hugsa sig
um og ræða við sitt fólk,“ segir
hann.
Að sögn Hilmis verður fram-
boðslisti Alþýðubandalagsins
örugglega tilbúinn í þessum mán-
uði. EHB
Lödu/Benz-verkstæðið á Akureyri:
Iikur á sölu á næstuimi
„Jú, það er rétt að það kemur
vel til greina að verkstæðið
verði selt á næstunni,“ sagði
Jóhannes Kristjánsson, eig-
andi Bifreiðaverkstæðis Jó-
hannesar Kristjánssonar á Ak-
ureyri.
„Sá möguleiki kom upp fyrir
stuttu að ég seldi verkstæðið og
ég er búinn að fá tilboð í það.
Pað er hins vegar spurningin
hvort menn eigi peninga eða
ábyrgðir sem nægja,“ sagði Jó-
hannes.
Hann sagði að umfang verk-
stæðisins, sem hefur viðgerða- og
varahlutaþjónustu fyrir rúss-
nesku Lödu-bílanna og v-þýsku
Benz-bílanna, hefði vaxið mjög á
undanförnum árum og hann væri
vart nógu hraustur til að sinna
þessu öllu lengur. óþh
Akureyri:
■ Menntamálaráðuneytið
héfur farið þess á leit við
bæjarstjórn að hún tilnefni
einn fulltrúa í nefnd vcgna
endurnýjunar á samningi um
leikhússrekstur á Akureyri á
végum Leikfélags Akureyrar.
Bæjarráð leggur til að Val-
garður Baldvinsson bæjarritari
verði tilnefndur í nefndina.
■ Bæjarráð leggur til að orð-
ið verði við erindi frá stjórn
Kirkjugarða Akureyrar, þar
sem farið á leit við bæjarstjórn
að hún heimili hækkun á
kirkjugarðsgjöldum á árinu
1990 úr 1,5% í 3% áf aöstöðu-
gjöldum.
■ Bæjarráð hefur með hlið-
sjón af nýgerðum kjarasamn-
ingum og breyttum verðlags-
forsendum lagt til að óráð-
stöfuðum tekjuafgangi Vatns-
veitu Akureyrar verði varið til
þess að veita á þessu ári afslátt
af fasteignagjöldum íbúðar-
húsnæðis, sem ncmur 8.5%.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt erindi frá Agli H.
Bragasyni Lundargötu 10, þar
sem hann sækir um leyfi til að
rífa íbúðarhúsið nr. 10 við
Lundargötu, sem er ónýtt eftir
bruna.
■ Bygginganefnd hefur sam-
þykkt erindi frá Pórhöllu Pór-
hallsdóttur, þar sem hún f.h.
Hagkaups hf., sækir um leyfi
til að byggja við og stækka
verslunina Hagkaup Norður-
götu 62, samkvæmt teikning-
um eftir Harald V. Haralds-
son.
■ Bygg'nganetnd hefur sam-
þykkt að úthluta S.J.S. verk-
tökum lóðirnar nr. 5 og 9 við
Borgarsíðu, til að byggja á
eínbýlishús. Byggingarfrestur
er til 1. júlí 1990.
■ Samstarfsnefnd um ferli-
mál fatlaðra og byggingancfnd
hafa samþykkt að stefna að
sameiginlegri ráðstefnu um
ferlimál á Akureyri, laugar-
daginn 28. apríl n.k. og var
formönnum nefndanna ásamt
byggingafuUtrúa falið að gera
tillögur að dagskrá.
■ Æskulýðsráði hefur borist
bréf frá unglingaráði Hesta-
mannafélagsins Léttis, þar
sem óskað er viðræðna við
ráðið um stofnun og starf-
rækslu hesthúsaaðstöðu, þar
sem unglingar (14-17 ára)
gætu leigt bás fyrir hestinn
sinn, t.d. tvo vetur á meðan
þeir eru að „koma hesta-
mennsku sinni á fast plan.“
■ Félagsmálaráði hefur borist
bréf frá foreldrum barna á
Árholti, þar sem krafist er
þess að snarlega verði ráðnar
fóstrur á Árholt.
■ Félagsmálaráð úthlutaði
nýlega tveimur íbúðum í bæn-
um til leigu, 2ja og 3ja her-
bergja en umsækjendur um
þær voru 22.