Dagur - 06.03.1990, Side 3
Þriðjudagur 6. mars 1990 - DAGUR - 3
fréttir
í-
Bygging nýrrar íþróttahallar á íslandi vegna HM 1995:
Af hveiju ekki að byggja
íþróttahöll á Akureyri?
Síðustu dagar útsölunnar
bæjarráði sent bréf þar sem vakin er
Að undanförnu hefur verið
mikið fjallað í fjölmiðlum og
víðar um þann áhuga íslend-
inga að halda heimsmeistara-
keppnina í handknattlcik árið
1995. Til að slíkt sé mögulegt,
þarf að byggja íþróttamann-
virki sem tekur að minnsta
kosti 7000 áhorfendur, fyrir
úrslitaleik keppninnar. Ríkið
hefur gefið fyrirheit um að
kosta slíka byggingu og þá hafa
tvö sveitarfélög lýst áhuga á
því að byggja húsið með rík-
inu, þ.e. Kópavogur og Hafn-
arfjörður. En hvað með Akur-
eyri?
Þetta er spurning sem þeir
. Halldór Jóhannsson landslags-
arkitekt og Sveinn R. Brynjólfs-
son skipulagsarkitekt, velta m.a.
upp í bréfi til bæjarráðs Akureyr-
ar. Þar leggja þeir m.a. fram til-
lögu um að byggt verði hús á
Akureyri sem þjóni sem keppnis-
höll er heimsmeistarakeppnin í
handknattleik fer fram árið 1995.
Að keppninni lokinni verði húsið
mótað þannig að það bjóði upp á
frekari nýtingu jafnt fyrir ferða-
menn sem og íbúa svæðisins og
verði þannig veigamikill þáttur í
framtíðaruppbyggingu ferða-
þjónustu á svæðinu. Húsið getur
áfram þjónað sem æfinga- og
keppnishús fyrir íþróttir. Mark-
aðshald ýmis konar, sýningar og
ráðstefnur, verður eflaust raun-
hæfur kostur í framtíðinni, sér-
staklega með tilkomu millilanda-
flugvallar á Norð-Austurlandi;
segir ennfremur í bréfinu.
Einnig segir í bréfinu, að
samhliða byggingu hússins verði
unnið að annarri uppbyggingu
svo sem: byggingu hótela, orlofs-
íbúða og tjaldsvæðis, átaki í
umhverfis- og skipulagsmálum;
menntun og þjálfun starfsfólks í
ferðaþjónustu; markaðssetningu
svæðisins - Akureyri-Eyjafjörð-
ur-Norð-Austurland; samgöngur
bættar að og innan landshlutans
s.s. með heilsárs vegakerfi, milli-
landaflugvelli, o.fl.
Þeir Sveinn og Halldór hafa
ýmis svæði í huga, þar sem kjörið
væri að byggja slíkt mannvirki og
fleiri til. Má þar nefna Glerár-
svæðið, á svæði Sambandsverk-
smiðjanna, við Háskólann við
Þórunnarstræti og sunnan við
Nemendur safna í ferðasjóð:
Maraþonkennsla í Gagganum
Nemendur í 9. bekk E í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar sýndu
náminu óvenju mikinn áhuga
síðastliðinn föstudag, svo mik-
inn að þeir fengust ekki til að
hætta fyrr en liðið var á laugar-
dag. Þarna var um að ræða
maraþonkennslu í skólanum
sem stóð samfleytt frá kl. 14 á
föstudag til kl. 14 á laugardag.
Þetta sólarhringsnám nemenda
stafaði ekki eingöngu af brenn-
andi áhuga því það var liður í
fjáröflun 9. bekkjar. Safnað var
áheitum, ákveðin upphæð lögð á
hvern klukkutíma sem nemendur
þraukuðu, og ætlunarverkið
tókst því drjúgar upphæðir
söfnuðust í ferðasjóð. Allar
deildir 9. bekkjar tóku þátt í fjár-
öfluninni en það var 9.-E sem
lagði fram námskraftana. Kenn-
arar komu viða að.
„Þetta tókst mjög vel. Ég
kenndi frá kl. 6-8 á laugardags-
morgun og það var býsna erfiður
tími. Nemendur fengu að fara í
sund kl. 8 og hresstust þeir við
það, nema þeir sem voru of lengi
í heita pottinum,“ sagði Baldvin
Bjarnason, skólastjóri Gagn-
fræðaskóla Akureyrar.
Hefð er fyrir því að 9. bekkur
fari suður á land í ferðalag og
einnig til Vestmannaeyja og hef-
ur söfnun i ferðasjóð gengið
mjög vel. SS
Togarirm Skapti bilaður
- Drangeyjan kemur með varahluti
frá Þýskalandi
Skagfirðingur SK-4, skip sam
nefnds útgerðarfélags, landaði
á Sauðárkróki um helgina. Afl-
inn var um hundrað tonn, mest
megnis þorskur en einnig ýsa.
Skapti SK-3 bíður eftir að
komast á veiðar, en i hann
vantar varahluti. Drangey SK-
1 er á leiðinni heim frá Þýska-
landi en hún gerði ágæta sölu
þar í seinustu viku.
Dregist hefur að Skapti SK-3
hafi komist á veiðar en verið er
að bíða eftir varahlutum sem
vantar frá Þýskalandi. Drangey
SK-1 togari Útgerðarfélagsins
Skjaldar kemur væntanlega með
varahlutina í Skapta, fljótlega
eftir helgina. Drangey gerði
ágæta sölu í Þýskalandi, var afla-
verðmætið um sautján milljónir.
Hegranes SK-2 er á veiðum og
væntanlegt í land seinnipart vik-
unnar. kg
Hestamannafélagið Hringur:
Aðalfundi frestað
Eins og fram hefur komið í
blaðinu mun það ráðast á aðal-
fundum eyfirsku hestamanna-
félaganna þriggja, sem standa
utan Landssambands hesta-
mannafélaga, hvort af inn-
göngu verður nú. Fyrsti aðal-
fundurinn átti að vera nú um
helgina en var frestað.
Það var hestamannafélagið
Hringur á Dalvík sem auglýst
hafði aðalfund sinn nú um helg-
ina en honum var frestað til
næsta föstudags. Þá hefur verið
ákveðið að aðalfundur hesta-
mannafélagsins Léttis verði næst-
komandi sunnudag og einnig
verður aðalfundur Funa innan
skamms. JÓH
Fermingarfötin
i'tm
wlðfermingorfö'^,a
^ulegum herrum
im
HERRADEILD
Gránufélagsgötu 4
Akureyri • Sími 23599
VISA
athygli á því máli
Verkmenntaskólann, svo eitt-
hvað sé nefnt.
Einnig er í bréfinu komið inná
umræðuna um byggðastefnu og
mikilvægi þess að ná jafnvægi í
byggðum landsins. Akureyri er
nefnt sem mótvægi landsbyggðar-
innar við Stór-Reykjavík. Sam-
band milli Norður- og Austurlands
mun án efa aukast verulega með
tilkomu heilsársvegar og milli-
landaflugvallar. Stóriðja í Eyja-
firði sem nýtti rafmagn frá Fljóts-
dalsvirkjun myndi einnig styrkja
tengsl svæðanna enn frekar.
Hugmyndir þeirra Halldórs og
Sveins eru vissulega áhugaverðar
og tímabært að leggja þær fram
nú, þar sem stjórnvöld eru að
kanna þessi mái af fullri alvöru,
eftir því sem næst verður komist.
Það verður því fróðlegt að fylgj-
ast með viðbrögðum bæjaryfir-
valda á Akureyri, við þessum til-
lögum sem nú hafa verið lagðar
fram, í áðurnefndu bréfi. -KK
Seljum síðustu tausófasettin
á enn lægra verði
Sófasett 3-2-1 aðeins kr. 37.000,-
Frábær kaup.
★
Eigum einnig eftir nokkrar hillusamstæður:
Beyki
Hvítar kr. 47.000,-
Gráar
Fura
3ja sæta sófar kr. 16.000,-
Ýmis stök húsgögn með miklum afslætti:
T.d. sófaborð, eldhúsborð, svefnsófar, stakir
stólar.
[^vörubœrÞ
LYwJ HUSGAGNAVERSLUN
TRYG.GVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SlMI (96)21410