Dagur - 06.03.1990, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 6. mars 1990 - DAGUR - 5
Breytt þjóðfélagslegt umhverfl
Misvísun íslenskrar hagstjórnar
er að ganga sér tii húðar. Ef við
ætlum að njóta stöðu landsins
samgöngulega og viðskiptalega, á
milli heimshluta, sérstöðu auð-
iinda landsins, er ljóst að þjóðin
verður að taka upp nýja sambúð-
arhætti. Sú spurning er áleitin,
hvort við eigum að nálgast efna-
hagsbandalagið eða ekki. Pað
gæti verið á því verulegir mein-
bugir að ganga í efnahagsbanda-
lagið að öllu óbreyttu. Hér er
fyrst að nefna sameiginlegan rétt
til fiskveiða í íslenskri landhelgi
og í öðru lagi sameiginlegan
vinnumarkað. Svo getur farið að
þessi ágreiningur verði til þess að
ísland verði ekki beinn aðili að
efnahagsbandalaginu. Ljóst er að
þjóðin verður að gera víðtækan
samstarfssamning við bandalag-
ið, sem jafngildir því að íslenskt
efnahagskerfi aðlagist viðskipta-
háttum þess.
Þetta verður meginverkefni í
íslensku efnahagslífi næstu miss-
erin. Samhliða þessu verður að
tryggja íslenskum atvinnuvegum
raunhæf rekstursskilyrði. Sama á
við um menningarleg og tæknileg
samskipti við aðrar þjóðir.
Staða landsins og þróunarstig
þjóðfélagshátta á Islandi gefur
góðar vonir um, að þjóðfélag
okkar standist þetta og þjóðin
verði hlutverki sínu vaxin, og nái
Áskell Einarsson.
viðunandi jafnstöðu við stærri
samfélög.
Pað er ekki nýtt í þjóðarsög-
unni, að þjóðin hafi verið fáliðuð
í landi sínu, áður vegna ónógrar
búsetuskilyrða, en nú of fámennn
til að standa undir möguleiknm.
sem landið hefur upp á að bjóða
þannig og þeint kröfum sem sjálf-
stæð þjóðartilvera krefst.
Eyður í byggðum landsins geta
um síðir myndað skilyrði vegna
ónýttra landkosta, sem freisti
útlendinga. Viss búsetujöfnun er
undirstaða þess að þjóðin geti
haldið yfirráðum á sínu landi.
Fari svo að stórir hlutar landsins
falli úr byggð er ljóst að ekki
verður varist að til landsins leiti
innflytjendur, þótt síðar verði.
Þjóðartilvera íslendinga, í
strjálbýlu landi gerir byggða-
stefnu að undirstöðuatriðum
sjálfstæði þjóðar í þessu landi.
Framundan eru mikilvægir tímar,
þar sem reynir á úrræði þjóðar-
innar. Pað er ekki hægt að reka
þjóðarbúskap með sama hætti og
félagsmálastofnanir. íslendingar
mega þó ekki hverfa frá mannúð-
legri samfélagslegri þjóðskipan,
að hætti stærri þjóða.
Megin niðurstaðan er sú að ís-
lenska þjóðfélagið getur verið
prófsteinn á það, hvort lítið þjóð-
félag fær staðist á tímum hinna
stóru heilda, þegar landamærin á
milli þjóðlanda skipta ekki leng-
ur máli.
Liður í þessu er að móta nýja
þjóðarstefnu, sem markast af
aðstöðu þjóðarinnar til að nýta
sér tilveru sína í stórri og hreyf-
anlegri heimsmynd. í þessu bygg-
ist jafnstaða og sjálfstæði þessar-
ar þjóðar á borð við aðrar þjóðir.
Áskell Einarsson,
framkvænidastjóri Fjórðungs-
sambands Norðlendinga.
lesendahornið
/
Enn um sjúkranudd hjá Einingu
„Ég var að lesa um endurgreiðslu
verkalýðsfélaga vegna sjúkra-
nudds, því Einingarfélagar fá
ekki greitt hjá félaginu ef þeir
fara til Brynjólfs Snorrasonar.
Mér ásamt fleirum finnst þetta
ekki ná nokkurri átt, því það er
stjórn félagsins sem ræður þessu
og ef þeir vilja félögum sínum vel
gætu þeir vel breytt þessum lög-
um ef þeir kærðu sig um. Okkur
finnst þetta vera skömm fyrir
félagið að koma svona framm við
félaga sína.
Pað væri gott ef félagar létu til
sín heyra um þetta mál. Við
erum hissa að enginn skuli hafa
látið til sín hey.ra.“
Lesendahornið, hefur þegar
leitað svara við sömu fyrirspurn
hjá Verkalýðsfélaginu Einingu
en í svari Sævar Frímannssonar
kom þá fram, að félagið greiðir
90% af hlut sjúklings sem fer til
Kona hringdi:
„Ég vil koma því á framfæri að
ég er afar ósátt við þann dóm sem
fallið hefur yfir Jóni Óttari Ragn-
arssyni vegna sýningar á tveimur
„bláum" myndum á Stöð 2. Hvers
vegna þarf fólk, sem ekki þolir
slíkar myndir, að liggja yfir þeim
bara til að geta kært? Pessar
myndir voru sýndar á þeim tíma
nætur að varla hefur neinn farið
að horfa óviljandi á þær.
Mér finnst ekki vera nein sam-
svörun í því að leyfð skuli í bóka-
búðum sala blaða og tímarita,
sem örugglega hefðu einhvern
tíma tlokkast undir klám auk
þess sem enginn vandi er að fá
- bréf frá félaga
sjúkraþjálfara sem er viður-
kenndur af Sjúkrasamlagi Akur-
eyrar svo framarlega sem félagar
fari í meðferðina að læknisráði.
Nuddarar sem ekki eru í sjúkra-
samlagi þurfa að krefja sjúklinga
sína um fulla greiðslu og því yrði
90% hluti þess mun meiri en hjá
sjúkraþjálfara í sjúkrasamlagi.
íbúi í fjölbýlishúsi aldraðra á
Akureyri
hafði samband við Dag og kvaðst
leigðar mikiu grófari kvikmyndir
en þær sem hér um ræðir víða um
landið.“
Varðandi lagabreytingar, getur
stjórn félags ekki upp á sitt ein-
dæmi breytt lögum félagsins.
Slíkar lueytingar þarf að fram-
kvæma á aðalfundi og eru þær þá
yfirleitt lagðar til af félögunt sem
fundinn sitja. I þessu máli eru
það því félagarnir sjálfir sem hafa
völdin, ekki stjórnin.
vilja, vegna mikillar umræðu um
snjósleðaumferð, vekja athygli á
að snjósleðar væru tíðir fyrir utan
fjölbýlishús aldraðra við Víði-
lund á Akureyri.
íbúinn tók fram að búið væri
að ganga frá lóð við húsið og
gróðursetja trjáplöntur og vitað
væri að nokkrar þeirra hafi nú
þegar eyðilagst af völdum
átroðnings snjósleðanna. Vegna
þessa vildi íbúinn koma þeirri
áskorun á framfæri við eigendur
snjósleðanna að þeir létu vera að
leika sér við umrætt fjölbýlishús.
Lesendur!
Hringið eða skrifið
Við hvetjum lesendur til að láta
skoðanir sínar í ljós hér í lesendahorn-
inu.
Síminn er 24222.
Ósátt við dóminn
yfír Jóni Óttari
íbúi í fjölbýlishúsi aldraðra
við Víðilund hringdi:
Burt með
snjósleðana!
Skíðabogar
á fíesta bíla
NÝTT: Skíðafestingar með segulstáli -
handhægt. Getur ekki losnað af.
3 NESTIN,
Akureyrí
Hvernig væri aö breyta svolítið til og koma til starfa
með áhugasömu fólki sem er önnum kafið við að
byggja upp nýja endurhæfingardeild og endurbæta
eldra húsnæði?
Kristnesspítali er 10 kílómetra suður frá Akureyri í
afar heillandi umhverfi. Starfsmönnum sem búsettir
eru á Akureyri er séð fyrir akstri í og úr vinnu.
Hjúkrunarfræðingar - sjukraliðar.
Nokkrar stöður eru lausar nú þegar, eða síöar eftir
samkomulagi. Einnig vantar hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða til sumarafleysinga. Barnaheimili og íbúð-
arhúsnæði til staðar. Upplýsingargefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 96-31100.
Aðstoð við sjúkraþjálfun.
Staða aðstoðarmanns við sjúkraþjálfun er laus frá
og með 1. apríl n.k. Upplýsingargefurframkvæmda-
stjóri í síma 96-31100.
Kristnesspítali.
Vinningstölur laugardaginn
3. mars. ’90
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 9 279.600.-
2. 4 109.315.-
3. 4af 5 256 2.946.-
4. 3a*5 4.405 399.-
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
5.465.431.-
UPPLVSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002