Dagur - 06.03.1990, Síða 7
Þriðjudagur 6. mars 1990 - DAGUR - 7
Geir Sveinsson náði sér vel á slrik gegn sovésku snillingunum og skoraði 6
mörk.
Það fór eins og við var búist
þegar íslendingar mættu
Sovétmönnum í fyrsta leik sín-
um í milliriðli HM í handknatt-
leik í Tékkóslóvakíu. Sovét-
menn sigruðu næsta auðveld-
lega með átta marka mun og
þegar litið er til úrslita í öðrum
leikjum Sovétmanna verður
það að teljast vel sloppið.
Staðan í hálfleik var 14:8
Sovétmönnum í vil sem þýðir
að íslendingar töpuðu síðari
hálfleik aðeins með tveimur
mörkum og það verður að telj-
ast allt að því frábær árangur.
Spurningin er aðeins hvort
Sovétmenn hafi slakað á eða
íslendingar leikið vel en styrk-
ur Olympíumeistaranna er
slíkur að ekki er gott að átta
sig á því.
Átta marka tap gegn Sovétmönnum í milliriðli í gær:
íslendingar áttu við
ofurefli að etja
l5að var greinilegt strax í upp-
hafi að íslendingar báru mikla
virðingu fyrir andstæðingunum
en að boðar auðvitað aldrei gott.
Sovétmenn tóku strax öll völd í
sínar hendur og eftir örfáar
mínútur var munurinn orðinn sex
mörk, 9:3. Þá réttu íslendingar
úr kútnum og héldu í við risann
fram að hléi.
Sovétmenn skoruðu fyrstu tvö
mörkin í síðari hálfleik en íslend-
ingar svöruðu með þremur mörk-
um. Leikur liðsins hafði nú
breyst til batnaðar og jafnframt
virtust Sovétmenn hafa slakað
eilítið á. Sigur þeirra var þó að
sjálfsögðu aldrei í neinni hættu
og þeir héldu íslendingunum allt-
af í öruggri fjarlægð. í rauninni
er óþarfi að rekja gang leiksins
frekar. Sveiflur í síðari hálfleikn-
um voru litlar og þegar flautað
var til leiksloka höfðu Sovét-
menn sigrað með átta marka
mun, 27:19, eins og fyrr segir.
Sovétmenn eru með þvílíkt
yfirburðalið uni þessar mundir að
ekki var hægt að búast við því
með nokkurri sanngirni að ís-
lendingar myndu sigra og er
raunar hægt að segja það sama
um öll lið. Hins vegar er ekki
hægt að hrósa leik íslenska liðsins
í fyrri hálfleik. Sóknarleikurinn
var ákaflega vandræðalegur og
mistökin fjölmörg og sum ansi
vandræðaleg. Þrátt fyrir að and-
stæðingurinn sé sterkur þýðir það
ekki sjálfkrafa að lið þurfi að
leika illa gegn honum en þegar á
allt er litið skipti það e.t.v. ekki
máli í þessu tilfelli. í síðari hálf-
leik lék liðið hins vegar mun bet-
ur og á köflum stórvel. Leikmenn
virtust vera búnir að ná úr sér
minnimáttarkenndinni og það
hafði nokkuð að segja.
Geir Sveinsson var bestur ís-
lenska liðsins að þessu sinni.
Hann virtist njóta sín ágætlega á
línunni innan um sovésku heljar-
mennin og gerði þar marga lag-
lega hluti. Þá átti Alfreð Gísla-
son ágæta spretti.
Um lið Sovétntanna þarf ekki
að fjölyrða. Þar er snillingur í
hverri stöðu og liðið kemst ansi
nálægt því að vera ósigrandi ef
það er hægt. Einna mest bar á
Iakimovich sem virtist skora þeg-
ar honum datt það í hug en snill-
ingurinn Tuchkin og markvörð-
urinn Lavrov léku einnig frábær-
lega.
Mörk Islands: Geir Sveinsson 6,
Alfreö Gíslason 5/2, Kristján Arason 2,
Guðmundur Guðmundsson 2, Héðinn
Gilsson 2. Óskar Ármannsson I og
Valdimar Grímsson I.
Mörk Sovétmanna: Tuchkin 7/2,
Iakimovich 6, Sharovarov 5, Atavin 3,
Tiumentsev 2, Nesterov 1, Sviridenko 1,
Karschakevich 1 og Gopin 1.
Körfuknattleikur:
- meiddist
Bandaríski leikmaðurinn í úr-
valsdeildarliöi Tindastóls Jam-
es Lee, meiddist í viðureign
Tindastóls við stjörnulið Ur-
valsdeildar sem fór fram í síð-
ustu viku. Lee mun ekki spila
meira með Tindastóli og er á
förum til Bandaríkjanna. Það
verður mikil blóðtaka fyrir
Tindastólsliðið að missa þennan
sterka miðherja sem hefur ver-
ið stigahæstur í flestum leikj-
um sem hann hefur spilað.
James Lee spilaði tvo leiki
meiddur en fór loks til læknis og
kom í ljós að tveir fingur voru
brákaðir. Ekki er búið að taka
ákvörðun í stjórn körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls hvort
annar leikmaður verður ráðinn í
stað Lee.
Lee meiddist í viðureign við
Sigurð Ingimundarson í leik
Tindastóls við Stjörnulið úrvals-
deildar í vikunni sem leið. Tinda-
stólsliðið hefur verið sérstaklega
óheppið með þá útlendinga sem
spilað hafa með því á keppnis-
og er á förum til Bandaríkjanna
tímabilinu. Bo Heiden var send- I leika og óhlýðni við þjálfara og
ur heim vegna samstarfsörðug- nú slasast James Lee. kg
Janies Lee hafði skamma viðdvöl á íslandi.
Þ.íl.: Nafn: Hnéb. Bekkp. Réttst. Samanl.
52 Helgi Jónsson 117,5 77,5 137,5 332,5
56 Jóhannes Eiríksson 132,5 67,5 160 360
67,5 Jóhann Guðmundsson 100 85 130 360
75 Kári Elíson 230 165 240 635
75 Már Óskarsson 225 115 220 560
82,5 Bárður Ólsen 252,5 140 285 677,5
82,5 Ingimundur Ing. 217,5 117,5 195 530
82,5 Rúnar Friðriksson 170 110 202,5 482,5
90 Jón Gunnarsson 315 177,5 312,5 805
100 Flosi Jónsson 295 170 280 745
100 Baldvin Skúlason 125 222,5 65
100 GunnarHjartarson 285 177,5 270 732,5
110 Guðni Sigurjónsson 300 195 330 825
125 Hjalti Úrsus 335 205 325 865
+ 125 Jón Páll 125 125 350 600
60 Unnur Jónsdóttir 145 55 135 335
67,5 Elín Ragn. 150 70 165 385
Feitletraðar tölur eru íslandsmet.
Önnur úrslit
Önnur úrslit í gær urðu þessi:
Ungverjaland-S-Kórea 27:24
Tékkóslóvakía-Svíþjóð 20:26
Rúmenía-Frakkland 25:21
Júgóslavía-A-Þýskaland 21:20
Spánn-Pólland 24:17
íslandsmeistaramótið í kraftlyftingum:
Ágætur árangur
Akureyringanna
Akureyringar náðu mjög góð-
um árangri á íslandsmeistara-
mótinu í kraftlyftingum sem
fram fór í Ytri-Njarðvík um
helgina. Fimm Akureyringar
tóku þátt í mótinu og komu
þeir heim með fjóra Islands-
meistaratitla og ein bronsverð-
laun. Helgi Jónsson, sem segja
má að sé nýstirni kraftlyfting-
anna, var í miklum ham og
setti alls sjö íslandsmet, fimm í
flokki fullorðinna og tvö ungl-
ingamet. Helgi hefur verið val-
inn í landsliðið sem keppir á
Evrópumótinu í Reykjavík í
vor og verður fróðlegt að sjá
hvað hann gerir þar.
Jóhann Guðmundsson, sem
keppti í 67,5 kg flokki stóð sig vel
á mótinu og krækti sér í íslands-
meistaratitil. Kári Elíson, sem
keppti í 75 kg flokki fann sig ekki
á mótinu en sigraði þó að venju.
Rúnar Friðriksson keppti í 82,5
kg flokki, bætti eigin árangur og
setti tvö Akureyrarmet unglinga.
Flosi Jónsson lenti í harðri bar-
áttu í 100 kg flokki en hafði sigur
að lokum. Flosi lyfti samanlagt
745 kg og jafnaði þar með sinn
besta árangur en Flosi og Kári
hafa báðir verið í erfiðu æfinga-
prógrammi fyrir Evrópumótið í
vor.
Eins og sjá má af árangri
Akureyringanna er mikil gróska í
kraftlyftingunum norðan heiða
um þessar mundir. Þrír þeirra
munu taka þátt í mótinu í vor,
þeir Flosi, Kári og Helgi.
Urslit á íslandsmeistaramótinu
urðu þessi:
Lee hættur með Tindastól