Dagur - 06.03.1990, Qupperneq 8
8 - DAGUR - Þriðjudagur 6. mars 1990
íþróttir
Guðmundur Benediktsson skoradi mest Þórs-
ara.
Handknattleikur
3. flokkur:
Þórsarar töpuðu
þremur leikjum
- unnu einn og gerðu
eitt jafntefli
3. flokkur Þórs átti ekki góðu gengi að
fagna þegar iiðið tók þátt í 1. deildar-
keppni 3. flokks í handknattleik í
Reykjavík um síðustu helgi. Liðið lék 5
leiki og náði aðeins að sigra í einum,
gerði jafntefli í einum en tapaði hinum
þremur.
Þórsarar sigruðu Víking 17:16 og gerðu
jafntefli við KR, 18:18. Liðið tapaði hins
vegar fyrir Haukum 22:27, Val 17:20ogTý
19:21. Liðið hefði að öllu óbreyttu fallið í
2. deild en þar sem 1. deildarliðunum
verður fjölgað úr 6 í 8, á liðið sæti í úr-
slitakeppninni sem fram fer í lok mánaðar-
ins.
Samúel Árnason skoraði 30 mörk fyrir
Þór í þessum leikjum, Guðmundur Bene-
diktsson 26, Árni Jóhannsson 15, Hákon
Örvarsson og Ómar Kristinsson 7 hvor og
Ingólfur Steindórsson 6 mörk.
Miklu frestað
vegna veðurs
Veðurguðirnir héldu uppteknum hætti um
síðustu helgi og hrelldu landann á ýmsan
hátt. Vegna þessara kcnja varð að fresta
fjölmörgum íþróttaviðburðum. Á íslands-
mótinu í handknattleik féll niður leikur
Þórs og Fram í 2. deild þar sem Framarar
komust ekki norður á föstudeginum. Þess
má reyndar geta að flug Flugleiða frá
Reykjavík til Akureyrar var með eðlileg-
um hætti þann daginn. Þórsstúlkur áttu að
leika þrjá leiki í 2. deild kvertna gegn ÍBV
í eyjum en því var frestað vegna veðurs.
Völsungar áttu að mæta Ármanni-b á
Húsavík á laugardag en Ármenningar
komust ekki norður og var þeim leik frest-
að þar til í kvöld kl. 20.30. Þá féll niður
barnainót í alpagreinum og skíðagöngu
sem fram átti að fara á Dalvík á laugardag
og Bikarmótið á Siglufirði fór allt fram á
sunnudeginum þar sem ekki var keppnis-
fært á laugardeginum. Loks féllu niður
leikir KA og UBK í Úrvalsdeild kvenna í
blaki og bikarkeppni kvenna sem fram
áttu að fara um helgina í íþróttahöllinni á
Akureyri.
KA-Þór á
miðvikudag
Þór og KA leika seinni leik sinn í Akureyr-
armótinu í handknattleik á miövikudag kl.
20.30. Fyrri leik liðanna lauk með jafntefli
eftir mikla spennu og ætti að vera óhætt að
búast við hörkuviðureign.
I
Handknattleikur:
Leikur íslenska liðsins
hrundi til grunna
- Júgóslavar gengu á lagið og unnu stórsigur 27:20
leik Kúbu og Spánverja en
með sigri gátu Kúbumenn
tryggt sér sæti í milliriðli á
kostnað íslendinga. Svo fór
ekki en íslendingar fara án
stiga í milliriðil þar sem stigin
úr viðureigninni gegn Kúbu
falla niður vegna 25% reglunn-
ar svokölluðu.
Leikurinn á laugardag fór
ágætlega af stað og var jafn fram-
an af. Júgóslavar höfðu þó frum-
kvæðið og náðu þriggja marka
forystu, 9:6. En íslendingar gáf-
ust ekki upp, náðu að jafna og
komast yfir fyrir leikhlé, 11:10.
íslendingar skoruðu fyrsta
markið í síðari hálfleik. Júgóslav-
ar jöfnuðu en nú var frumkvæðið
orðið íslendinga og þeir náðu
þrívegis eftir þetta tveggja marka
forystu. Þegar rúmar tíu mínútur
voru til leiksloka og staðan var
17:15 íslandi í vil fóru hlutirnir
að gerast hratt. Júgóslavar
breyttu um „taktík" í varnarleik
sínum og fóru að spila flata vörn
en fram að því höfðu þeir komið
út á móti íslensku skyttunum og
náð að halda þeim ágætlega
niðri. Þetta bragð heppnaðist vel
því allt í einu fór íslendingum að
liggja mikið á og í stað þess að
reyna að halda knettinum og
spila langar sóknir komu ótíma-
bær skot sem júgóslavneski
markvörðurinn átti ekki í neinum
vandræðum með að verja. Júgó-
slavar skoruðu á skömmum tíma
6 mörk í röð og breyttu stöðunni
í 21:17. íslendingar minnkuðu
muninn í 21:18 en þá komu 4
mörk í röð frá Júgóslövum og
draumurinn var úti.
Það þarf í sjálfu sér enginn að
skammast sín fyrir að bíða lægri
hlut gegn Júgóslövum. Ekki má
gleyma því að þeir eru núverandi
heimsmeistarar í handknattleik
og þrátt fyrir að þeir hafi átt erfitt
uppdráttar framan af mótinu eru
þeir óútreiknanlegir og hvenær
sem var mátti búast við því að
liðið næði sér á strik. Hins vegar
var grátlegt að sjá hvernig leik-
reyndasta lið heims fór að ráði
sínu í þessum leik. Reynslan virt-
ist engu skipta a þessum þýðing-
armiklu mínútum heldur gerðu
leikmennirnir nákvæmlega það
sem andstæðingarnir ætluðust til
og það gat ekki annað en endað
illa. Liðið hafði vissulega leikið
mjög vel fram að þessum ótrú-
lega kafla en því miður skiptir
það bara engu máli þegar upp er
staðið.
Bjarki Sigurðsson var besti
maður liðsins í þessum leik og lék
mjög vel framan af. Hann datt
hins vegar niður í lokin og það er
kannski táknrænt fyrir leikinn að
hann skoraði úr fyrstu sex skot-
um sínum en þau fjögur síðustu
fóru öll í súginn. Hjá Júgóslövum
átti Mirko Basic stórleik í marki
Júgóslava en hann kom inn á í
síðari hálfleik og varði níu skot,
þar af eitt vítakast. Þá var
Saracevic íslendingum erfiður að
vanda.
Mörk íslands: Bjarki Sigurðsson 6,
Alfreð Gíslason 3, Kristján Arason 3,
Jakob Sigurðsson 3, Þorgils Óttar Mathie-
sen 2, Sigurður Gunnarsson 1, Geir
Sveinsson 1 og Júlíus Jónassön 1/1.
Mörk Júgóslavíu: Veselin Vujovic 5/1,
Mile Isakovic 5/2, Slatan Saracevic 5,
Veselin Vukovic 5, Irfan Smailagic 5 og
Iztok Puc 2.
íslenska landsliðið í hand-
knattleik olli svo sannarlega
vonbrigðum þegar það mætti
Júgóslövum í síðasta leik sín-
um í riðlakeppni HM í hand-
knattleik á laugardag. Eftir að
liðið hafði þrisvar náð tveggja
marka forystu í síðari hálfleik
hrundi leikur þess og Júgóslav-
ar gengu á lagið og skoruðu
hvert markið á fætur öðru.
Leikpr íslendingar varð á þess-
um skamma kafla æ ráðleysis-
legri og eina áhyggjuefnið var
hversu stór ósigurinn yrði.
Lokatölurnar urðu 27:20 og
íslenska þjóðin beið með önd-
ina í hálsinum eftir úrslitum í
Þorgils Óttar og félagar töpuðu illa fyrir Júgóslövum um helgina eftir að
hafa leikið vel framan af.
Blak:
Sannfærandi sigur
KA á Þrótturum
KA-menn unnu öruggan sigur
á Þrótti Reykjavík þegar liðin
mættust í úrslitakeppni Úrvals-
deildarinnar í blaki í íþrótta-
höllinni á Akureyri á laugar-
dag. Lokatölurnar urðu 3:0 og
var sá sigur fyllilega verð-
skuldaður. Þróttarar náðu sér
aldrci á strik í leiknum enda
léku þeir án þjálfara síns og
Sveins Hreinssonar, eins af
sterkustu mönnum liðsins, en
þeir komust ekki til Akureyrar
vegna veðurs.
Bjami
ÍKA?
Hugsanlegt er að Bjarni Þór-
hallsson, blakmaður úr ÍS,
leiki með KA á næsta keppn-
istímabili. Yrði það að sjálf-
sögðu mikill fengur fyrir KA-
liðið því Bjarni er landsliðs-
niaður í greininni og þykir
mjög sterkur.
Til stendur að Bjarni flytjist til
Akureyrar og eru líkurnar á því
sagðar nokkuð góðar. Ekki hefur
tekist að ná í Bjarna til að fá
fréttina staðfesta.
KA-menn halda enn í veika
von um íslandsmeistaratitilinn en
hún byggist á því að þeir vinni
alla leiki sína sem eftir eru og auk
þess þurfa þeir að treysta á að
Stúdentar sigri Þrótt í síðari leik
liðanna. Liðin þrjú yrðu þá jöfn
og yrðu að leika sérstaklega um
íslandsmeistaratitilinn.
KA-menn byrjuðu leikinn á
laugardag og komust fljótlega í
5:1 í fyrstu hrinu. Þróttarar jöfn-
uðu en KA-menn sigu aftur fram
úr og sigruðu 15:10. Þeir höfðu
síðan undirtökin alla aðra hrin-
una og unnu hana 15:11. Síðasta
hrinan var hins vegar jöfn framan
af en KA-menn voru sterkari á
emiasprettinum og tryggðu sér
sigur í leiknum með því að vinna
hana 15:8.
„Ég er vissulega ánægður með
þennan sigur en það má ekki
gleymast að það vantaði í liðið
hjá þeim. Hvað framhaldið snert-
ir þá verðum við að vinna þá þrjá
leiki senr við eigum eftir og auk
þess að treysta á að Stúdentar
sigri Þróttara í síðari leiknum.
Það er óþægileg staða og ég er
ekkert sérstaklega bjartsýnn á að
okkur takist að halda titlinunr,"
sagði Haukur Valtýsson, fyrirliði
KA.
Arngrímur Arngrímsson er úr leik í
bili vegna slitinna liðbanda . . .
Heilladísirnar virðast ekki vera
með blakliði KA um þessar
mundir. Eins og komið hefur
fram fingurbrotnaði Stefán
Jóhannsson fyrir nokkru og
gat ekki leikið mikilvæga leiki
með liðinu. KA-liðið varð síð-
an fyrir öðru áfalli í vikunni
sem leið þegar Arngrímur
Arngrímsson sleit liðbönd í
fæti á æfingu.
. . . en Stefán Jóhannsson er að ná
sér af sínum meiðslum.
Ljósi punkturinn í þessu er
hins vegar sá að Stefán virðist
vera að ná sér og lék sinn fyrsta
leik að nýju um helgina þegar
KA sigraði Þrótt í þriðja leik sín-
um í úrslitakeppninni. Arngrím-
ur leikur hins vegar ekki blak á
næstunni og er þetta að sjálf-
sögðu mikil blóðtaka fyrir KA-
liðið sem þarf á öllu sínu að halda
í næstu leikjum.
Blak:
Arngrímur Amgríms
úr leik í bifr
- Stefán byrjaður að leika að nýju