Dagur - 06.03.1990, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 6. mars 1990
íþróttir
í
h
Gary Gillespie kom Iiverpool á toppinn
- Toddi góður gegn Man. City - Arsenal getur ekki skorað
John Barnes brýst hér framhjá varnarmönnum Millwall. Honum tókst ekki
aö skora í leiknum en hann fiskaði vítaspyrnu.
Baráttan um Englandsmeist-
aratitilinn virðist ætla að
standa milli Liverpool og Aston
Villa, næstu lið hafa dregist
nokkuð aftur úr og virðast vera
að missa af lestinni. Það kæmi
engum á óvart þó Liverpool
tækist enn eina ferðina að
tryggja sér titilinn. Leikmenn
liðsins hafa mun meiri reynslu í
þessum slag en leikmenn Ast-
on Villa. En lítum þá á leiki
helgarinnar.
Liverpool mætti Millwall á
heimavelli sínum og lenti í
óvæntum erfiðleikum við að inn-
byrða sigurinn í leiknum. Þrátt
fyrir mikla baráttu leikmanna
Millwall hefði það verið mjög
ranglátt ef Liverpool hefði ekki
tekist að sigra. Liverpool fékk
vítaspyrnu strax á 2. mín. leiksins
er Danis Salman var talinn hafa
brotið á John Barnes, harður
A
Urslit
1. deild
Charllon-Norwich 0:1
Coventry-Aslon Villa 2:0
Liverpool-Millwall 1:0
Manchester Utd.-Lulon 4:1
Nottingham For.-Manchester City 1:0
Q.P.R.-Arsenal 2:0
ShelTield Wed.-Derby 1:0
Southampton-Chelsea 2:3
Tottenham-Crystal Palace 0:1
VVimbledon-Everton 3:1
2. deild
Blackburn-Wolves 2:3
Bradford-Sheffield Utd. 1:4
Brighton-Oldham 1:1
Hull City-Oxford 1:0
Ipswich-Leicester 2:2
Middlesbrough-West Ham 0:1
Newcastle-Barnsley 4:1
Plymouth-Sunderland 3:0
Stokc City-Bournemouth 0:0
Swindon-Port Vale 3:0
Watford-Leeds Utd. 1:0
W.B.A.-Portsmouth 0:0
Úrslit í vikunni:
FA-bikarinn endurteknir jafn-
teflisleikir úr 5. umferð.
Q.P.R.-Blackpool 3:0
Cambridge-Bristol City 5:1
1. deild
Carlton-Arsenal 0:0
Southampton-Norwich 4:1
2. deild
Brighton-Middlesbrough 1:0
Newcastle-Bournemouth 3:0
3. deild
Binningham-Mansfield 4:1
Blackpool-Walsall 4:3
Bristol Rovers-Wigan 6:1
Bury-Notts County 3:2
Cardiff City-Shrewsbury 0:1
Chester-Bristol City 0:3
Fulham-Preston 3:1
Huddersfield-Crewe 0:1
Leyton Orient-Swansea 0:2
Northampton-Tranmere 0:4
Reading-Bolton 2:0
Rotherham-Brentford 2:1
4. deild
Chesterfield-Torquay 5:1
Exeter-York City 3:1
Gillingham-Cambridge 1:0
Grimsby-Doncaster 2:1
Halifax-Scunthorpe 0:1
Hereford-Aldershot 4:1
Lincoln-Hartlepool 4:1
Peterborough-Wrexham 3:1
Rochdalc-Maidstone 3:2
Scarborough-Burnley 4:2
Southend-Carlisle 2:0
Stockport-Colchester 1:1
dómur, en Peter Beardsley
þrumaði boltanum hátt yfir
markið úr vítaspyrnunni. Þrátt
fyrir stöðuga sókn Liverpool all-
an leikinn virtist sem Millwall
mundi sleppa með stig frá Anfield
þar til á 82. mín. að Gary Gillespie
sem ekki hafði leikið með liðinu
sl. 3 mánuði vegna meiðsla skall-
aði í mark eftir hornspyrnu
Beardsley. Rétt áður en markið
kom hafði Tony Cascarino átt
skalla í þverslána hjá Liverpool
úr einu hættulegu sókn liðsins í
leiknum. Með sigrinum komst
Liverpool í efsta sæti 1. deildar,
stigi á undan Aston Villa, en
Villa gat lagað þá stöðu í sunnu-
dagsleik sínum.
Það varð allt vitlaust í leik
Nottingham For. gegn Manchest-
er City 10 mín. eftir hlé, leik-
menn City ásamt Howard Ken-
dall framkvæmdastjóra umkringdu
dómara og línuvörð æfir yfir því
að mark Gary Crosby sem reynd-
ist sigurmark leiksins fengi að
standa. Markið var all furðulegt,
Crosby var að dóla fyrir aftan
Andy Dibble markvörð City sem
var að búa sig undir að spyrna frá
marki. Dibble sló boltanum nið-
ur í völlinn og áður en hann kom
höndum yfir hann að nýju náði
Crosby að skalla knöttinn frá
honum og renndi honum síðan í
markið. Dómarinn taldi markið
löglegt og leikmenn City sem
voru þegar orðnir heitir vegna
brota fyrr í leiknum sem þeir
töldu leikmenn Forest hafa
sloppið of vel frá, misstu alla
stjórn á sér. Þorvaldur Örlygsson
lék í liði Forest allan tímann og
átti góðan leik.
Leikmenn Man. Utd. ráku af
sér slyðruorðið á laugardag er
liðið lagði Luton að velli 4:1 og
hefði sá sigur hæglega getað orð-
ið stærri. Brian McClair kom lið-
inu yfir á 24. mín., en áður hafði
Ian Dowie misnotað gott færi fyr-
ir Luton. Mark Hughes bætti
öðru marki Utd. við eftir undir-
búning McClair og Danny Wallace
bætti þriðja marki Utd. við rétt í
lok fyrri hálfleiks. Mark Robins
skoraði fjórða mark Utd. á 64.
mín.j en hafði áður átt skot í
stöng. Kinsley Black skoraði eina
mark Luton 11 mín. fyrir leiks-
lok, en staða liðsins í fallbarátt-
unni er að verða alvarleg. Utd.
hins vegar er að þoka sér af
mesta hættusvæðinu.
Arsenal hefur nú leikið 5 leiki í
röð án þess að skora mark og
þarf því ekki að undrast þó Eng-
landsmeistaratitillinn sé að ganga
þeim úr greipum. Leikmenn liðs-
ins léku vel og sköpuðu sér mörg
tækifæri í leiknum gegn Q.P.R. á
laugardag og Kevin Richardson
átti skot undir þverslá sem ekki
var dæmt mark. Ray Wilkins
náði síðan forystu fyrir Q.P.R.
með góðu skoti eftir undirbúning
Colin Clarke og 15 mín. fyrir
leikslok gerði Roy Wegerle út
um leikinn með öðru marki
Q.P.R. eftir slaka vörn Arsenal.
En lánleysi sóknarmanna Arsenal
er algert um þessar mundir.
Southampton og Chelsea
mættust í stórskemmtilegum og
vel leiknum leik þar sem leik-
menn Southampton hófu leikinn
af miklum krafti og komust í 2:0.
Rodney Wallace skoraði á 18.
mín. og bætti síðan við glæsilegu
marki 10 mín. síðar. En leik-
menn Chelsea gáfust ekki upp og
Kevin Wilson lagaði stöðuna fyr-
ir Chelsea með skallamarki 10
mín. fyrir hlé. Það var síðan und-
ir lokin sem Tony Dorigo tókst
að jafna fyrir Chelsea og aðeins 2
mín. síðar skoraði Gordon Durie
sem komið hafði inná sem vara-
maður sigurmarkið.
Robert Fleck skoraði sigur-
mark Norwich gegn Charlton í
fyrri hálfleik og Charlton er því
enn í neðsta sæti 1. deildar þrátt
Á sunnudag léku Coventry og
Aston Villa í leik sem var sjón-
varpað beint á Englandi. Með
sigri í leiknum hefði Aston
Villa endurheimt efsta sæti 1.
deildar sem Liverpool hafði
sest í daginn áður.
Tvö mörk á sömu mínútu
snemma í síðari hálfleik gáfu
Coventry sigur sem liðið verð-
skuldaði fyllilega.
Þrátt fyrir að leikmenn Aston
Villa ættu tvívegis skot í tréverk-
ið á marki Coventry, fyrst Paul
McGrath í þverslá strax á 3. mín.
og síðan varamaðurinn Stuart
Kevin Drinkcll kom Coventry á
bragðiö gegn Aston Villa.
fyrir gott gengi liðsins að undan-
förnu. Norwich hefur hins vegar
misst af efstu liðunum.
Sheffield Wed. vann góðan sig-
ur á heimavelli gegn Derby þar
sem John Sheridan skoraði sigur-
markið í fyrri hálfleik. Sheridan
sem Brian Clough gat ekki notað
hjá Forest hefur gerbreytt Sheff-
ield liðinu til hins betra og liðið
ætti að halda sæti í 1. deild.
Það gengur allt á afturfótunum
hjá Tottenham um þessar mundir
og liðið tapaði óvænt leik sínum á
heimavelli gegn Crystal Palace.
Það var miðvallarspilarinn Alan
Pardew sem tryggði Palace sigur-
inn með marki í síðari hálfleikn-
um.
Everton náði forystu í leik sín-
um gegn Wimbledon á útivelli er
Kevin Sheedy skoraði beint úr
aukaspyrnu, en John Fashanu
jafnaði fyrir Wimbledon áður en
flautað var til hálfleiks. f síðari
hálfleik bættu leikmenn Wimble-
don tveim mörkum við og sigr-
uðu örugglega. Fashanu bætti
sínu öðru marki við, nú úr víta-
spyrnu og síðan skoraði Dénnis
Wise þriðja mark Wimbledon.
2. deild
• Efsta lið 2. deildar Leeds Utd.
tapaði leik sínum á útivelli gegn
Watford þar sem Rod Thomas
skoraði eina mark Ieiksins í fyrri
hálfleik. Leeds Utd. heldur enn
forystu, en Sheffield er aðeins
stigi á eftir og á leik inni.
• Sheffield Utd. náði mjög góð-
um sigri á útivelli, 4:1 gegn
Bradford.
• Swindon hefur verið að nálg-
ast toppliðin jafnt og þétt og und-
ir stjórn Ossie Ardiles virðist lið-
ið hæglega geta unnið sér sæti í 1.
deild. Swindon sigraði Port Vale
örugglega á heimavelli 3:0 og
þeir Colin Calderwood, Steve
White og Duncan Shearer sáu
um mörkin.
• Paul McLoughlin skoraði tvö
af mörkum Wolves í 3:2 sigri liðs-
ins á útivelli gegn Blackburn.
• Neil Adams jafnaði fyrir Old-
Gray sem skallaði í stöng seint í
leiknum, fékk Coventry flest fær-
in og sótti mun meira.
Nigel Spink markvörður Villa
varði þrívegis mjög vel í fyrri
hálfleik frá Steve Livingstone,
Cyrille Regis og David Smith. En
það . var skipting hjá Coventry
sem varð til þess að brjóta ísinn.
Á 50. mín. var Livingstone skipt
útaf fyrir Kevin Drinkell og hann
hafði ekki verið lengi inná er
hann fékk sendingu inn í teiginn,
tók boltann niður og sendi síðan
með þrumuskoti í markið hjá
Spjnk. Leikmenn Villa tóku
miðjuna, en misstu strax boltann
til Smith sem lék inn af kantinum
og skoraði með fallegu snúnings-
bolta af 20 metra færi síðara
mark Coventry. Leikmenn Villa
misstu móðinn eftir þetta og allur
kraftur fór úr liðinu sem nú hefur
tapað tveim leikjum í röð.
Nú er að sjá hvort leikmönnum
liðsins tekst að rífa sig upp, liðið
er aðeins stigi á eftir Liverpool og
11 umferðir eftir í deildinni þann-
ig að enn getur allt gerst. En leik-
menn liðsins hafa komist að því,
að það er enn erfiðara að halda
sér á toppi deildarinnar, en kom-
ast þangað. Þ.L.A.
Roy Wegerle gulltryggði sigur
Q.P.R. á Arsenal með síðara marki
leiksins.
ham gegn Brighton og tryggði liði
sínu stig í toppbaráttu 2. deildar.
• Newcastle burstaði Barnsley
4:1 með mörkum John Ander-
son, Kevin Scott, Roy Aitken og
Mark McGhee.
• Plymouth kom á óvart og sigr-
aði Sunderland 3:0, Tommy Tyn-
an skoraði tvö af mörkum Plym-
outh. Þ.L.A.
Staðan
1. deild
Livcrpool 27 15- 8- 4 51:23 53
Aston Villa 27 16- 4- 7 43:27 52
Nott.Forest. 26 12- 7- 7 38:24 43
Arsenal 26 13- 4- 9 38:27 43
Chelsea 28 11- 9- 8 44:40 42
Coventry 26 12- 4-10 26:32 40
Southampton 27 10- 9- 8 53:46 39
Tottenham 28 11- 6-11 39:36 39
Everton 2611- 5-10 35:34 38
Derby 26 11- 5-1133:24 38
Wimbledon 27 9-11- 7 34:29 38
Norwich 27 10- 8- 9 30:31 38
QPR 26 9- 9- 8 29:26 36
Sheff.Wed. 29 8- 9-12 24:37 33
Crystal Palace 27 9- 6-12 32:50 33
Man.Utd. 27 8- 7-12 34:37 31
Man.City 27 7- 7-13 30:42 28
Luton 27 5-11-1129:4126
Millwall 28 5- 9-14 33:42 24
Charlton 28 5- 8-15 23:3823
2. deild
Leeds Utd. 32 17- 9- 6 55:36 60
Sheff.Utd. 31 16-11- 4 48:3159
Swindon 32 15- 9- 8 59:43 54
Oldhatn 31 13-12- 6 47:36 51
Newcastle 31 13-11- 7 57:40 50
Wolves 32 13-10- 9 50-44 49
Sunderland 3212-12- 8 49:48 48
Blackburn 33 11-14- 7 56:47 47
Port Valc 32 11-11-10 43:39 44
West Ham 31 11-10-10 42:37 43
Oxford 31 12- 7-12 43:40 43
Ipswich 3011-10- 9 44:45 43
Bournemouth 32 11- 9-12 47:51 42
Leiccster 32 11- 9-12 44:50 42
Watford 31 10- 9-12 39:37 39
Portsmouth 31 7-13-1141:46 37
W.B.A. 32 8-12-12 50:50 36
Brighton 31 10- 6-15 37:43 36
Plymouth 30 9- 7-14 44:42 34
HuU 31 7-13-11 37:45 34
Middlesbr. 32 9- 8-15 38:47 34
Bradford 32 6-12-14 35:46 30
Barnsley 31 7- 9-15 31:56 30
Stoke 32 5-12-15 26:46 27
Villa hikstar
- lá gegn Coventry