Dagur - 06.03.1990, Qupperneq 11
Þriðjudagur 6. mars 1990 - DAGUR - 11
Sóðalegasta heimili sem um getur
KYOLIC
Eini alveg lyktarlausi hvítlaukurinn.
2ja ára kælitæknivinnsla (20 mán.
+ 4 mán.) sem á engan sinn líka í
veröldinni.
Hefur meiri áhrif en hrár hvítlaukur.
Er gæðaprófaöur 250 sinnum á
framleiðslutímanum.
Á að baki 35 ára stöðugar rann-
sóknir japanskra vísindamanna.
Lífrænt ræktaður í ómenguðum
jarðvegi án tilbúins áburðar eða
skordýraeiturs.
Öll önnur hvítlauksframleiðsla notar
hitameðferð.
Hiti eyðileggur hvata og virk efna-
sambönd í hvítlauk og ónýtir
heilsubætandi áhrif hans.
- KYOLIC DAGLEGA -
Það gerir gæfumuninn
KYOLIC fæst í heilsuvöru- og lyfja-
verslunum og víðar.
Heildsölubirgðir
LOGALAND
heildverslun, Símar 1-28-04.
Eitt sóðalegasta heimili sem sög-
ur fara af er í Alberta í Kanada.
Þar býr 67 ára gamall ellilífeyris-
þegi og innflytjandi, Kazik Kielb,
og hann hafði það lengi vel
huggulegt í átta herbergja húsi
sínu. Einn daginn var ná-
grönnunum þó nóg boðið. Þeir
höfðu um langt skeið fundið hinn
megnasta óþef leggja frá húsinu.
Þessi ferlegi fnykur gegnsýrði
hverfið og loks kölluðu nágrann-
arnir á slökkviliðið og heilbrigð-
isfulltrúa.
Þegar slökkviliðsmennirnir
ruddust inn hjá Kazik ætluðu þeir
vart að trúa sínum eigin augum,
hvað þá nefi. Húsið var troðfullt
af drasli og sorpi. Garðurinn var
eins og öskuhaugar í litlu sveitar-
félagi og tveir bílskúrar voru líka
fullir af alls kyns ógeði.
„Ég hef aldrei orðið vitni að
öðru eins á 35 ára ferli rnínurn,"
sagði slökkviliðsstjórinn og var
sleginn. „Meira að segja salernin,
vaskar og baðker voru full af
sorpi.“
Slökkviliðsmenn og starfs-
menn heilbrigðisfulltrúa strituðu
við að moka skítnum út. Sorpið
var svo mikið að það fyllti 10 risa-
stóra gáma og er þá aðeins átt við
ruslið sem var inni í íbúðinni,
ekki í kjallaranum eða í garðin-
um.
Kazik Kielb lifði eins og svín.
Hann svaf á ruslahrúgu í einu
horni kjallarans líkt og blásnauð-
ur utangarðsmaður. Samt fundu
slökkviliðsmenn 50 þúsund dali
sem Kazik geymdi í tösku og hús-
ið hans er 100 þúsund dala virði.
Hann var enginn fátæklingur,
langt frá því, en sennilega hefur
honum bara þótt gott að lifa eins
og svín, eða þá að hann hefur
ekki nennt að laga til. Enda hefur
hann ætíð verið piparsveinn!
Aumingja maðurinn var
beygður þegar hið opinbera lét
fjarlægja rotnandi matarleifar og
alls konar viðbjóð úr húsi hans.
Hann sagðist hafa safnað því sem
aðrir hefðu hent í 30 ár og það
væri fullkomin regla á öllum
hlutum.
„Ég borga mína skatta og ég á
heimtingu á að fá að vera í friði.
Ég get verið eins sóðalegur og
mig langar til,“ sagði Kazik.
Hann var sendur í læknisskoð-
un og í ljós kom að hann var ekki
geðveikur. Hann fékk því að fara
aftur inn í hús sitt eftir hreinsun-
ina en Kazik hefur hótað því að
flytjast út úr borginni á einhvern
afvikinn stað þar sem hann getur
safnað drasli í friði.
Óbreytt verð
þrátt fyrir virðisaukaskatt
Við hér á Degi, dagblaðinu á landsbyggðinni,
vekjum athygli á að verðið á okkar vinsælu smá-
auglýsingum er óbreytt þrátt fyrir aukna skatt-
heimtu.
Verð fyrir eina birtingu staðgreitt er kr. 860,- og
síðan 200 kr. fyrir sömu auglýsingu endurtekna.
Sem sagt tvær birtingar kr. 1.060,-
Fimm birtingar kr. 1.660,-
Tíu birtingar kr. 2.660,-
Lægra er varla hægt að hafa það.
auglýsingadeild
sími 24222.
4
Mltu breyta til, komast í nýtt umhverfi,
slappa af og njóta þess aðvera tiL
Komdu þá til Reykjavíkur
Þú lætur okkur eftir að sjá um málin,
panta hótel, bílaleigubílinn, miða í
leikhús eða hvað annað sem þú vilt.
FERÐASKRIFSTOFA AKUREYRAR HF.
AKUREYRI TOURIST BUREAU
FLUGLEIDIR