Dagur - 06.03.1990, Page 13
- I.
f-sr t *
Þriðjudagur 6. mars 1990 - DAGUR - 13
myndosögur dags
ARLAND
Þetta er farið aö fara í taug-1 arnar á mér Siggi... Friðrikka hefur verið aö færa mér mat alla vikuna!
w
... allt frá spældu eggi til bak-
aöra bauna!... í gær fékk ég
kálböggla! Þeir voru i skápn-
um mínum allan daginnl!
Ég veit ekki hvað ég þoli mikið meira af þessu!
Ttrt/lft/Uy 3-i9 Sh
Sko, ef þú ætlar ekki aö boröa
humarinn hennar, skal ég
gera þaö!
ANDRES OND
HERSIR
Sjáðu þessar
þúsundir stjarna.
BJARGVÆTTIRNIR
Nú uppgötvar bílstjórinn aö hann hefur
veriö aö skjóta á_ranqa bráö..._______________
... þess í staö kemst hann aö þvi aö
hann sjálfur er nú bráöin ...
I
(MM
• Af hverju
álver á
íslandi?
Eins og allir vita hafa íslend-
ingar staðið í viðræðum við
erlenda aðila árum saman um
að reisa álver hér á landi, en
þær viðræður hafa ekki leitt
til jákvæðrar niðurstöðu fyrr
en nú. Af hverju skyldi vera
lögð svona mikil áhersla á að
ná samningum einmitt núna?
Jú, við íslendingar eigum
ekki margar auðlindir. Okkar
stærsta auðlind eru fiskimið-
in í kringum landið og því
miður er málum svo komið nú
að við verðum að draga sam-
an seglin í veiðunum ár eftir
ár, en það þýðir auðvitað
minnkandi þjóðartekjur.
Sama er að segja um land-
búnaðinn, þar er mikill sam-
dráttur um þessar mundir og
ekki annað að sjá en að hann
haldi áfram i náinni framtíð. í
iðnaði eru einnig blikur á lofti.
Ullariðnaðurinn á undir högg
að sækja og ekki hægt að sjá
fyrir hvað um hann verður.
Skipasmfðaiðnaður stendur
einnig höllum fæti. íslending-
ar hafa reynt fyrir sér í nýjum
greinum, loðdýrarækt og
fiskeldi, en þær hafa ekki enn
skilað neinu nema tapi og sér
ekki fyrir endann á þeim
ósköpum.
Það er við þessar aðstæður
sem lögð er svona mikil
áhersla á að útlendingar
byggi álver hér á landi. Við
eigum enn ónýtta eina auð-
lind, en það er orkan í fall-
vötnunum og gufuorkan. Það
er sú auðlind sem við ætlum
nú að nýta.
# Eyjafjörður
kemur
sterklega
til greina
Nú fer væntanlega að styttast
í það að áfmálið komi til kasta
ríkisstjórnar og Alþingis. Ey-
firðingar hafa haldið þvi fram
með réttu að álverið eigi að
risa við Eyjafjörð. Ef 200 þús-
und tonna álver, sem kostar
um 50-60 milljarða króna, ris
á suðvesturhorni landsins,
mun það valda stórkostleg-
ustu byggðaröskun i sögu
þjóðarinnar. Mjög margir af
ráðamönnum þjóðarinnar eru
farnir að gera sér grein fyrir
þessu. Á fjölmennum fundi
Framsóknarfélags Akureyrar
fyrir skömmu, sagði forsætis-
ráðherra eitthvað á þessa
leið: Ef álverið á að rísa við
Eyjafjörð, þarf að koma til
pólitisk ákvörðun. Álver við
Eyjafjörð kann að reynast
dýrara i uppbyggingu en það
má leysa með því t.d. að
bjóða útlendingunum lægra
orkuverð til fleiri ára, en fyrir-
hugað væri miðað við Reykja-
nes. Slíkt tilboð þýddi að það
tæki lengri tíma en ella að
afskrifa þær virkjanir sem
reistar yrðu.
Þessi orð forsætisráðherra
snerta kjarna málsins. Þetta
er sú „vinstri villa" sem sjálf-
stæðismenn í Hafnarfirði og
fleiri aðilar syðra eru að tala
um. í þeirra huga er það
vinstri villa að reisa fyrirtæki
á landsbyggðinni.
dogskró fjölmiðla
Sjónvarpið
Þriðjudagur 6. mars
17.50 Bótólfur (6).
18.05 Æskuástir (2).
(Forelska.)
18.20 íþróttaspegill (5).
18.50 Táknmálsfréttir.
18.55 Yngismær (73).
19.20 Bardi Hamar.
19.50 Bleiki pardusinn.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Tónstofan.
Ólafur Þórðarson spjallar við Magnús
Eiriksson tónlistarmann.
21.00 Ferð án enda.
(The Infinite Voyage.)
Líf í tvísýnu.
21.50 Nýjasta tækni og vísindi.
íslensk mynd um rannsóknir á þorskanet-
um verður endursýnd.
22.05 Að leikslokum.
(Game, Set and Match)
Tíundi þáttur af þrettán.
23.00 Ellefufróttir og dagskrárlok.
23.10 Umræðuþáttur um byggðarnál.
Umsjónarmaður Gísli Sigurgeirsson.
23.50 Dagskrárlok.
Auglýstir dagskrárliðir kunna að rask-
ast frá kl. 18.45-20.20 vegna sýninga á
leikjum frá heimsmeistaramótinu í
handknattleik.
Stöð 2
Þriðjudagur 6. mars
15.15 Stjörnumaðurinn.
(Starman.)
Jenny Hayden heldur að hún sé gengin af
göflunum þegar hún sér eiginmann sinn
sálugan standa ljóslifandi fyrir framan
sig. En þetta er ekki eiginmaðurinn held-
ur vera frá öðrum hnetti sem hefur fengið
líkama eiginmannsins lánaðan.
Aðalhlutverk: Jeff Bridges, Karen Allen,
Charles Martin Smith og Richard Jaeckel.
17.05 Santa Barbara.
17.50 Jógi.
(Yogi’s Treasure Hunt)
18.10 Dýralíf í Afríku.
(Animals of Africa.)
18.35 Bylmingur.
19.19 19:19.
20.30 Paradísarklúbburinn.
(Paradise Club.)
21.25 Hunter.
22.15 Raunir Ericu.
(Labours of Erica.)
22.40 Fyrir drottningu og þjóð.
(For Queen and Country.)
„Þú skýtur hryðjuverkamann - hann er
dauður. Þú skýtur til þess að drepa,"
sagði hermaður í þjónustu á Norður-ír-
landi.
Þessi verðlaunaða heimildamynd markar
þau tuttugu ár sem liðin eru frá komu
breskra hermanna til Norður-írlands. Allri
þagnarskyldu var lyft af þessum her-
mönnum í tilefni þessarar merku myndar
og er sannleikurinn óhugnanlegur.
23.30 Vopnasmygl.
(Lone Wolf McQuade.)
Spennandi hasarmynd sem segir frá
landamæraverði í Texas sem er harður í
horn að taka ef á þarf að halda. Hann á i
höggi við hóp manna sem eru að smygla
vopnum úr landi.
Aðalhlutverk: Chuck Norris, David Carra-
dine og Barbara Carrera.
Bönnuð börnum.
01.15 Dagskrárlok.
Rás 1
Þriðjudagur 6. mars
6.45 Veðurfregnir • Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið.
- Baldur Már Arngrímsson.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fréttir kl. 8.00
og veðurfregnir kl. 8.15. Auglýsingar
laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn: „Eyjan hans
Múmínpabba" eftir Tove Jansson.
Lára Magnúsardóttir les (2).
9.20 Morgunleikfimi.
9.30 Landpósturinn - Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
10.00 Fréttir.
10.03 Neytendapunktar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð.
Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög
frá liðnum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur.
11.53 Á dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir • Dánarfregnir • Aug-
lýsingar.
13.00 í dagsins önn - Barattan við Bakkus.
Annar þáttur.
Umsjón: Guðrún Frímannsdóttir. (Frá
Akureyri)
13.30 Miðdegissagan: „Fátækt fólk" eftir
Tryggva Emilsson.
Þórarinn Friðjónsson les (10).
14.00 Fréttir.
14.03 Eftirlætislögin.
Svanhildur Jakobsdóttir spjallar við
Helga Pétursson fréttamann, sem velur
eftirlætislögin sín.
15.00 Fréttir. »
15.03 Menntakonur á miðöldum - Völvan
við Rín, Hildegard frá Bingen.
15.45 Neytendapunktar.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin.
16.08 Þingfréttir.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist eftir Ludwig van Beethoven.
18.00 Fréttir.
18.03 Að utan.
Fréttaþáttur um erlend málefni.
18.10 Á vettvangi.
18.30 Tónlist • Auglýsingar • Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir • Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar.
19.32 Kviksjá.
20.00 Litli barnatíminn.
20.15 Tónskáldatími.
21.00 Slysavarnafélag íslands, kvenna-
deildin.
21.30 Útvarpssagan: „Unglingsvetur" eft-
ir Indriða G. Þorsteinsson.
Höfundur les (11).
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan.
Fréttaþáttur um erlend málefni.
22.15 Veðurfregnir • Dagskrá morgun-
dagsins.
22.20 Lestur Passiusálma.
Ingólfur Möller les 20. sálm.
22.30 Leikrit vikunnar: „Ódauðleiki", til-
brigði fyrir útvarp
í framhaldi af sögu Wilhams Heinesen um
skáldið Lín Pe og trönuna hans tömdu.
23.15 Djassþáttur.
- Jón Múli Ámason.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur.
01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
Þriðjudagur 6. mars
7.03 Morgunútvarpið - Úr myrkrinu, inn
i ljósið.
Leifur Hauksson og Jón Ársæll Þórðarson
hefja daginn með hlustendum.
08.00 Morgunfréttir.
- Morgunútvarpið heldur áfram.
9.03 Morgunsyrpa.
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir.
11.03 Gagn og gaman
með Jóhönnu Harðardóttur
12.00 Fréttayfirlit • Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir.
- Gagn og gaman heldur áfram.
14.03 Brot úr degi.
Eva Ásrún Albertsdóttir.
16.03 Dagskrá.
Dægurmálaútvarp.
Stefán Jón Hafstein, Guðrún Gunnars-
dóttir og Sigurður Þór Salvarsson.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00.
- Stórmál dagsins á sjötta tímanum.
18.03 Þjóðarsálin, þjóðfundur í beinni
útsendingu, simi 91-38500.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Zikk zakk.
Umsjón: Sigrún Sigurðardóttir og Sigríður
Arnardóttir.
20.30 Gullskífan.
Að þessu sinni „Rei momo" með David
Byrn.
21.00 Rokk og nýbylgja.
Skúli Helgason kynnir.
22.07 „Blítt og létt..."
Gyða Dröfn Tryggvadóttir rabbar við sjó-
menn og leikur óskalög.
23.10 Fyrirmyndarfólk
lítur við í kvöldspjall.
00.10 í háttinn.
Ólafur Þórðarson leikur miðnæturlög.
01.00 Næturútvarp á báðum rásum til
morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7, 7.30, 8, 8.30, 9,
10, 11,12, 12.20, 14, 15, 16, 17, 18, 19, 22
og 24.
Næturútvarpið
01.00 Áfram ísland.
02.00 Fréttir.
02.05 Snjóalög.
03.00 „Blítt og létt..."
04.00 Fréttir.
04.05 Glefsur.
04.30 Veðurfregnir.
04.40 Á vettvangi.
05.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
05.01 Bláar nótur.
06.00 Fréttir af veðri, færð og flugsam-
göngum.
06.01 Norrænir tónar.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Þriðjudagur 6. mars
8.10-8.30 Svæðisútvarp Norðurlands.
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
Hljóðbylgjan
Þriðjudagur 6. mars
17.00-19.00 Pálmi Guðmundsson
fylgir ykkur heim úr vinnunni með ljúíri
tónlist.
Fréttir kl. 18.00.