Dagur - 06.03.1990, Side 16
Salan á Árlaxi í Kelduhverfi:
Ákvörðun um ráðstöfim þarf
að liggja fyrir fljótlega
- segir forstjóri Byggðastofnunar
Guðmundur Malmquist, for-
stjóri Byggðastofnunar, segir
að engin ákvörðun hafi verið
tekin um ráðstöfun Árlax, sem
stofnunin og Fiskveiðasjóður
íslands keyptu í síðustu viku.
Bárðardalur:
Skilvinda
dregin fram
Fannfergi er gríðarlega mik-
ið í Bárðardal og segja elstu
menn að ekki hafi verið þar
jafn mikill snjór síðan snjóa-
veturinn 1936. Snjórinn hef-
ur skapað mörg vandamál,
m.a. við mjólkurflutninga.
í lok síðustu viku náðist
loks ntjóik í Bárðardal á öllum
bæjum nema Bóístað. Þar var
gripið til gömlu góðu skilvind-
unnar og mjólk strokkuð í
smjör að gömlum sið. Inga
Ólafsdóttir, húsfreyja, segir
að hún hafi átt hieypi og því
einnig getað búið til svolítið
skyr.
í dag er ætlunin að sækja
mjólk í Bárðardal og er jafn-
vel hugmyndin að flytja hana
frá Bólstað á sleða í brúsum að
Halldórsstööum og dæla henni
þar í tankbílinn. f>að veltur
hins vegar á veðurguðum
hvort það tekst. óþh
Fagridalur:
Fólksbíll
valt í hálku
Bílvelta varð á Fagradal,
aðfaramótt sunnudags. Eng-
in meiðsli urðu á fólki og
furðulitlar skemmdir á bif-
reiðinni, sem hafnaði á
mum.
)happið átti sér stað er fólk
var á heimleið af dansleik á
Egilsstöðum. Mikil hálka var á
veginum og snérist bíllinn og
valt síðan. Auk ökumanns,
sem var karlmaður, voru fjórir
farþegar í fólksbflnum og
sluppu allir án meiðsla. IM
toppr
Óh.
Eins og fram kom í blaðinu
fyrir helgi hljóðaði tilboð þessara
aðila upp á 116 milljónir króna
en það náði til eigna, annarra en
fisksins í stöðinni.
„Næsta skref er því að huga að
því hvernig þessum eignum verð-
ur ráðstafað. Sú ákvörðun verður
að liggja fyrir fljótlega," sagði
Guðmundur.
Aðspurður um hvort málið þyrfti
að fara fyrir stjórnir Fiskveiða-
sjóðs og Byggðastofnunar sagði
hann að stjórnarfundur Byggða-
stofnunar hafi samþykkt á sínum
tíma að gera tilboð en ekkert
fjallað um ráðstöfun, enda um
sameiginlegt mál tveggja aðila að
ræða. Að líkindum komi það í
hlut embættismanna aðilanna að
ákveða framhaldið. JÓH
Hópur eldhressra krakka frá Vestmannaeyjum kom til Akureyrar í gær og hyggst eyða næstu dögum í skíðabrekk-
unum í Hlíðarfjaili. Mynd: kl
Krafðist ógildingar á ákvörðun landbúnaðarráðherra og tapaði málinu í undirrétti:
„Geri ráð fyrir að áfrýja til Hæstaréttar“
- segir Gunnar Oddsson, bóndi í Flatatungu í Skagafirði
Síðastliðinn fimmtudag gekk
dómur í undirrétti í máli
Gunnars Oddsonar, bónda í
Flatatungu í Skagafirði gegn
landbúnaðarráðherra og sauð-
fjársjúkdómanefnd. Gunnar
stefndi þessum aðilum fyrir að
ákveða niðurskurð á fjárstofni
hans vegna riðutilfella sem þar
komu upp haustið 1987. Dóm-
urinn féllst ekki á að ógilda
þessa ákvörðun ráðherrans og
sauðfjársjúkdómanefndar og
segist Gunnar Oddsson gera
ráð fyrir að áfrýja málinu til
Hæstaréttar.
Mál þetta hófst haustið 1987
þegar upp kom riðutilfelli í hjörð
Gunnars. Að hans sögn bauðst
hann þá strax til að semja við
ráðuneytið um niðurskurð en
fékk þau svör að vegna fjárskorts
væri það ekki hægt. Ekkert gerð-
ist fyrr en síðastliðið vor þegar
Gunnari var sendur samningur til
undirritunar en hann neitaði að
skrifa undir þar sem í samningnum
væru atriði sem hann vildi breyta.
Engar breytingar fengust á samn-
ingnum og þegar hér var komið
sögu óskaði Gunnar eftir sam-
komulagi um að fresta niður-
skurði þar sem ekkert riðutilfelli
hefði komið upp frá haustinu
1987. Ekkert svar barst við þessu
heldur fyrirskipaði ráðherra að
féð skyldi skorið niður með vísan
til reglugerðar sem heimilar ráð-
herra að beita valdi til niður-
skurðar, að uppfylltum vissum
skilyrðum. Þessi skilyrði taldi
Gunnar ekki uppfyllt og stefndi
því ráðherra.
Sigríður Friðjónsdóttir, dóms-
forseti í þessu máli, segir að meg-
inforsendur fyrir niðurstöðu
dómsins hafi verið þrjár. í fyrsta
lagi teljist yfirgnæfandi líkur á að
riða leynist enn í hjörð Gunnars
og þar af leiðandi sé það skilyrði
uppfyllt í reglugerðinni sem ráð-
herra sé heimilt að nota að veikin
valdi stórfelldu tjóni á viðkom-
andi bæ. í öðru lagi hafi ekki ver-
ið fallist á þá málsástæðu stefn-
anda að ákvörðun ráðherra hafi
ekki verið nægilega vel kynnt hon-
um. í þriðja lagi hafi ekki verið
fallist á að ákvörðun ráðherra hafi
verið órökstudd, tekin á órökstudd-
um tillögum sauðfjársjúkdóma-
nefndar og ætti því að ógildast.
Gunnar hafði í gær ekki fengið
niðurstöður dómsins í hendur og
sagðist því lítið getað tjáð sig um
þær. Að þeim fengnum tæki hann
ákvörðun um áfrýjun málsins til
Hæstaréttar en líklega yrði mál-
inu vísað þangað.
Kjartan Blöndal, framkvæmda-
stjóri Sauðfjárveikivarna, sagð-
ist ekki hafa fengið dómsnið-
urstöður í hendur og gæti því
ekki svarað þeirri spurningu
hvort féð verði skorið niður eða
beðið niðurstöðu Hæstaréttar,
verði málinu áfrýjað. JÓH
Lóðaúthlutanir í Giljahverfi:
Aðalgeir og SS Byggir
fengu bróðurpartinn
Bygginganefnd Akureyrar hef-
ur úthlutað tveimur bygginga-
verktökum lóðum í Giljahverfi
fyrir samtals 29 raðhúsaíbúðir
og 60 íbúðir í fjölbýlishúsum.
Að sögn Jóns Geirs Ágústs-
sonar, byggingafulltrúa Akur-
eyrarbæjar, verður úthlutað
Verða aðalstöðvar Sfldarverksmiðja
rfldsins fluttar til Siglufjarðar?
Stjórn Sfldarverksmiðja ríkis-
ins mun fjalla um tillögur
Bæjarstjórnar Siglufjarðar um
flutning höfuðstöðva SR til
bæjarins um miðjan mánuð-
inn. Aðalskrifstofa SR hefur
verið í Reykjavík um áratuga-
skeið.
Þorsteinn Gíslason, fiskimála-
stjóri, er stjórnarformaður SR.
Hann hefur setið í stjórn verk-
smiðjanna í tvo áratugi og er því
hnútum þar vel kunnugur. Hann
benti á að SR væri með rekstur á
fleiri stöðum á landinu en á Siglu-
firði, en vildi ekki tjá sig nánar
um persónulega skoðun sína á
málaleitan Siglfirðinga.
„Stjórnin mun afgreiða þessa
málaleitan með svari á næsta
fundi, hann hefur ekki verið dag-
settur en verður líklega haldinn
um miðjan mánuðinn. Við höf-
um beðið um frekari upplýsingar,
en síðan verður svarið afgreitt,1'
sagði Þorsteinn, aðspurður um
mál þetta.
Síldarverksmiðjur ríkisins
starfrækja loðnubræðslur á Siglu-
firði, Raufarhöfn, Seyðisfirði,
Reyðarfirði og Skagaströnd.
Lögheimili verksmiðjanna og
varnarþing er á Siglufirði, sam-
kvæmt sérstökum lögum um SR.
Þau lög eru nú orðin úrelt og ekki
lengur í takt við tímann, að sögn
Þorsteins, og frumvarpsdrög
liggja fyrir Alþingi um endur-
skoðun þeirra.
Stjórn SR er skipuð sjö mönn-
urn, þar af eru fimm alþing-
iskjörnir. Þorsteinn situr fyrir
Sj álfstæðisflokkinn, Bogi Sigur-
björnsson skattstjóri er fyrir
Framsóknarflokk, Hannes Bald-
vinsson Alþýðubandalag, Kristján
Möller Alþýðuflokk og Kristín
Karlsdóttir fyrir Kvennalista.
Sjómannasamband íslands til-
nefndi Guðmund M. Jónsson í
stjórn SR en Pétur Stefánsson,
skipstjóri á Pétri Jónssyni RE 69,
situr fyrir útgerðarmenn. EHB
lóðum fyrir alls 43 raðhúsa-
íbúðir og 80 fjölbýlishúsaíbúð-
ir, en frekari úthlutun var
frestað á fundi bygginganefnd-
ar.
Verktakarnir tveir sem hér um
ræðir eru Aðalgeir Finnsson hf.
og SS Byggir sf. Aðalgeir Finns-
son fékk 13 íbúðir í raðhúsum og
20 í fjölbýli. SS Byggir fékk 16
raðhúsaíbúðir og 40 í fjölbýlis-
húsum.
Samkvæmt heimildum Dags
eru nokkrir byggingaverktar á
Akureyri sem ekki fengu lóðir í
þessari iotu uggandi um sinn hag.
Það má hins vegar ítreka að enn
á eftir að úthluta lóðum fyrir 14
raðhúsaíbúðir og 20 fj ölbýlishúsa-
íbúðir. Jón Geir bjóst við að
það yrði gert á næstu tveimur
vikum.
Aðspurður sagði Jón Geir að
frekari lóðaúthlutanir væru ekki
á næstu grösum. „Það er alltaf
ein og ein lóð sem kemur til út-
hlutunar en þetta var stóri bitinn.
Síðan á eftir að úthluta lóðum
austan við spítalann en það verð-
ur ekki aiveg strax,“ sagði Jón
Geir. SS