Dagur - 30.03.1990, Blaðsíða 1
73. árgangur
Akureyri, föstudagur 30. mars 1990
63. töiublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMKMR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Ýmsu velt upp í umræðu
um vanda Alafoss, m.a.:
Ríkið yíirtaki nokkrar
fasteignir Álafoss hf.
I fyrirspurnatíma á Alþingi í
gær lagði Jóhannes Geir Sig-
urgeirsson fram þá fyrirspurn
til Jóns Sigurðssonar, iðnaðar-
ráðherra, hvað ríkisstjórnin
hygðist gera til að tryggja
stöðu ullariðnaðar í framtíð-
inni. Tilefni fyrirspurnarinnar
er að sjálfsögðu afar slæm
rekstrarstaða Alafoss hf. um
þessar mundir. Jón sagði í
svari sínu að þrátt fyrir batn-
andi rekstrarskilyrði hefðu
aðgerðir stjórnvalda til að
minnka skuldir ullariðnaðar-
fyrirtækja ekki borið árangur.
Ráðherra sagði að á árunum
1988 og 1989 hefði ríkið alls lagt
fram 209 milljónir króna til
handa ullariðnaðarfyrirtækjum í
formi fjárframlaga og eignayfir-
töku, þar af hafi 128 milljónir far-
ið til Álafoss vegna endurskipu-
lagningar á rekstri. „Því miður
reyndust þessar aðgerðir ekki
nægja til þess að koma Álafossi á
viðunandi grundvöll. Eiginfjár-
staða fyrirtækisins er enn
ótraust," sagði Jón Sigurðsson.
í samtali við Dag sagði iðnað-
arráðherra að á vegum nokkurra
ráðuneyta stæðu yfir viðræður
við lánadrottna Álafoss, forráða-
menn fyrirtækisins, verkalýðsfé-
lög og bæjaryfirvöld Mosfellsbæj-
ar og Akureyrar um vanda Ála-
foss. „Það er verið að ræða
nokkra valkosti, m.a. að ríkið
yfirtaki nokkrar fasteignir sem
Álafoss á lán áhvílandi í mjög
háum fjárhæðum. Þannig yrði
eitthvað létt af skuldum Álafoss,
en þá þarf líka að koma til aðstoð
Hlutafjársjóðs, Atvinnutrygg-
ingarsjóðs og hugsanlega aukið
áhættufé, ef til vill með beinu eða
óbeinu ríkisframlagi. Vandinn er
að tryggja starfsfé þar til árangur
hagræðingar og markaðssóknar
kemur í ljós. Þetta er erfitt við-
fangsefni en það er tekið á mál-
inu af mikilli alvöru og niður-
stöðu að vænta á næstunni,“
sagði Jón að lokum.
„Álafoss verður að fá aðstoð
núna og tel ég það fullkomlega
rökrétt að ríkisvaldið veiti þá
aðstoð miðað við forsögu máls-
ins. Ég hlýt að treysta því að mál-
ið verði afgreitt innan ekki of
langs tíma,“ sagði Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, þingmaður Fram-
sóknarflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra, í samtali við
Dag eftir fyrirspurnatímann í
gær. -bjb
Guðrún H. Kristjánsdóttir varð í 4. sæti í stórsvigi á alþjóðlega mótinu í Hlíðarfjalli í gær. Hún náði bestum árangri
íslensku stúlknanna. Nánar um mótið á íþróttasíðu. Mynd: kl
Skiptastjóri þrotabús Tréverks á Siglufirði telur Sigluíjarðarbæ
skulda drjúga upphæð vegna leiguíbúðanna í Gamla bakaríinu:
Bærinn fái ekki umráðarétt yfir
Mðunum nema greiða 10,2 mnljónir
- „þetta er út í hött,“ segir formaður bæjarráðs á Siglufirði
Hallgrímur Ólalsson, skipta-
stjóri í þrotabúi Tréverks á
Siglufirði, hefur sent bæjar-
yfirvöldum á Siglufirði bréf þar
sem hann tilkynnir að bærinn
fái ekki umráðarétt yfir nýju
leiguíbúðum í Gamla bakarí-
inu nema gengið verði frá
greiðslum eða tryggingum upp
á 10,2 milljónir króna, sem
bærinn skuldi þrotabúinu.
Tréverk hf. sá um breytingar á
Gamla bakaríinu í leiguíbúðir en
fyrirtækið fór á hausinn meðan á
framkvæmdum stóð. Þá var gerð-
ur samningur við þrotabúið um
að það liefði yfirumsjón með
lokafrágangi íbúðanna. Skipta-
stjóri segir í bréfinu að hann líti
svo á að húseignin sé eign þrota-
búsins þangað til bærinn hafi
greitt áðurnefnda upphæð. For-
maður bæjarráðs á Siglufirði vís-
ar þessu alfarið á bug. Málið mun
væntanlega skýrast á skiptafundi
í þrotabúi Tréverks hf. á Siglu-
firði í dag.
Styrinn stendur að nokkru leyti
um 6 milljónir króna sem Siglu-
fjarðarbær greiddi þáverandi
verktaka, Byggingafélaginu Bút
hf., er síðar varð gjaldþrota, í
mars 1988. Skiptastjóri telur vafa
leika á að þessir fjármunir hafi
nýst í umrætt verk og Tréverk hf.
Kaupfélag Eyfirðinga:
Breytíng í stjómun og starfsfólki fækkað
Frá og með 1. apríl nk. verða
breytingar á stjórnskipulagi
KEA sem að sögn Magnúsar
Gauta Gautasonar, kaupfé-
lagsstjóra, miða að markvissari
og skilvirkari yfirstjórnun og
einnig er tilgangur með breyt-
ingunum að skera niður kostn-
að. Stöður fulltrúa kaupfélags-
stjóra hafa verið lagðar niður
að starfi aðalfulltrúa undan-
skildu. Starfsfólki á skrifstof-
um er fækkað og taka upp-
sagnir þess gildi 1. apríl nk.
Alls fækkar starfsmönnum um
sem svarar 27 stöðugildum á
skrifstofum og í stjórnun.
Sigurður Jóhannesson, aðal-
fulltrúi, mun sjá um starfsmanna-
hald og eignaumsjón. Ber hann
einnig ábyrgð á rekstri flutninga-
deilda, þvottahúss og fiskverkun-
ar á Akureyri. Sigurður er stað-
gengill kaupfélagsstjóra í forföll-
um hans.
Árni Magnússon, sem áður var
fulltrúi kaupfélagsstjóra á sviði
hagmála, hefur verið ráðinn fjár-
málastjóri KEA og sér einnig um
skrifstofustjórnun.
Þorkell Pálsson hefur verið
ráðinn markaðsstjóri. Hann ber
ábyrgð á rekstri Brauðgerðar,
Smjörlíkisgerðar og Efnagerðar-
innar Flóru. Þorkell var áður full-
trúi kaupfélagsstjóra á sviði iðn-
aðar og markaðsmála.
Starfssvið Þórarins E. Sveins-
sonar, mjólkursamlagsstjóra, og
Haraldar Óla Valdemarssonar,
sláturhússtjóra, verður óbreytt.
óþh
ÓlafsQörður:
Flugbrautín að breytast í göngustíg?
- „virðingarleysi fólks með ólíkindum“
„Okkur hefur fundist virðing-
arleysi fólks fyrir flugvellinum
hér hafa verið með ólíkindum.
Þrátt fyrir stöðug tilmæli hefur
ekki gengið að fá fólk til að
hætta að ganga eða keyra á
snjósleðum yfir flugvöllinn,“
segir Þórgunnur Rögnvalds-
dóttir, umboðsmaður Flugfé-
lags Norðurlands í Ólafsfirði.
Töluvert hefur borið að
undanförnu á því að fólk gangi
eða keyri yfir flugbrautina á sama
tíma og flugvélar FN eru á henni.
Forsvarsmenn FN hafa eðlilega
að þessu miklar áhyggjur og hafa
nýverið skrifað bréf til bæjaryfir-
valda í Ólafsfirði til að vekja
athygli á þessu vandamáli. Þór-
gunnur segir að þetta mál hafi
mikið verið í umræðunni í Ólafs-
firði að undanförnu, en þrátt fyr-
ir það láti fólk ekki af þessum sið.
Hesthúsahverfið er í nántunda
við flugbrautina og þegar ófært er
að því er stysta leiðin þangað að
ganga yfir flugbrautina. Að sögn
Þórgunnar var mælirinn endan-
lega fullur í gær þegar vélsleða-
maður gerði sér lítið fyrir og
keyrði eins og ekkert hefði í
skorist yfir brautina. Þetta gerð-
ist skömmu áður en flugvél Flug-
félags Norðurlands hóf sig á loft.
óþh
því ekki fengið viðhlítandi
greiðslur frá Siglufjarðarbæ.
Hallgrímur Ólafsson, skipta-
stjóri, vildi lítið tjá sig um þetta
mál í gær, taldi þetta ekki
blaðamál. Það ntyndi skýrast að
afloknum skiptafundinum í dag.
Sigurður Hlöðversson, for-
maður bæjarráðs, telur að bréf
skiptastjóra hafi ekki álirif á gang
rnála, íbúðirnar verði afhentar
leigutökum núna unt helgina eins
og stefnt hafi verið að. „Þetta
kemur í ljós á skiptafundinum. Ég
held að móðurinn hljóti að renna
af bústjóranum og hann átti sig á
því að hann er bara að rugla.
Þetta er út í höttsagði Sigurð-
ur. „Það liggja fyrir kvittanir og
yfirlýsingar um að þessar 6 millj-
ónir séu greiðsla upp í verkið og
bústjóri var búinn að skrifa upp á
framlengingu á verksamningi þar
sent þetta var skýrt tekiö fram.
Það er því augljóst að honurn
hefur ekki tekist að vinna verkið
á því verði sem um var samið og
er kominn í vandræði. Ég hef trú
á að á skiptafundinum blási menn
þetta af,“ sagði Sigurður.
Leiguíbúðirnar átta í Gamla
bakaríinu eru nú tilbúnar og bíða
leigutaka. Að sögn Þráins Sig-
urðssonar, bæjartæknifræðings á
Siglufirði, er búið að leigja þær
allar út og ef krafa skiptastjóra
nær ekki frant að ganga á fundin-
um í dag verða þær væntanlega
afhentar um helgina. Fjórar
íbúðanna eru tveggja herbergja,
þrjár þriggja herbergja og ein
fjögurra herbergja. Að sögn
Þráins er áætlað að framreiknað-
ur kostnaður við breytingu
Gamla bakarísins í leiguíbúðir sé
um 44 milljónir króna. óþh