Dagur - 30.03.1990, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Föstudagur 30. mars 1990
fréttir
F
Jóhannes Geir Sigurgeirsson:
Nauðsynlegt að rannsaka efiiainnihald íslenskra matvæla
Jóhannes Geir Sigurgeirsson,
alþingismaður, hefur lagt fram
þingsályktunartillögu um að
alþingi feli ríkisstjórninni að
láta fara fram skipulegt átak í
skráningu efnainnihalds
íslenskra matvæla, með sér-
stöku tilliti til aðskota- og
aukaefna. Unnið verði að
skrásetningu allra slíkra efna í
innlendum matvælum, þannig
að íslensks yfirvöld geti gefið
út vottorð, byggð á vísindaleg-
um grunni, um hollustu
íslenskra matvæla.
í greinargerð með tillögunni
segir m.a. að svo virðist sem
íslendingar séu grandalausari um
þessi mál en nágrannaþjóðirnar.
því minni hætta sé talin af meng-
un hér á landi en víða annars
staðar. Mikilvægt sé að kaupend-
ur íslenskra matvæla geti verið
þess fullvissir að þau séu ómeng-
uð af efnaleifum eða aðskotaefn-
um.
Helstu flokkar óæskilegra efna
í matvælum eru eftirfarandi:
Lyfjaleifar, t.d. vegna lyfja sem
notuð eru við dýralækningar.
varnarefni, þ.e. skordýraeitur og
önnur álíka eiturefni, málmar,
t.d. blý, kvikasilfur, arsen og
kadmíum, sveppaeitur og síðast
en ekki síst PCB-efni og klór-
sambönd.
I lokaorðum þingsályktunar-
tillögunnar segir Jóhannes Geir
að lítið sé vitað um útbreiðslu
eða magn ofangreindra efna á ís-
landi. Pegar fyrirspurnir berist
erlendis frá geti íslendingar lítið
annað gert en bent á „hversu
ómenguð náttúran er að sjá." en
ekki sé við því að búast að allir
láti sannfærast af slíkum rökum.
Nauðsynlegt sé að afla upplýs-
inga um þessi mál sem fyrst, bæði
vegna útflutnings matvæla og
vegna innlendra neytenda. Bent
er á þann möguleika aö Háskól-
inn á Akureyri verði efldur sem
rannsókna- og fræðistofnun í
matvælaiðnaði. og færi vel á þ\ í í
einu stærsta matvælaframleiðslu-
og vinnsluhéraði landsins. bæði
til sjávar og sveita. Pó myndi slík
ráðstöfun krefjast nokkurrar
uppstokkunar á opinberri rann-
sóknarstarfsemi.
KEA Sunnuhlíð 12
Byqqium upp
og borðum?
Mautagullash ki
1.180,-
liautafile ki
1.250,-
Grillaðir
KjúKlingar
5Ö7,- stk.
Ilýtt á pönnuna
Pylsuréttur
Munið okkar
ódyra torg
Líttu inn
það borgar sig
HVERDAG
frosið
grænmeti
Qulrætur
no,-
Maisblanda
141/~
Rísblanda
199/**
RósaKál
ÍIO/-
Súpujurtir
115,-
BlómKál
158,-
Grænar baunir
Opið virka dagra
laugardaga kl.
kl. 9-20,
10-20.
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
„Grunnhugmyndin með skrán-
ingu efnainnihalds og sérstaklega
aukaefnum í matvælum er sú að
með því móti skapast forsenda til
að selja íslenska framleiðslu sem
ómengaða vöru. Árum saman
hefur verið rætt um að þjóðin geti
selt t.d. einhverja flokka land-
búnaðarvara á þessum forsend-
um, en það gerum við ekki nema
við getum sýnt fram á það á vís-
indalegan hátt að matvörur okk-
ar séu lausar við ýmis efni sem
hrjá matvælaframleiðslu í ná-
grannalöndunum. Þetta á jafnt
við um sjávarafurðir og landbún-
aðarvörur," segir Jóhannes Geir.
EHB
í tilefni 100 ára afmælis
Hins íslenska náttúrufræðifélags:
Þrjú hundruð síðna bók um
Mývatn væntanleg í júní
I tilefni af 100 ára afniæli Hins
íslenska náttúrufræöifélags á
þessu ári er í júní nk. væntan-
leg glæsileg hók mn náttúru
Mývatns og Mývatnssveitar.
Reynt hefur verið að vandti
mikið til vinnslu og efnis bókar-
innar. Hún verður um 300 blaö-
síður'.með yfir 160 myndum, þar
af nálægt 100 litmyndum. Biikin
skiptist í 15 kafla sem fjalla um
lífríki og jarðfræði Mývatns og
Mývatnssveitar. Höfundar eru
þeir visindamcnn sem á undan-
förnum árum hafa unnið að rann-
sóknum á Mývatnssvæöinu.
Kristján Sæmundsson skrifar
um jarðsögu svæðisins, Páll Ein-
arsson uni Kröfluelda, Jón Ólafs-
son um efna- og eölisciginleika
Mývatns, Hákon Aðalsteinsson
unt svif í vatninu, Arnþór Garö-
arsson og Árni Einarsson um líf á
botni Mývatns, Gísli Már Gísla-
son um lífið í Laxá, Jón Krist-
jánsson um fiska, Arnþór Garð-
arsson um fugla, Árni Einarsson
um sögu Mývatns sl. 2000 ár og
Hörður Kristinsson og Helgi
Hallgrímsson unt gróður við
Mývatn.
Þá skrifa þeir Arnþór Garðars-
son og Árni Einarsson sérstakan
ýfirlitskafla. Auk þessa eru í bók-
inni tegundalistar, heimildaskrá,
skýringakafli, cfnisorðaskrá og
Tabula gratulatoria.
Pessa dagana er veriö að safna
áskriftum að bókinni á meðal
félagsmanna í Hinu íslenska nátt-
úrufræðifélagi og kostar hún 5500
krónur til þcirra. Út úr búð verö-
ur bókin nokkru dýrari. óþh
Listi sjálfstæðismanna og óháðra á Dalvík birtur:
Bæjarfulltrúar í efstu sætum
Listi sjálfstæöismamia og
óháöra við bæjarstjómarkosn-
ingarnar á Dalvík 26. maí nk.
hefur verið birtur. Listinn er
þannig skipaöur:
1. Trausti Þorsteinsson
Böggvisbraut 7, 2. Svanhildur
Árnadóttir Öldugötu 1,3. Gunn-
Álafoss hf.:
Aðalsteinn Helgason
lætur af störfiun
Aðalsteinn Helgason við-
skiptafræðingur, aðstoöarfor-
stjóri Alafoss hf., hefur verið
ráðinn forstjóri hjá umboðs-
og heildversluninni Kristjáni
Ó. Skagfjörð hf. í Reykjavík.
Aðalsteinn hiuk prófi frá við-
skiptadeild Háskóla íslands 1976,
starfaöi sem skrifstofustjóri hjá
Málningu hf. 1978 til 1983, og var
rekstrarráögjafi hjá Hagvangi
1983 til '85. Hann hóf störf hjá
iðnaöardeild Sambandsins á
Akurcyri vorið 1985. og var for-
stööumaður ullariðnaðárdcildar
þar til hún sameinaðist gamla
Álafossi í nýtt fyrirtæki, Álafoss
hf.. fyrir rúntum tveimur árúm.
Frá þeirh tíma hefur hann gegnt
starfi aðstoðarforstjóra.
Aðalsteinn sagði í samtali viö
Dag að hann myndi taka við hinu
nýja starfi hjá Kristjáni Ó. Skag-
fjörð hf. í júnímánuði. Um störf
Aðalsteinn Helgason.
sín hjá iönaðardeild Sambands-
ins og Álafossi segir hann. „Petta
er búinn að vera erfiður tírni, en
skemmtilegur og lærdómsríkur.
Hér hef ég unnið með mörgu
góöu fölki, iuargt af því eru þeir
bestu starfsmenn sem ég hef á
ævi minni unnið með." EHB
ar Aöalbjörnsson Sognstúni 2, 4.
Hjördís Jónsdóttir Ásvegi 13. 5:
Arnar Símonarson Ásvegi 6, 6.
Óskar Óskarsson Hjarðarslóö 6f,
7. Yrsa Helgadóttir Karlsbraut
22, 8. Jón Baldvinsson Goða-
braut 9, 9. Albert Ágústsson
Brimnesbraut 5, 10. Sævaldur
Gumiíirsson Svarfaðaibraut 16.
11. Björk Ottósdóttir Karlsbraut
12, 12. Eiríkur Ágústsson Mímis-
vegi 9. 13. Sigurður Kristjánsson
Lækjarstíg 3 og 14. Baldvina
Guðlaugsdóttir Hjaröarslóö 2c.
Sjálfstæðismenn og óliáöir
hafa nú þrjá fulltrúa í bæjarstjórn
Dalvíkur, Trausta Porstcinsson,
Ólaf Thoroddsen og Svánhildi
Árnadóttur. Tvö þeirra gefa kost
á sér til endurkjörs, í tveim efstu
sætum listans. óþh
skók
b
Reykj avíkurskákmótið:
Norðlendingamir
á svipuðu róli
Spcnnan í Rcykjavíkurskák-
niótinu er í algleymingi þcgar
þessi orð eru skrifuð en þá var
10 umferðum af 11 lokið og
átta keppendur efstir og jafnir.
En það er gengi Norðlending-
anna sem við höfum mestan
áhuga á og Gylfi Þórhallsson
er kominn með úrslit úr 9. og
10. umferð.
I 9. untferð urðu úrslit þau að
Áskell Örn Kárason vann Stefán
Brierri, Jón Garðar Viðarsson og
Arnar PorSteTnsson gerðu jafn-
tefli, Rúnar Sigurpálsson og Stef-
en Lamm (2280) frá A-Þýska-
landi geröu sömuleiðis jafntefli,
Bogi Pálsson tapaði fyrir Lárusi
Jóhannessyni og Ólafur Krist-
jánsson tapaði fyrir Arkell
(2460), alþjóðlegum meistara frá
Englandi. Bragi Halldórsson sat
yfir í umferðinni vegna þess að
einn keppandi hætti í mótinu og
fær hann vinning út á yfirsetuna.
í 10. umferð sigraði Ólafur
félaga sinn Jón Garðar, Arnar
vann Braga, Rúnar tapaði fyrir
Ásgeiri Pór Árnasyni, Áskell
Örn tapaði fyrir Wessmann
(2505) frá Svíþjóð, en Bogi sat
yfir og krækti sér í vinning.
Staða norðlensku keppend-
anna fyrir síðustu umferð var
þessi: Áskell Örn, Arnar og
Ólafur með 4 vinninga, Rúnar og
Bogi 3Vi og Jón Garðar og Bragi
3 vinninga. SS