Dagur - 30.03.1990, Side 3
Föstudagur 30. mars 1990 - DAGUR - 3
fréttir
Bókamarkaðurinn
á Akureyri:
Rífandi sala
Bókamarkaður Félags
íslenskra bókaútgefenda
sem haldinn er á Akureyri
þessa dagana hefur fengið
mjög góðar viðtökur, að
sögn Björns Eiríkssonar
bókaútgefanda. Upphaflega
voru um 22 tonn af bókum á
markaðinum og hátt í fjögur
þúsund titlar og nú eru að
bætast 7-8 tonn við vegna
mikillar sölu.
„Það seldust upp yfir 100
titlar strax um heigina en við
fáum flesta þeirra aftur. Suniir
eru þó uppseldir en nýir bæt-
ast við. Þetta er að tínast í hús
hjá okkur núna,“ sagði Björn.
Hann kvað viðbrögðin hafa
verið einstaklega góð og betri
en á fyrri mörkuðum, enda
úrvalið meira og verðlag
sennilega aldrei hagstæðara.
„Fólk er mjög ánægt með
markaðinn. Hins vegar er ég
ekki sáttur við tíðarfarið og ég
hef lítið séð af fólki úr ná-
grannabyggðunum ennþá. Ég
vona bara að það komist áður
en við lokum en bókamarkað-
urinn mun standa til 8. apríl,"
sagði Björn. SS
Amtsbókasafnið á Akureyri:
Útlán bóka fara vaxandi á ný
- myndbandaleigan nýtur vinsælda
Heildarútlán Amtsbókasafns-
ins á Akureyri á árinu 1989
voru 95.842 bindi og er það
aukning um 3.759 bindi frá
árinu áður, eða 4% í hundr-
aðshlutum talið. Lán til skipa,
skóla og stofnana voru 3.112
bindi og er það aukning um
Framsóknarkonur við Eyja-
fjörð gangast fyrir fundi um
konur og sveitarstjórnamál á
Hótel KEA á morgun, laugar-
dag, kl. 15.00. Fundurinn er
haldinn fyrir forgöngu Lands-
sambands framsóknarkvenna.
Nú styttist í sveitarstjörna-
kosningarnar og því orðið tíma-
bært að ræða málin og meta
stöðuna. Frummælendur á fund-
inum verða Unnur Stefánsdóttir,
148 bindi frá fyrra ári.
í ársskýrslu Amtsbókasafnsins
segir Lárus Zophoníasson, amts-
bókavörður, að allt útlit sé fyrir
að botninum hafi verið náð í
bókaútlánum og að útlán séu á
hraðri uppleið á ný.
Flest bindi voru lánuð út í
formaður Landssambands fram-
sóknarkvenna, Valgerður Sverr-
isdóttir, alþingismaður, Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir, bæjarfulltrúi á
Akureyri, Guðlaug Björnsdóttir,
bæjarfulltrúi á Dalvík og Kol-
brún Þormóðsdóttir, varabæjar-
fulltrúi á Akureyri.
Að framsöguerindunum lokn-
um fara fram almennar umræður.
Ástæða er til þess að hvetja kon-
ur til þess að fjölmenna á
fundinn.
janúar, eða 8.390, en fæstir voru
í lestrarhugleiðingum í júní, cn
þá voru útlánin 6.051.
Af þeim aðilum sem fengu
bókakassa á árinu má nefna að
togarar Útgerðarfélags Akureyr-
inga fengu 1.072 bindi, togarar
Samherja 592 bindi og lögreglu-
stöðin 339 bindi vegna fangelsis.
Þá eru dvalarheimili aldraðra qg
sjúkrahúsið stórir lánþegar.
Alls nutu 76 lánþegar, aldraðir
og öryrkjar, heimsendingarþjón-
ustu sem er sameiginlegt verkefni
Soroptimistaklúbbs Akureyrar
og Amtsbókasafnsins.
Skráðir gestir á lestrarsal voru
4.919. Alls voru 28.533 bindi
bóka og blaða úr prentskilasafn-
inu lánuð til nota á lestrarsalnum
yfir árið á móti 21.866 bindum
árið áður. Bókanotkunin var
mest í mars.
Útlán á myndböndum hófust í
september 1989. Keypt voru 60
myndbönd, aðallega fræðsluefni,
auk þess sem Fræðsluvarpið gaf
safninu 7 myndbönd. Viðbrögð
við myndbandaleigunni fóru
fram úr öllum vonum, 191 útlán á
þessum fjórum mánuðum.
Rekstur Amtsbókasafnsins
gekk vel og var rekstrarkostnað-
ur 96,6% af áætlun. SS
Þingeyjarsýsla:
Kísilveguriim
opnaður í gær
Kísilvegurinn var opnaður í
gær, eftir að hafa verið ófær í
meira en viku. Það tók snjó-
blásara og hefil allan miðviku-
daginn og hálfan fimmtudag-
inn að ryðja veginn, og þá var
mikil vinna eftir við að jafna
ruðninga meðfram honum.
Reynt var við mokstur í Bárð-
ardal í gær, en síðdegis hafði
Vegagerðin ekki fengið fregnir af
hvernig það gengi.
Ágæt færð var frá Húsavík
austur á Vopnafjörð. Ófært var
milli Húsavíkur og Akureyrar.
Flutningabílar voru þó að brölta
um í ófærðinni og gekk þeim
bæði seint og illa. Mokað verður
í dag ef veður leyfir. IM
Framsóknarkonur við EyjaQörð:
Fundur um konur og
sveitarstjómamá!
Dreymir þig stundum
um að vinna milljónir?
UPPLÝSINGAR: SÍMSVARI 681511 - LUKKULÍNA 991002